Morgunblaðið - 02.03.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 02.03.2020, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020 Þennan bíllausa sunnudag fórum við okkar venjubundna kirkjurúnt sem endaði eins og venjulega í hvítu kirkjunni. Þegar við gengum út úr Rosebank Union var orðið dimmt og við vorum ein. Þetta hafði verið endalaus dagur í smárútum frá blönduðu kirkjunni að svörtu kirkj- unni að hvítu kirkjunni og ég var gjörsamlega úr- vinda. Klukkan var orðin að minnsta kosti níu. Í þá daga, með allt ofbeldið og uppþotin í gangi, vildi maður ekki vera seint á ferð- inni á kvöldin. Við stóðum á horninu á Jellicoe Avenue og Oxford Road, í miðju úthverfi auðugra og hvítra í Jóhannesarborg og það var ekki smárútu að sjá. Göt- urnar voru auðar. Mig langaði svo að snúa mér að mömmu og segja: „Sko! Þetta er ástæðan fyrir því að Guð vildi að við værum heima.“ En ég þurfti aðeins að sjá svipinn á henni til að hafa vit á því að þegja. Það komu þær stundir þegar ég gat rifið kjaft við mömmu – en þetta var ekki ein af þeim. Við biðum og biðum eftir því að smárúta færi hjá. Undir apartheid sá ríkið svörtum ekki fyrir almenn- ingssamgöngum en hvítt fólk þurfti samt á því að halda að við mættum til að skúra fyrir það gólfin og þrífa baðherbergin. Neyðin kennir naktri konu að spinna og svart fólk kom á fót sínu eigin samgöngukerfi, óform- legu neti rútuleiða sem var rekið af einkasamtökum sem störfuðu al- gjörlega utan ramma laganna. Þar sem ekkert eftirlit var með smárútu- starfseminni var þetta í raun og veru skipulögð glæpastarfsemi. Mismun- andi hópar sáu um mismunandi leið- ir og tekist var á um hver stjórnaði hverju. Það gekk á með mútum og almennum hunda- kúnstum, heilmiklu ofbeldi og tölu- verðar verndargreiðslur voru látnar af hendi til að komast hjá ofbeldi. Eitt af því sem maður gerði ekki var að stela leið af öðrum. Bílstjórar sem stálu leiðum gátu átt von á því að verða drepnir. Þar sem ekkert eftir- lit var með starfseminni áttu smá- rúturnar það til að vera mjög óáreið- anlegar. Þær komu þegar þær komu. Þegar þær komu ekki, komu þær ekki. Við stóðum þarna fyrir utan Rose- bank og ég var bókstaflega að sofna standandi. Ekki smárúta í augsýn. Að lokum sagði móðir mín: „Förum á puttanum.“ Við gengum og geng- um og eftir heila eilífð, að mér fannst, renndi bíll upp að okkur og stoppaði. Bílstjórinn bauð okkur far og við klöngruðumst upp í. Við vor- um ekki komin þrjá metra þegar smárúta svínaði fyrir okkur og lok- aði veginum. Súlú-maður steig út úr rútunni með iwisa, stórt, hefðbundið vopn Súlú-manna – stríðskylfu eiginlega. Þær eru notaðar til að brjóta höfuð- kúpurnar á fólki. Annar gaur, félagi hans, kom út farþegamegin. Þeir komu bílstjóramegin að bílnum sem við vorum í, tóku í manninn sem hafði boðið okkur far, drógu hann út úr bílnum og otuðu kylfunum fram- an í hann. „Hvers vegna ert þú að stela af okkur kúnnum? Hvað ert þú að taka fólk upp í?“ Þeir virtust ætla að drepa mann- inn. Ég vissi að slíkt gerðist stundum. Mamma kallaði til þeirra: „Hey, hann var bara að hjálpa mér. Látið hann vera. Við skulum koma með ykkur. Það var jú alltaf ætlunin til að byrja með.