Morgunblaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sagan geymirmörg dæmium menn sem fóru fyrir þjóð- um og misstigu sig illa í því hlutverki. Stjórnendur sem lúta leikreglum lýð- ræðisins eru veikari fyrir vin- sældatapi en þeir sem byggja vald sitt á her og lögreglu. En jafnvel þeir síðarnefndu þola ekki óánægju lýðsins til lengd- ar. Rísi óánægjualda hátt er þekkt afbrigði í stöðunni að beina athygli annað. Framandi óvinur sem bregðast þarf við af samhentri þjóð gagnast oft vel. Gangi leikfléttan upp komast stjórnvöld í nægjanlegt skjól og ná tiltrú, og herða tök sín. Kórónuveiran er ekki upp- blásinn andstæðingur. En lask- aðir leiðtogar geta brúkað þá ógn sem frá henni stafar til að komast aftan að pólitískum and- stæðingum. Eftirsóknarverðast er að gera þá ábyrga fyrir veir- unni vondu. Leiðtogar New York, sér- staklega Blasio borgarstjóri, eru gott dæmi þessa. Trump forseta brá mjög þegar bann- sett veiran bankaði óvænt upp á og fipaðist. Hann sá á auga- bragði að þróaðist faraldurinn á versta veg gætu helstu fegurð- arverðlaun hans á kjör- tímabilinu breyst í skuggamynd í kosningunum í nóvember nk. Obama forveri hans var frum- kvæðislítill í efnahagsmálum og stöðnun varð einkennandi. Það gjörbreyttist með Trump sem frá fyrsta degi remdist við að efna loforð sín í efnahags-, skatta- og peningamálum. Þar varð gjörbreyting og þarf að horfa til tíðar Reagans og reyndar Kennedys í skatta- málum til að sjá eitthvað sam- bærilegt. Aðgerðirnar þýddu jákvæða þróun á flestum sviðum efna- hagsmála. Störfum fjölgaði, trú landsmanna á eigin getu óx hratt. Einn mælikvarðinn vísi- tölur markaða sem tóku mikinn og samfelldan vaxtarkipp. Þótt fyrrnefndar breytingar forset- ans réðu mestu um hin jákvæðu teikn þá eru slíkir mælikvarðar mjög bundnir huglægum þátt- um eins og væntingum og von- um, ótta, tiltrú eða efasemdum svo nokkur dæmi séu tekin. Kórónuveiran kom eins og möl og urð inn í allt það gangverk. Nýr ógnvaldur steig inn á svið efnahagslífsins og fékk sam- stundis alla athygli. Veiran sjálf hefur enn ekki gert neinn stórbrotinn skaða, mælt í dollurum og sentum vestra. En viðbrögðin, og er þá ekki verið að gagnrýna þau, hafa hins vegar gert það. Yfir- völd hafa ályktað sem svo: Það eru engin bóluefni til og þau verða ekki til í tæka tíð. Lyf, sem draga úr verstu afleið- ingum, eru heldur ekki til. Þetta er því eina úrræðið. Hitt er uppgjöf. Aðeins hlé á stærstum hluta persónulegra samskipta manns og annars er til- tækt úrræði. Ekki til að stöðva veiruna alveg. Það mun ekki takast, og óvíst að það væri gott. Aðeins til að hafa lág- marksstjórn á hraða útbreiðslu hennar, svo að þegar líf liggur við megi taka á móti henni af verulegu afli. Þessi leið, sem heimurinn hefur víðast sannfært sig um að sé hin eina færa, er mikil glæfraleið. Úthaldið mun bresta ef því er ætlaður of langur tími. Getgátur eru uppi um að það geti gengið að leggja þetta stóra stopp á stóran hluta mannkyns fram yfir páska og jafnvel allt til loka þessa mánaðar. Þá þurfi þessari heimseinangrun að ljúka. Kannski með skipulögð- um hætti í skrefum en það þolir ekki langan tíma. Fjöldi smitaðra er gefinn upp en lítið að marka þær tölur. Og það er þýðingarmikið að sú tala sé há. Þar með er augljóst að tala „læknaðra“ verður einnig margföld sú tala sem birt er um það. Ástæða þessa er sú að fjöldi manna fær veiruna án þess að finna verulega fyrir. En líka þeir eru læknaðir og ónot- hæf burðardýr. Það er ein ástæða þess að ætla má að efna- hagslífið í veröldinni muni taka fljótt við sér. Þótt þessum slag sé líkt við styrjöld, og jafnvel heimsstyrj- aldir, þá er flest harla ólíkt. Í heimsstyrjöldunum tveimur lagðist „stríðsveiran“ þyngst á ungu mennina, sem sendir voru eins og dýr til slátrunar. Bar- áttan stóð í hálfan áratug. Eftir stóðu ekki aðeins brotnar og særðar fjölskyldur, ónýtar