Morgunblaðið - 07.04.2020, Side 12

Morgunblaðið - 07.04.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Icelandair Group hefur ráðið Íslands- banka, Landsbankann og Kviku banka til ráðgjafar um hvernig styrkja megi fjárhagslega stöðu félagsins til fram- tíðar. Þetta var tilkynnt fyrir opnun markaða í gærmorgun. Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í tengslum við málið kemur fram að ef tekjuflæði þess verði í lágmarki í apríl og maí megi gera ráð fyrir að lausafjárstaða þess fari undir 200 milljónir dollara, jafnvirði tæplega 29 milljarða króna. Stefna félagisns hefur verið að laust fé, ásamt óádregnum lá- nalínum, færi ekki undir þau mörk. Milljarðar á fyrstu mánuðunum Lausafjárstaða félagsins nam 301,6 milljónum dollara, jafnvirði 43,5 millj- arða á núverandi gengi, um nýliðin áramót og því gera áætlanir Icelandair ráð fyrir því að lausafé félagsins hafi minnkað um að minnsta kosti 14,6 milljarða króna á fyrstu fimm mánuð- um ársins. Á síðustu tveimur vikum hefur Ice- landair gripið til mjög umfangsmikilla aðgerða í því skyni að verja lausafjár- stöðuna. Þannig var tilkynnt 23. mars að 92% starfsfólks félagsins yrðu færð niður í hlutastörf, 240 starfsmönnum var sagt upp og þeir sem ekki urðu fyr- ir skerðingu starfshlutfalls lækkuðu um 20% í launum, framkvæmdastjórar um 25% en forstjórinn og stjórn fé- lagsins um 30%. Þá var tilkynnt á þriðjudaginn fyrir viku að stærstur hluti starfsemi dótturfélagsins Air Ice- land Connect yrði færður undir hatt móðurfélagsins í því skyni að draga úr kostnaði. Umsvifin aðeins tíundi hluti Þessa dagana eru umsvif flugstarf- semi Icelandair Group um 10% af því sem upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Segir félagið að mikil óvissa sé uppi um hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og hvenær eftirspurn eftir flugi og ferðalögum muni taka að nýju við sér. Þrátt fyrir óvissuna gera stjórnendur félagsins ráð fyrir að flug- áætlunin í sumar muni dragast saman um að minnsta kosti 25%. Hlutabréf Icelandair Group lækkuðu um tæp 1,4% í viðskiptum gærdagsins í 26 milljóna króna viðskiptum. Gengið stendur nú í 3,6 og hefur lækkað um 52,3% frá áramótum. Markaðsvirði fé- lagsins stendur í tæpum 19,6 milljörð- um. Fjárhagsleg afkoma félagsins á fyrsta fjórðungi ársins verður kynnt í síðustu viku þessa mánaðar. ses@mbl.is Gengur hratt á lausafé Icelandair  Þrír bankar kallaðir að borðinu ákveðið að draga saman framleiðslu sína á þessu ári um 15% en raforku- samningurinn við Landsvirkjun ger- ir fyrirtækinu kleift að afþakka allt að því hlutfalli þeirrar orku sem það hefur skuldbundið sig til að kaupa, án þess að þurfa að greiða fyrir hana. Kjósa að borga fyrir rafmagn sem ekki er notað Heimildir Morgunblaðsins innan úr Rio Tinto herma að fyrirtækið hafi nú þegar ákveðið að draga enn frekar úr framleiðslu sinni hér á landi og það valdi því að það muni, að minnsta kosti um skeið, þurfa að greiða fyrir raforku sem það ekki mun nota. Minni framleiðslu mun sjá stað strax í fyrrihluta aprílmánaðar og áhrifa ákvörðunarinnar mun gæta enn frekar á komandi vikum. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu umfangsmikill samdrátturinn í framleiðslu verður. Samhliða þessari ákvörðun munu stjórnendur Rio Tinto í Straumsvík vinna að nýrri kostnaðaráætlun fyr- ir verksmiðjuna, m.a. í ljósi þess að útlit er fyrir versnandi pantanastöðu á öðrum og þriðja ársfjórðungi þessa árs. Meðal þeirra sviðsmynda sem nú er verið að skoða af fullri alvöru er að loka verksmiðjunni í 24 mánuði í von um að heimshagkerfið hafi náð bata að þeim tíma liðnum og að eft- irspurn eftir áli verið þá orðin meiri. Um þessar mundir er talið að heims- birgðir af áli nemi sex milljónum tonna. Til samanburðar voru birgð- irnar fjórar milljónir tonna í kjölfar fjármálakreppunnar 