Morgunblaðið - 02.03.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Bílar
TILBOÐ
1.490 þús. staðgreitt
FORD Galaxy
7 manna - Diesel
2.0 Diesel árg 2011
• Sjálfskiptur
• Ekinn 172 þús.
• Skoðaður 2021
• Nýsmurður
• Nýlega skipt um olíu á
skiptingu
• Glæný Vredestein nagladekk
Verð 1.790 þús.
Uppl. í síma 615 8080
Atvinnuauglýsingar
Interviews will be held in
Reykjavik in May and June
For details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492
Fax:+ 36 52 792 381
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com
Study Medicine and Dentistry
In Hungary “2020”
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur í Samkaupum hf.
Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til
aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2019.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn
11. mars 2020 kl. 15.00 á skrifstofu félagsins að
Krossmóa 4a, 260 Reykjanesbæ.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf
samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins.
Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að
félagið megi eignast og eiga allt að 10%
hlutafjár í félaginu í 3 ár.
Stjórn Samkaupa hf.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur.
Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47
kl. 10.15 og Aflagranda kl. 10.20. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13.
Engin veitingasala vegna verkfalls en heitt á könnunni. Nánari upp-
lýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opinn
handavinnuhópur kl. 12-16. Leikfimi með Hönnu og Maríu kl. 10.15.
Morgunsagan kl. 11. Göngubretti, æfingahjól með leiðbeinanda kl.
12.30. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-
19. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13 í borðsal.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið og kaffisopi kl.
8.50-11. Púsluspilið bíður þín í Borðstofunni kl. 9-16. Frjálst í Lista-
smiðju kl. 9-12. Byrjendur í línudansi kl. 10-11. Myndlistarnámskeið kl.
12.30-15.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13. Allir velkomnir
óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30. Hjúkrunarfræðingur
kl. 10. Núvitund kl. 10.30. Silkimálun kl. 12.30. Gönguferð kl. 13.
Handaband kl. 13. Brids kl. 13. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30.
Skák kl. 14. Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Verið öll hjartanlega vel-
komin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi
kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13. Frí vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.10 / 7.50 /
15.15. Frí Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Kvennaleikfimi Ásgarði kl.
11. Zumba salur Ísafold kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-16. Qigong kl. 10-11. Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15.
Leikfimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta, kl. 16.30 Söngvinir, kóræfing, kl. 19 Skap-
andi skrif. ATH! Zumba hefst aftur þriðjudaginn 3. mars kl. 13.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Brids og handa-
vinna kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Jóga með
Carynu kl. 9. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Samverustund kl. 10. Jóga með
Ragnheiði kl. 11.10 og kl. 12.05. Tálgun, opinn hópur kl. 13-16. Frjáls
spilamennska kl. 13. Stólaleikfimi fellur niður í dag. Verði verkfall
verður ekki hægt að kaupa mat eða kaffi í félagsmiðstöðinni.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum,
ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilhsöll. Skart-
gripagerð í Borgum kl. 13 í dag og félagsvist kl. 13 í Borgum. Tré-
útskurður í umsjón Gylfa kl. 13 á Korpúlfsstöðum og kóræfing
Korpusystkina kl. 16 í Borgum, Kristín kórstjóri, Jóhann undirleikari.
Allir hjartanlega velkomnir.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, Gönguhópurinn kl. 13.30, bíó í betri stof-
unni kl. 15. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Gler kl. 9 og 13. Leir kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Kross-
gátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna með leiðbeinanda í salnum á Skólabraut kl. 13. Vatnsleik-
fimi í sundlauginni kl. 18.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Zumba Gold, dans, leikfimi og teygjur fyrir byrjend-
ur kl. 9.20. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30m umsjón Tanya. Ensku-
námskeið kl. 10.30 og 12.30, enska talað mál kl. 14, umsjón Margrét
Sölvadóttir.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Elsku pabbi
kvaddi okkur 13.
febrúar síðastlið-
inn, umvafinn fjöl-
skyldu og ástvinum.
Hann var ótrúlegur pabbi, sá
besti.
Alltaf var hann tilbúinn að
hlaupa til og hjálpa hvort sem
það var að fljúga yfir Atlants-
hafið og passa barnabörnin í
Los Angeles eða Alabama, hann
tók því sem ævintýri og skapaði
um leið ævintýri fyrir drengina
mína, eða lagfæra eitthvað á
heimilinu. Hann hafði alltaf
tíma fyrir okkur dæturnar og
það var ósjaldan sem ég kom
við hjá honum í vinnunni hjá
Agli Vilhjálmssyni og fékk að
fara með honum í kaffi á Mat-
stofu Austurbæjar og koma við
í sportvörubúðinni við hliðina á.
Stjórnmál og verkalýðsmál
áttu hug hans og daglega sköp-
uðust umræður við matarborðið
heima í Löngubrekku um
ástandið í heiminum og þar
voru málin krufin, hlustað á rök
og hugmyndir okkar dætranna
og engu máli skipti þó að við
værum ekki alltaf á sama máli,
stundum bara betra að vera
ekki alveg sammála, það brýndi
röklistina.
Pabbi talaði ekki mikið um
æsku sína á Seyðisfirði framan
af, það var ekki fyrr en á seinni
árum að við gerðum okkur
grein fyrir hversu lífshlaup
hans hafði verið erfitt í raun og
veru og svo langt frá okkar að-
stæðum og uppeldi. En eitt
vissum við, æskustöðvarnar
Seyðisfjörður áttu stórt pláss í
hjarta hans, og einhvern veginn
enduðu allar útilegur á sumrin
á Seyðisfirði, þar sem ættingjar
voru heimsóttir og við kynnt-
umst bænum hans.
