Morgunblaðið - 15.04.2020, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.04.2020, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020 Réttir Víðidalstungurétt í Vestur-Húnavatnssýslu er stórglæsileg á að líta úr lofti. Á haustin eru þar jafnan haldnar fjölmennar stóðréttir og vonandi verður þá öllum samkomubönnum aflokið. Eggert Ekkert hagkerfi fær staðist til lengri tíma ef komið er í veg fyrir efnahagslega starfsemi borgaranna. Skiptir engu hversu öflugt og stórt hagkerfið er. Hægt og bítandi byrja undirstöðurnar að molna – velsæld breyt- ist í fátækt og örbirgð, öflugt heilbrigðiskerfi brotnar niður, almannatryggingar komast í þrot. Pólitískur órói og sundrung þjóðar eru fylgifiskar efnahagslegra þrenginga. Þetta vita kjörnir leiðtogar lýðræðisríkja. Í baráttunni við kórónuveiruna, sem ógnar lífi og heilsu almennings um allan heim, hefur í raun verið slökkt á vélum efnahagslífsins. Víða hefur fólki verið skipað að halda sig heima, einangra sig frá öðrum. Út- göngubanni verið komið á. Stræti stórborga eru mannlaus, kaffihús, barir og veitingahús lokuð, verslanir hafa læst dyrum sínum. Þeir sem geta hafa komið sér upp vinnuað- stöðu heima. Í mörgum löndum hafa börn og unglingar verið send heim úr skóla en háskólastúdentar reyna að sinna námi í fjarkennslu. Vélar í verksmiðum hafa þagnað. Flestir skilja mikilvægi tveggja-metra- reglunnar og eru hættir að heilsa með handabandi. Enginn hleypur til og faðmar gamlan vin. Ferðalög milli landa eru aðeins til í minn- ingum og draumum fólks. Allt þetta hefur reynst nauðsynlegt til að ná tökum á Covid-19 faraldrinum. En fyrr eða síðar verða stjórn- völd að slaka á ströng- um reglum, bæði af efnahagslegum og fé- lagslegum ástæðum. Forsenda þess að hægt sé að byggja upp og reka sterkt heilbrigð- iskerfi er öflugt efna- hagslíf. Það er ein af skyldum við- skiptahagkerfisins að búa til verðmæti sem standa undir velsæld þjóða. Félagslega kemst maðurinn illa af án opinna samskipta við annað fólk. Sálarheill þjóða byggist ekki síst á því að geta átt beint samneyti við aðra, á götum úti, á kaffihúsum, á vinnustað. Við getum í skamman tíma komist af með fjarfundi og tryggt að sambandið við fjölskyldu og vini rofni ekki með því að nýta spjallforrit og samfélagsmiðla. En tæknin leysir aldrei af hólmi per- sónuleg samskipti og nánd. Sið- menning byggist á opnum sam- skiptum og samvinnu einstaklinga. Hagkerfi endurræst Á komandi mánuðum og árum munu vísindamenn átta sig betur á því hvaða mistök hafa verið gerð í einstökum löndum og í samstarfi (eða samstarfsleysi) þjóða í barátt- unni við illvígan vírus. Hagfræð- ingar eiga eftir að meta efnahags- legan skaða sem vírusinn hefur valdið heiminum en ekki síður skrifa nýjar kennslu- og fræðibækur um hvernig best sé að beita ríkisfjár- málum og peningastjórnun þegar tekist er á við heilbrigðisógn í fram- tíðinni. Stjórnvöld um allan heim standa hins vegar frammi fyrir miklum áskorunum. Það verður að endur- ræsa hagkerfið en um leið tryggja að faraldurinn nái sér ekki á strik aftur með skelfilegum afleiðingum. Ekki er hægt að búast við öðru en stigin verði varfærin skref í þá átt að koma samfélögum í eðlilegt horf. Sebastian Kurz, kanslari Austur- ríkis, hefur þegar kynnt áætlanir um að aflétta takmörkunum á við- skiptalífinu. Í opnu bréfi á laug- ardag