2008. Málaferli inni í myndinni Á sama tíma og forsvarsmenn Rio Tinto leita leiða til að draga úr gegndarlausum taprekstri herma heimildir Morgunblaðsins að fyrir- tækið undirbúi nú málaferli gegn Landsvirkjun í því skyni að losna undan fyrrnefndum raforkusamn- ingi. Þar er m.a. til skoðunar hvort áhrif kórónuveirunnar á alheims- markað með ál geti talist „force maj- eur“. Þannig gæti Rio Tinto hrein- lega losnað undan samningnum með því að loka verksmiðjunni án þess að þurfa að greiða upp raforkusamn- inginn. Heimildir Morgunblaðsins herma einnig að Rio Tinto kunni að bera fyrir sig að samkvæmt orkukaupa- samningi við Landsvirkjun sé geng- ið út frá því að orkan sem afhent er komi frá vatnsaflsvirkjunum. Hins vegar komi fram á raforkureikning- um sem fyrirtækið hafi greitt, allt frá árinu 2014, að orkan sé í raun frá kola- og kjarnorkuverkum. Skýrist það af sölu hinna svokölluðu upp- runavottana sem Landsvirkjun hef- ur haft talsverðar tekjur af á undan- förnum árum. Telja sérfræðingar Rio Tinto að í sölu upprunavottan- anna felist vörusvik gagnvart Rio Tinto og það geti leitt til þess að fyrirtækið geti losnað undan að minnsta kosti hluta þeirrar kaup- skyldu sem samningurinn leggur þeim á herðar allt til ársins 2036. Rio Tinto kaupir 23% allrar þeirrar orku sem Landsvirkjun framleiðir. Skoða lokun til tveggja ára  Rio Tinto skoðar sviðsmyndir til að draga úr tjóni af völdum reksturs álsversins í Straumsvík  Kjarasamningar bundnir því að samningar takist við Landsvirkjun  Draga frekar úr framleiðslu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Álverið Álframleiðsla hefur staðið viðstöðulaust í Straumsvík frá árinu 1969. Nú gæti svo farið að hlé yrði gert á. Undir lok síðasta mánaðar náð- ust samningar milli Rio Tinto og stéttarfélaga í álverinu. Gert er ráð fyrir að samning- arnir haldi til lok marsmánaðar 2021. Það munu þeir hins veg- ar ekki gera nema samkomulag hafi náðst milli Rio Tinto og Landsvirkjunar fyrir lok júní- mánaðar á þessu ári. Heimildir Morgunblaðsins herma að Rio Tinto hafi komið ákvæði þessa efnis inn í bókun í samning- unum, ef allt færi á versta veg og félagið neyddist til að draga verulega úr framleiðslu eða hætta henni. Semji fyrir lok júní KJARASAMNINGARNIRBAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lítið hefur þokast í viðræðum milli Landsvirkjunar og Rio Tinto í Straumsvík í kjölfar þess að síðar- nefnda fyrirtækið kallaði eftir því að raforkusamningur milli aðila frá árinu 2010 yrði tekinn upp og endur- skoðaður. Hafa forsvarsmenn fyrir- tækisins fullyrt að rekstrargrund- völlur starfseminnar í Straumsvík sé brostinn með núverandi raforku- samning til grundvallar. Forstjóri Landsvirkjunar hefur sagt að orkuverðið hér sé sam- keppnisfært en í samtali við Morg- unblaðið á fimmtudaginn síðasta sagði Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, að fyrirtækið ynni með viðskiptavinum sínum að því að létta þann róður sem flest fyrirtæki eru nú í vegna útbreiðslu kórónu- veirunnar. Heimildamaður Morgunblaðsins segir að tveir fundir hafi verið haldnir milli Rio Tinto og Lands- virkjunar en þeir hafi verið árang- urslausir og að rúmur mánuður sé nú liðinn frá því að fulltrúar fyrir- tækjanna settust síðast niður. Ann- ar heimildamaður bendir þó á að áfram sé unnið að farsælli lausn milli fyrirtækjanna þótt ekki hafi formlegir fundir verið boðaðir að undanförnu. Þreifingar enn í gangi Í liðinni viku greindi Morgunblað- ið frá því að tap af rekstri álversins í Straumsvík hefði numið tæpum 13 milljörðum á nýliðnu ári og bættist það við ríflega fimm milljarða tap á árinu 2018. Hefur rekstur verk- smiðjunnar skilað tapi síðustu átta ár. Í lok janúar greindi Morgunblað- ið einnig frá því að Rio Tinto hefði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.