Morgunblaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
Hægt er að bóka tjónaskoðun hj
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
á okkur á net n
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
HSRETTING.IS
547 0330
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Angela Merkel Þýskalandskanslari
varaði við því í gær að aldrei hefði
reynt jafnmikið á samheldni Evr-
ópusambandsríkjanna og nú. Hvatti
hún ríki álfunnar til þess að vinna
saman að því að endurreisa efnahag
aðildarríkjanna þegar heimsfarald-
urinn verður liðinn hjá.
„Ég tel að Evrópusambandið
standi nú frammi fyrir mestu próf-
raun sinni frá stofnun,“ sagði Merkel
og bætti við að öll ríkin hefðu fundið
fyrir faraldrinum og því væri það
hagur allra að Evrópuríkin kæmu
styrkum fótum frá þessari raun.
við endurreisnina, þannig að öll ríkin
deili lántökukostnaðinum og skulda-
byrðinni af þeim.
Hollendingar, Austurríkismenn
og Þjóðverjar hafa hins vegar ekki
viljað ganga svo langt, þar sem ótt-
ast hefur verið að ríki þeirra myndu
þá þurfa á endanum að standa skil á
óábyrgri fjármálastjórn ríkjanna í
suðurhluta álfunnar. Fjármálaráð-
herrar ESB-ríkjanna munu halda
fjarfund í dag, og er talið að þar verði
samþykkt samkomulag um hvernig
neyðaraðstoð sambandsins verður
háttað. Mun hún fela í sér heimildir
til að veita lán úr neyðarsjóðum sam-
bandsins, en ekki verður af útgáfu
„kórónubréfanna“ að sinni.
verjar, með stuðningi Frakka, kallað
eftir því að gefin verði út svonefnd
„kórónuskuldabréf“ til að hjálpa til
Stjórnvöld í Frakklandi vöruðu við
því í að gær að yfirvofandi væri
versta efnahagskreppa sem Evrópa
hefði séð frá lokum síðari heims-
styrjaldar. Sagði Bruno Le Maire,
fjármálaráðherra Frakklands, að
tryggja þyrfti að ríkari ríki sam-
bandsins næðu sér ekki af áhrifum
kórónuveirunnar fyrr en hin verr
settu, því annars yrði eining aðild-
arríkjanna sem og evrusvæðið fyrir
miklu höggi.
Ræða neyðarpakka í dag
Ríki Evrópusambandsins hafa átt
í innbyrðis deilum síðustu daga um
það hvernig koma eigi til móts við
þann vanda, og hafa Ítalir og Spán-
„Mesta prófraun“ ESB
Aðildarríkin ræða neyðaraðstoð Óttast verstu kreppuna frá stríðslokum
AFP
Gott bil Merkel ræðir við blaða-
menn með tveggja metra bili í gær.
Heldur tómlegt er um að litast í mörgum af
helstu stórborgum Evrópu vegna kórónuveiru-
faraldursins, enda búa íbúar þeirra við strangar
ið, en heldur ólíklegt er að hann hafi sungið fyrir
munni sér ljóðlínur Jónasar Árnasonar um maí-
kvöld í Moskvuborg.
takmarkanir á ferðum sínum utandyra. Moskva,
höfuðborg Rússlands, er þar engin undantekn-
ing. Þar gekk þessi maður einn yfir Rauða torg-
AFP
„Eitt sinn einn ég gekk yfir Rauðatorg“
Boris Johnson,
forsætisráðherra
Bretlands, var í
gærkvöldi flutt-
ur á gjörgæslu-
deild sjúkrahúss-
ins St. Thomas í
Lundúnum. Fyrr
um daginn hafði
talsmaður for-
sætisráðuneyt-
isins sagt líðan Johnsons góða og að
hann fylgdist enn með aðgerðum
stjórnvalda af sjúkrabeð sínum.