sagðist hann vilja „koma út úr kreppunni eins fljótt og auðið er og verja hvert einasta starf í Austur- ríki“. Verslanir sem eru undir 400 fm að stærð, sem og bygginga- vöruverslanir og blómabúðir hafa fengið að opna að nýju. Endurræs- ing austurríska hagkerfisins byggist á skref-fyrir-skref áætlun. Leyft verður að öllu óbreyttu að opna stærri verslanir, verslunarmið- stöðvar og hárgreiðslustofur að nýju 1. maí en veitingastaði og hótel um miðjan maí. Enn verða í gildi strangar reglur um félagslega fjar- lægð og fólk er hvatt til að vera heima eins mikið og mögulegt er. Í matvöruverslunum og lyfjabúðum verður enn skylda að vera með and- litsgrímu. Önnur lönd eru einnig að feta sig í átt að því sem hægt er að segja að sé eðlilegt ástand. Skrefin eru ekki stór en eru hluti af varfærnum áætl- unum um að koma hjólum efnahags- lífsins af stað. Spánn hefur m.a. leyft byggingaverktökum og verk- smiðjum að hefja aftur starfsemi og í Danmörku geta yngri börn snúið aftur í skóla. Jafnvel á Ítalíu er víða verið að slaka á takmörkunum. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur hins vegar til- kynnt að útgöngubann verði fram- lengt til 11. maí. Frá þeim tíma verði slakað á kvöðum og reynt að tryggja að hægt og bítandi komist daglegt líf í eðlilegt horf. Forsetinn, sem sagði í sjónvarpsávarpi að enn hefði ekki tekist að ná tökum á faraldr- inum, tilkynnti að nánari áætlun yrði kynnt í lok apríl. Fyrstu skrefin í maí Flest bendir til að heilbrigðisyf- irvöldum hafi tekist vel upp í barátt- unni við kórónuveiruna. Erlendir vísindamenn og fjölmiðlar hafa vak- ið athygli á árangrinum. Í hádeginu í gær kynntu íslensk stjórnvöld áætlun um hvernig hægt og bítandi höftum verði lyft af þjóðarfélaginu frá og með 4. maí. Þar er fylgt til- lögum sóttvarnalæknis. Hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum hefst og með nokkrum takmörkunum verður unnt að opna framhalds- og háskóla. Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50. Ýmis þjónusta getur hafist, s.s. hár- greiðslustofur, nuddstofur, sjúkra- þjálfun, snyrtistofur. Tannlæknar fá að taka til starfa og öll heilbrigðis- starfsemi sem ekki felur í sér val- kvæðar skurðaðgerðir verður heim- il. Söfn verða að nýju aðgengileg almenningi. Með takmörkunum hefst íþróttastarf barna og unglinga. Enn verða ferðatakmarkanir milli landa a.m.k. fram til 15. maí. Ekki þarf að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að vel takist til við að lyfta íþyngjandi takmörk- unum á daglegt líf almennings. Þau skref sem stíga á 4. maí skipta máli en ráða því miður ekki úrslitum um efnahagslega afkomu þjóðarinnar. Við munum enn þurfa að glíma við efnahagslegar þrengingar. Efna- hagslegar aðgerðir stjórnvalda, – ríkis, sveitarfélaga og Seðlabanka – hafa verið nauðsynlegar til að verja fyrirtæki og heimili. En þær voru til að koma okkur í gegnum fyrsta leik- hluta af nokkrum. Annar leikhluti er að hefjast og ekki verður hjá því komist að beita jafnt ríkisfjármálum og peningamálum með róttækum hætti á komandi mánuðum. Eftir Óla Björn Kárason »En fyrr eða síðar verða stjórnvöld að slaka á ströngum reglum, bæði af efna- hagslegum og félagsleg- um ástæðum. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Að láta hjólin snúast að nýju

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.