“ Þannig að við fór- um út úr bílnum og upp í smárútuna. Við vorum einu farþegarnir í vagninum. Fyrir utan að vera of- beldisfullir glæpamenn eru suður- afrískir smárútubílstjórar frægir fyrir að kvarta og skammast í far- þegum. Þessi bílstjóri var sérlega reiður. Á meðan við ókum áfram fór hann að skammast í móður minni fyrir að hafa verið í bíl með manni sem ekki var eiginmaður hennar. Móðir mín tók því ekki vel þegar ókunnugir menn lásu henni pistilinn. Hún sagði honum að það kæmi hon- um ekki við en þegar hann heyrði hana tala xhosa varð hann enn æst- ari. Staðalhugmyndir um Súlú- og Xhosa-konur voru jafn rótgrónar og um karlmennina. Súlú-konur voru taldar siðprúðar og skylduræknar. Xhosa-konur þóttu lauslátar og ótrúar. Og hér var móðir mín, af óvinaættbálkinum, Xhosa-kona ein með tvo litla krakka – annar þeirra meira að segja blandaður. Ekki bara hóra heldur hóra sem sefur hjá hvít- um mönnum. „Já, svo þú ert Xhosa,“ sagði hann. „Það hlaut að vera. Stökkvandi upp í bíla hjá ókunnug- um mönnum. Ógeðsleg kona.“ Mamma hélt áfram að svara fyrir sig og hann hélt áfram að kalla hana öllum illum nöfnum, gargandi úr bíl- stjórasætinu, veifandi fingri í bak- sýnisspeglinum og varð sífellt meira ógnandi þangað til hann klykkti út með: „Það er vandamálið með ykkur Xhosa-kerlingar. Þið eruð allar druslur – og í kvöld færð þú að kenna á því.“ Hann gaf í. Hann keyrði mjög hratt og stoppaði ekki, rétt hægði á sér til að gá að umferð á gatnamót- um áður en hann brenndi áfram. Dauðinn var aldrei langt undan hjá neinum í þá daga. Móðir mín átti á hættu að verða nauðgað. Við yrðum jafnvel drepin. Þetta var allt saman líklegt. Ég skildi ekki að fullu hætt- una sem við vorum í þá stundina; ég var svo þreyttur að ég vildi bara fá að sofa. Og mamma hélt ró sinni. Hún fríkaði ekki út og því kunni ég ekki að fríka út. Hún hélt bara áfram að reyna að koma vitinu fyrir manninn. „Mér þykir leitt ef ég hef komið þér í uppnám, bhuti. Þú getur bara hleypt okkur úr hér ...“ „Nei.“ „Í alvöru, þetta er fínt hér. Við getum gengið ...“ „Nei.“ Hann brenndi niður Oxford Road, göturnar voru auðar, engir aðrir bílar á ferð. Ég sat næst rennihurð- inni á bílnum. Móðir mín sat við hlið- ina á mér með Andrew litla í fang- inu. Hún leit út um gluggann á veginn sem þaut hjá og hallaði sér síðan að mér og hvíslaði: „Trevor, þegar hann hægir á sér á næstu gatnamótum, ætla ég að opna dyrn- ar og þá stökkvum við.“ Ég heyrði ekki orð af því sem hún sagði vegna þess að þegar hér var komið sögu var ég steinsofnaður. Þegar við komum að næstu um- ferðarljósum hægði hann aðeins á sér til að líta í kringum sig og gá að umferð. Móðir mín hallaði sér yfir mig, reif upp dyrnar, greip í mig og fleygði mér út úr bílnum eins langt og hún gat. Síðan tók hún Andrew, hringaði sig utan um hann eins og bolti og stökk út á eftir mér. Þetta var eins og draumur þangað til að sársaukinn blossaði upp. Bamm! Ég skall harkalega í gang- stéttina. Móðir mín lenti rétt við hliðina á mér og við ultum og rúll- uðum og rúlluðum. Ég var glaðvakn- aður. Ég fór frá því að vera hálfsof- andi yfir í Hvað í andskotanum?!! Að lokum hætti ég að rúlla og stóð á fætur alveg ringlaður. Ég leit í kringum mig og sá móður mína sem var staðin á fætur. Hún sneri sér við, leit á mig og öskraði: „Hlauptu!“ Svo ég hljóp, og hún hljóp, og eng- inn hljóp eins og við mamma. Það er skrítið að segja frá þessu en ég vissi bara hvað ég átti að gera. Það var eðlishvöt, innrætt í heimi þar sem ofbeldi var alltaf við það að brjótast út á næsta leiti. Þegar lög- reglan réðst inn í bæjarkjarnana í fullum herklæðum með brynvarða bíla og þyrlur, vissi ég eitt: Hlauptu í skjól. Hlauptu og feldu þig. Ég vissi það þegar ég var fimm ára. Hefði ég alist upp við annað hefði það líkast til slegið mig út af laginu að vera fleygt út úr bíl á ferð. Ég hefði staðið þarna eins og fáviti og spurt: „Hvað er að gerast, mamma? Hvers vegna er mér svona illt í löppunum?