Ástand Johnsons versnaði hins veg-
ar um kvöldið, og var hann því
fluttur á gjörgæslu í varúðarskyni,
meðal annars ef til þess kæmi að
setja þyrfti hann í öndunarvél.
Dominic Raab utanríkisráðherra
stýrði fundum ríkisstjórnarinnar í
gær en hann hefur verið útnefndur
staðgengill Johnsons þar sem þess
þarf.
Unnusta Johnsons, Carrie Sym-
onds, varð einnig einkenna vör en
hefur nú náð sér að fullu. Hún á von
á fyrsta barni þeirra. Meira en
50.000 Bretar hafa greinst með
veiruna og rúmlega 5.000 hafa dáið
vegna faraldursins.
Boris Johnson
fluttur á gjörgæslu
Boris Johnson
BRETLAND
Tedros Adhan-
om Ghebreyesus,
framkvæmda-
stjóri Alþjóða-
heilbrigðisstofn-
unarinnar WHO,
fordæmdi í gær
hugmyndir
tveggja franskra
lækna, sem
höfðu lagt það
til að prófa
mætti bóluefni gegn kórónuveir-
unni í Afríku.
„Afríka getur ekki og mun ekki
verða tilraunastofa fyrir neitt
bóluefni,“ sagði Ghebreyesus og
bætti við að hugmyndirnar virtust
vera vondur arfur frá nýlendutím-
anum. „Við fordæmum þetta alfar-
ið og lofum ykkur því að þetta
verður ekki gert.“
Afríka ekki tilrauna-
stofa fyrir bóluefni
Tedros Adhanom
Ghebreyesus
SVISS
Rúmlega 360.000 manns hafa nú
smitast af kórónuveirufaraldrinum í
Bandaríkjunum og rúmlega 10.000
manns farist af völdum hans þar í
landi samkvæmt talningu Johns
Hopkins-háskólans.
Bandaríkjamenn búa sig nú undir
eina verstu viku í sögu þjóðarinnar,
en gert er ráð fyrir að bæði stað-
festum tilfellum sem og dauðsföllum
af völdum veirunnar muni fjölga
mjög næstu daga.
Bandaríkin eru nú með þriðja
mesta mannfallið af völdum veirunn-
ar á eftir Ítalíu og Spáni, en stjórn-
völd í þeim ríkjum telja hins vegar að
nú sé loks farið að rofa til í faraldr-
inum í Evrópu. Frá síðastliðnum
miðvikudegi hafa hins vegar fleiri en
þúsund dauðsföll verið staðfest á
degi hverjum í Bandaríkjunum.
Vildi fresta forkosningum
New York-ríki hefur orðið verst
úti í faraldrinum vestanhafs til
þessa, en rúmlega 130.000 manns
höfðu smitast þar af veirunni í gær-
kvöldi, og tæplega 4.800 manns látist
af völdum hennar. Flest dauðsföllin
hafa verið í New York-borg, en þar
eru nú staðfest rúmlega 72.000 til-
felli veirunnar og rúmlega 3.000
dauðsföll. Andrew Cuomo, ríkisstjóri
New York, ákvað í gær að fram-
lengja útgöngubann sem gilt hefur í
ríkinu fram til loka aprílmánaðar.
Þá hugðist Tony Evers, ríkisstjóri
Wisconsinríkis, fresta forkosningum
demókrata í ríkinu, sem áttu að fara
þar fram í dag. Evers, sem er demó-
krati, hefur átt í deilum síðustu daga
við ríkisþing Wisconsin, þar sem
repúblikanar eru í meirihluta, um
hvort forkosningarnar ættu að fara
fram. Ríkisþingið áfrýjaði hins vegar
ákvörðun Evers til hæstaréttar rík-
isins, sem fyrirskipaði seint í gær-
kvöldi að kosningarnar skyldu fara
fram. sgs@mbl.is
Rúmlega 10.000
dánir vestanhafs
New York-ríki
framlengir út-
göngubann sitt
AFP
New York Hjúkrunarfræðingur í
Brooklyn býr sig undir daginn.