borgir, brýr og vegir, heldur hafði allri framleiðslu verið ætl- að að vinna í þágu stríðs. Öllum fjármunum var kastað á það bál. Nú er fjármunum ríkjanna fremur varpað eins og silfri Eg- ils yfir fjöldann og fyrirtæki þeirra en nú í göfugum tilgangi. Til að fleyta mannlífinu yfir erf- iðustu mánuðina. Og þetta stóra stopp hefur þýtt að margur hef- ur fengið óvæntan umþóttunar- tíma inn í lífsbaráttuna. Tími hefur gefist til að taka til í fleiru en bílskúrnum. Líka í hug- skotinu og sálartetrinu. Kannski kemur heimurinn að nokkru úthvíldur og endur- nærður úr orrustu að þessu sinni. Kannski komum við öll út á völlinn aftur eins og eftir ónýtan fyrri hálfleik, og verðum eins og víkingar í þeim seinni, skorum í honum mörk sem myndu að jafnaði duga heila leiktíð. Hver veit? Má ekki vona það? Stoppið heiminn, ég ætla út, var sagt í söngleik forðum. Nú er komin áþekk upp- færsla á heimsvísu} Stoppið heiminn – hlé A ðgerðarpakkar ríkisstjórnar hafa nú verið samþykktir á Alþingi með nauðsynlegum breytingum. Fleiri tillögur eru í farvatninu enda eru allir sammála um að bregðast verði fljótt og vel við þeirri stöðu sem upp er komin vegna heimsfaraldursins en ekki með smáum að- gerðum sem á endanum verða bæði kostn- aðarsamar og skila litlu. Um það eru stjórn og stjórnarandstaða sammála. Af þeim aðgerðum sem þegar hefur verið ráðist í ber fyrst að nefna hlutastarfaleiðina sem koma á til móts við starfs- menn fyrirtækja sem búa við mjög skerta verk- efnisstöðu og tekjumöguleika. Má ætla að sú ein- staka aðgerð sé með þeim mikilvægari til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot og atvinnuleysi því enn ætlum við okkur að komast upp úr þessu fyrr en síðar. Aðrar leiðir hafa einnig verið sam- þykktar á Alþingi, svo sem brúarlán, frestun á skatt- greiðslum og endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði og bílaviðgerðir, sem og ýmiss konar fjár- veitingar til stuðnings við íþróttafélög og menningar- starfsemi, nýsköpun og rannsóknir svo dæmi séu tekin. Það liggur þó alveg ljóst fyrir að margt fleira þarf að gera og höfum við í Samfylkingunni borið fram tillögur þess efn- is. Sumar hlutu náð fyrir augum stjórnarmeirihluta í þinginu en aðrar nauðsynlegar aðgerðir voru því miður felldar. Einn er sá rekstur sem enga athygli hefur fengið þegar kemur að stuðningi stjórnvalda en getur lítið stuðst við þær leiðir sem þegar hafa verið samþykktar. Fjöl- miðlar eru hreint ekki að glíma við verkefna- skort þessa dagana heldur er þvert á móti stöð- ug krafa samfélagsins um reglulegar fréttir af ástandinu, krafa um almennar fréttir og síðast en ekki síst er mikil krafa um ýmiss konar af- þreyingarefni til að hafa ofan af fyrir okkur, börnum okkar og ungmennum í samkomubanni. Fjölmiðlar, sem skipaðir eru í framvarðasveit, hafa svarað þessu kalli vel með ýmiss konar breytingum á dagskrá sinni og miðlum. Upplýs- ingarnar flæða til okkar sem og skemmti-, kennslu- og afþreyingarefni. Fjölmiðlafólk hleypur hraðar en nokkru sinni á sama tíma og augljós hætta steðjar að vinnuveitendum þess. Auglýsingatekjur fjölmiðla hafa hríðfallið eftir komu Covid og samkomubanns í kjölfarið. Fjöl- miðlar geta ekki nýtt sér þær leiðir sem stjórn- völd hafa boðið upp á því það er jú ekki hægt að fresta bara greiðslum eða senda starfsfólk í hlutastarf. Í lýðræðisþjóð- félagi gegna fjölmiðlar algjöru lykilhlutverki og vil ég því skora á ríkisstjórnina að huga vel að útfærslu á því með hvaða hætti eigi að veita þeim stuðning í næsta pakka sem kynntur verður. Það er ekki hægt að taka ákvörðun um styrkveitingar til fjölmiðla í sumar eða haust því slíkt verður að gerast núna. Það hafa nágrannalönd okkar gert og ég skora á ríkisstjórn að bregðast við áður en tjón verður. Helga Vala Helgadóttir Pistill Fjölmiðla verður að styrkja Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Færeyingum virðist hafatekist nokkuð vel að hemjakórónuveirufaraldurinn.