“ En það var ekkert þannig. Mamma sagði „Hlauptu“ og ég hljóp. Ég hljóp eins og gasellan hleypur undan ljóninu. Mennirnir stoppuðu smárútuna og fóru út og reyndu að elta okkur en þeir áttu ekki séns. Við stungum þá af. Ég held að þeir hafi verið í sjokki. Ég man enn eftir því að ég leit um öxl og sá þá gefast upp, utan- gátta og undrandi á svip. Hvað gerð- ist eiginlega? Hverjum hefði dottið í hug að kona með tvö lítil börn gæti hlaupið svona hratt? Þeir höfðu ekki hugmynd um að þeir höfðu hitt margfalda íþróttameistara Mary- vale College. Við héldum áfram og áfram þangað til við komum á bens- ínstöð sem var opin allan sólarhring- inn og þar hringdum við á lögregl- una. Mennirnir voru löngu farnir þá. Ég vissi ennþá ekki hvers vegna þetta hafði yfirleitt gerst. Ég hafði hlaupið á hreinu adrenalíni. Þegar við hættum að hlaupa áttaði ég mig á því hvað ég fann mikið til. Ég leit niður og sá að húðin á handleggj- unum á mér var rispuð og fleiðruð. Ég var með sár um allt og mér blæddi alls staðar. Sama átti við mömmu. Litli bróðir minn var ómeiddur, ótrúlegt en satt. Mamma hafði vafið sig svo þétt um hann að hann fékk ekki eina skrámu. Ég leit gapandi á hana. „Hvað var þetta?! Hvers vegna er- um við að hlaupa?!“ „Hvað meinarðu, Hvers vegna er- um við að hlaupa?? Þessir menn voru að reyna að drepa okkur.“ „Þú sagðir mér það ekki! Þú bara hentir mér út úr bílnum!“ „Víst gerði ég það. Hvers vegna stökkstu ekki?“ „Stökk? Ég var sofandi!“ „Og átti ég þá bara að skilja þig eftir svo þeir gætu drepið þig?“ „Þeir hefðu að minnsta kosti vakið mig áður en þeir hefðu drepið mig.“ Við héldum áfram að kýta. Ég var of ringlaður og of reiður yfir því að hafa verið hent út úr bíl á ferð til að átta mig á því hvað hafði gerst. Móðir mín hafði bjargað lífi mínu. Þegar við vorum farin að ná aftur andanum og biðum eftir að lög- reglan mætti á svæðið til að keyra okkur heim sagði hún: „Jæja, við er- um að minnsta kosti heil á húfi, Guði sé lof.“ En ég var níu ára og ég vissi betur. Ég ætlaði ekki að þegja í þetta sinn. „Nei, mamma! Þetta var ekki Guði að þakka! Þú hefðir átt að hlusta á Guð þegar hann sagði okkur að vera heima þegar bíllinn fór ekki í gang, því það er augljóst að Djöfullinn plataði okkur til að fara út í kvöld.“ „Nei, Trevor! Djöfullinn gerir ekki þannig. Þetta er hluti af áætlun Drottins og ef hann vill að við séum hér, þá hefur hann ástæðu til ...“ Og svona hélt þetta áfram, við rif- umst um Guðs vilja. Að lokum sagði ég: „Sko, mamma. Ég veit að þú elskar Jesú en kannski ættir þú að biðja hann um að hitta okkur heima í næstu viku. Því að þetta var alls ekki skemmtilegt kvöld.“ Hún brosti út að eyrum og skellti svo upp úr. Ég fór að hlæja líka og þarna stóðum við, þessi litli strákur og mamma hans, handleggir og fót- leggir ataðir blóði og drullu, hlæj- andi saman þrátt fyrir sársaukann, í skininu frá bensínstöð við vegar- kantinn um miðja nótt. Mamma sagði „Hlauptu“ og ég hljóp Bókarkafli | Trevor Noah ólst upp í skugga að- skilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku: Sjálf tilvist hans var glæpur, því samband móður hans og föður af ólíkum hörundslit var refsivert á þeim tíma. Í ævisögu sinni, Glæpur við fæðingu, segir hann frá æsku sinni og unglingsárum í samfélagi sem enn er í sárum, fyrstu skrefunum í skemmt- anabransanum og trúrækinni móður sem opnaði fyrir honum heiminn. Helga Soffía Einarsdóttir þýddi. Angústúra gefur út. AFP Vinsæll Trevor Noah hefur notið vinsælda fyrir uppistand og gamanmál en þessar æskuminingar hans frá Suður-Afríku hafa ekki síður vakið athygli. Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Ljósaskilti fyrir þitt fyrirtæki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.