En hann var ekki bara ynd-
islegur faðir, hann var dásam-
legur afi líka og eyddi miklum
tíma með barnabörnunum, þá
var skrafað og dundað í bíl-
skúrnum og svo töfraði hann
fram pönnukökur með sykri.
Hann var óþreytandi stuðnings-
maður barnabarna og langafa-
barna á fótboltavellinum, vílaði
ekki fyrir sér að sitja í stúkunni
og hvetja áfram allt fram á síð-
ustu stundu og stoltið leyndi
sér ekki þegar þau skoruðu
mark.
Minningarnar eru margar og
við erum svo einstaklega hepp-
in að eiga mikinn hafsjó ljós-
mynda frá æsku okkar þar sem
pabbi var myndasmiðurinn,
hann dokumenteraði heimilislíf-
ið og ferðalög og í myndaal-
búmum liggur eftir hann fjár-
sjóður mynda, allt frá El Grillo
að sökkva í Seyðisfirði á stríðs-
árunum, Josefine Baker að
heimsækja Vífilsstaði og svo af
fjölskyldu og vinum, að
ógleymdri náttúru Íslands.
Takk, elsku pabbi, fyrir lífið,
takk fyrir ferðalögin, að kenna
okkur að meta landið okkar og
lífið, takk fyrir sterkar axlir til
að gráta upp við og hlýjasta
hjarta.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Ragnhildur Ásvaldsdóttir.
Ásvaldur
Andrésson
✝ ÁsvaldurAndrésson
fæddist 13. júlí
1928. Hann lést 13.
febrúar 2020.
Útför Ásvaldar
fór fram 28. febr-
úar 2020.
Haft var eftir
merkum héraðs-
lækni á heimaslóð-
um okkar Ásvalds
Andréssonar
eystra að sá góði
græðari liti á það
sem fæðingu þegar
gamalt fólk kveddi
þennan heim. Vel
má það teljast heil-
brigt viðhorf, enda
öllum markaður
tími í heimi hér. Eigi að síður
kom mér fráfall Ásvalds vinar
míns óþægilega á óvart, enda
var hann maður prýðilega ern
og var síst á neinum brottfar-
arbuxum úr jarðvistinni þá er
fundum okkar bar síðast saman.
Og víst skal ég játa að ég harma
einlæglega fráfall hans – sem og
annarra af hans kynslóð; fólks
sem ekki var mulið undir í æsku
og uppvexti, varð sjálft að berj-
ast fyrir tilverunni, þekkti harð-
ræði og kröpp kjör en brá sér
ekki við þau, hélt jafnlyndi sínu,
bjartsýni og heilbrigðu hugar-
fari, átthaga- og ættjarðarást í
sönnum ungmennafélagsanda.
Segja má að Ásvaldur – eða
„Alli Sveinu“ eins og hann var
oft nefndur – hafi verið ósvikinn
fulltrúi allra þessara gilda. Og
öllu tók hann af stakri ró og
spekt, kippti sér ekki upp við
neitt og brá aldrei skapi það ég
vissi. Telja má hann til síðustu
kynslóðar náttúruvalsins á landi
hér; fólks sem þekkti kröpp
kjör, skort og óblíðar aðstæður
en hertist við hverja raun og
bað ekki um silfurskeiðar,
Toyota Land Cruiser, dúnsæng-
ur né áfallahjálp. Minnisstætt
er mér þá er hann sagði mér af
brotthvarfi sínu úr foreldrahús-
um. Þá fór hann í fiskvinnu suð-
ur með sjó og gekk þar að dag-
legum starfa, 16 ára gamall,
þegar verkstjórinn kallaði hann
á eintal og sagði honum að faðir
hans eystra væri dáinn – og
grafinn! Mátti svo unglingurinn
láta sig hafa að hverfa aftur til
starfa að þeim tíðindum fengn-
um. Hefði einhver bognað við
slíkt – en það var ekki í boði, né
var um það beðið. Slíkur var Ás-
valdur og slík var hans kynslóð.
Það talar hvað skýrustu máli
kynslóðabils að hann var í
fyrstu stjórn átthagafélags sem
festi kaup á gömlu húsi eystra
sem ýmissa lagfæringa þurfti
við. Fór stjórnin austur á land
með hamra, nagla og annað sem
til þurfti og færði húsið í horf.
Og síðan á hverju ári um langa
hríð. Svo bægði tímans rás hinni
fyrstu stjórn frá og yngri kyn-
slóð tók við. Þá var gamla húsið
enn á ný viðhalds þurfi – og var
þá selt, því of dýrt þótti að fá þá
iðnaðarmenn sem til þurfti!
Ásvaldur vinur minn var í
mörgu hamingjumaður; eignað-
ist öndvegis æviförunaut um
meira en 60 ára skeið, dugandi
afkomendur og naut góðrar
heilsu til hárrar elli. Við hitt-
umst öðru hverju, fórum á kaffi-
hús og spjölluðum um heima og
geima. Varð ég þess þá var að
mörgum varð starsýnt á þennan
fyrirmannlega austfirska „lord“
og ekki laust við að mér kæmi
vel að vera hið næsta útgeislun
hans! Kom ég jafnan betri mað-
ur af þeim fundum; slíkur mað-
ur var hann og slík var djúp-
viska hans rúmra níu áratuga.
Treysti ég því að hinum megin
fyrirfinnist þau öldurhús er geri
okkur kleift að taka upp þráðinn
þar og fá okkur spekingakaffi
saman líkt og í jarðvistinni hér.
Að leiðarlokum þakka ég
kynnin, áhrifin, fyrirmyndirnar
og leiðsögnina og votta frú
Ernu, dætrunum og öðrum
vandamönnum samúð mína í
missi þeirra.
Jón B. Guðlaugsson.