Þegar hann fór sem hrað- ast í eyjunum upp úr miðjum mars greindust að jafnaði um 15 með veir- una dag hvern en síðustu daga hefur dregið mjög úr fjölda nýrra smita. Í gær greindust tveir með smit en á sunnudag enginn. Alls hafa 183 einstaklingar greinst með kórónuveirusmit í Færeyjum, sá fyrsti 4. mars. Þá hafa 107 náð sér af veikindunum, fáir hafa verið lagðir inn á sjúkrahús og eng- an hefur þurf að leggja á gjör- gæsludeild. Síð- ustu daga hafa fleiri náð bata á hverjum degi en hafa smitast. Þá hafa rúmlega 4.900 sýni verið tekin sem svarar til hvorki meira né minna en um 9,45% af eyjaskeggjum, sem eru rúmlega 52 þúsund. Færeyska landstjórnin greip til aðgerða hinn 12. mars til að reyna að hægja á faraldrinum. Skólum var lokað, allir þeir, sem á því höfðu tök, voru hvattir til að vinna heima, og lagt var bann við því að fleiri en hundrað kæmu saman. Þá var veit- ingahúsum gert að loka klukkan tíu á kvöldin. Auk þess var landamær- unum að hluta lokað í samræmi við reglur, sem Danir settu. Upphaflega áttu þessar aðgerðir að gilda í hálfan mánuð en þær voru síðan fram- lengdar til 15. apríl. Þótt færeysku reglurnar væru ekki eins strangar og t.d. í Dan- mörku tóku Færeyingar þær alvar- lega og göturnar í Þórshöfn og öðr- um bæjum hafa nánast verið auðar, að sögn heimamanna. Hömlur losaðar varlega En nú eru færeysk stjórnvöld far- in að velta því fyrir sér hvenær og hvernig þau geti losað um þessar hömlur. Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, sagði á blaðamannafundi sl. föstudag, að fara yrði varlega til að varðveita þann árangur, sem náðst hefði í baráttu við kórónuveir- una. „Við lærum meira og meira á hverjum degi sem líður. Smitþróunin hefur verið jákvæð og við verðum að tryggja að ekki falli á þá mynd, en á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að gangverk samfélagsins þarf að komast af stað á ný,“ sagði hann og boðaði, að nánari upplýs- ingar yrðu veittar fyrir páska um hver fyrstu skrefin í því efni yrðu. Þá sagði Lars Fodgaard Møller, landlæknir Færeyja, við færeyska útvarpið um helgina, að tækifæri virtist vera að skapast til að draga úr aðgerðunum, en fara yrði varlega, einkum í ljósi þess, að það liðu að jafnaði átta dagar frá smiti og þar til sjúkdómseinkenni kæmu fram. Fyrirtæki í Færeyjum hafa eins og í öðrum löndum orðið fyrir miklu höggi. Færeyska lögþingið fjallar nú um frumvarp til fjáraukalaga, sem gerir ráð fyrir því að nærri hundrað milljónum danskra króna, jafnvirði um tveggja milljarða íslenskra króna, verði varið til að styðja við þarlend fyrirtæki. Allt útlit er fyrir að það nægi ekki. Færeyska útvarpið hefur t.d. eftir Henny á Líknagøtu, formanni samtaka ferðaþjónust- unnar í Færeyjum, að áætlanir fyrir árið 2020 hafi gert ráð fyrir tvö hundruð þúsund gistinóttum, einum milljarði danskra króna í veltu og metfjölda starfsfólks. Þær vænt- ingar séu nú brostnar. Færeyingar sjá til lands í faraldrinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórshöfn Götur í höfuðstað Færeyja hafa nánast verið auðar síðan sett var á samkomubann í eyjunum í mars. Það á að gilda til 15. apríl hið minnsta. Bárður á Steig Nielsen Færeyska flugfélagið Atlantic Airways á von á 12 milljónum danskra króna, jafnvirði um 250 milljóna króna, úr færeyska rík- iskassanum samkvæmt björg- unarpakka, sem landsstjórnin hefur lagt fyrir lögþingið. Þar er gert ráð fyrir að flug- félög, sem eru skráð í Færeyjum og greiða skatta og skyldur þar, fái jafnvirði 35% af launum áhafna flugvéla og þyrlna, sem styrk úr landskassanum. Atl- antic Airways sinnir bæði milli- landaflugi og innanlandsflugi í Færeyjum með farþegaflug- vélum og þyrlum. Fær fjárstyrk frá ríkinu ATLANTIC AIRWAYS Flugvél Ein af farþegaflug- vélum Atlantic Airways.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.