Morgunblaðið - 15.04.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020
Réttir Víðidalstungurétt í Vestur-Húnavatnssýslu er stórglæsileg á að líta úr lofti. Á haustin eru þar jafnan haldnar fjölmennar stóðréttir og vonandi verður þá öllum samkomubönnum aflokið.
Eggert
Ekkert hagkerfi fær
staðist til lengri tíma ef
komið er í veg fyrir
efnahagslega starfsemi
borgaranna. Skiptir
engu hversu öflugt og
stórt hagkerfið er.
Hægt og bítandi byrja
undirstöðurnar að
molna – velsæld breyt-
ist í fátækt og örbirgð,
öflugt heilbrigðiskerfi
brotnar niður, almannatryggingar
komast í þrot. Pólitískur órói og
sundrung þjóðar eru fylgifiskar
efnahagslegra þrenginga. Þetta vita
kjörnir leiðtogar lýðræðisríkja.
Í baráttunni við kórónuveiruna,
sem ógnar lífi og heilsu almennings
um allan heim, hefur í raun verið
slökkt á vélum efnahagslífsins. Víða
hefur fólki verið skipað að halda sig
heima, einangra sig frá öðrum. Út-
göngubanni verið komið á. Stræti
stórborga eru mannlaus, kaffihús,
barir og veitingahús lokuð, verslanir
hafa læst dyrum sínum. Þeir sem
geta hafa komið sér upp vinnuað-
stöðu heima. Í mörgum löndum hafa
börn og unglingar verið send heim
úr skóla en háskólastúdentar reyna
að sinna námi í fjarkennslu. Vélar í
verksmiðum hafa þagnað. Flestir
skilja mikilvægi tveggja-metra-
reglunnar og eru hættir að heilsa
með handabandi. Enginn hleypur til
og faðmar gamlan vin. Ferðalög
milli landa eru aðeins til í minn-
ingum og draumum
fólks.
Allt þetta hefur
reynst nauðsynlegt til
að ná tökum á Covid-19
faraldrinum. En fyrr
eða síðar verða stjórn-
völd að slaka á ströng-
um reglum, bæði af
efnahagslegum og fé-
lagslegum ástæðum.
Forsenda þess að hægt
sé að byggja upp og
reka sterkt heilbrigð-
iskerfi er öflugt efna-
hagslíf. Það er ein af skyldum við-
skiptahagkerfisins að búa til
verðmæti sem standa undir velsæld
þjóða. Félagslega kemst maðurinn
illa af án opinna samskipta við annað
fólk. Sálarheill þjóða byggist ekki
síst á því að geta átt beint samneyti
við aðra, á götum úti, á kaffihúsum,
á vinnustað. Við getum í skamman
tíma komist af með fjarfundi og
tryggt að sambandið við fjölskyldu
og vini rofni ekki með því að nýta
spjallforrit og samfélagsmiðla. En
tæknin leysir aldrei af hólmi per-
sónuleg samskipti og nánd. Sið-
menning byggist á opnum sam-
skiptum og samvinnu einstaklinga.
Hagkerfi endurræst
Á komandi mánuðum og árum
munu vísindamenn átta sig betur á
því hvaða mistök hafa verið gerð í
einstökum löndum og í samstarfi
(eða samstarfsleysi) þjóða í barátt-
unni við illvígan vírus. Hagfræð-
ingar eiga eftir að meta efnahags-
legan skaða sem vírusinn hefur
valdið heiminum en ekki síður skrifa
nýjar kennslu- og fræðibækur um
hvernig best sé að beita ríkisfjár-
málum og peningastjórnun þegar
tekist er á við heilbrigðisógn í fram-
tíðinni.
Stjórnvöld um allan heim standa
hins vegar frammi fyrir miklum
áskorunum. Það verður að endur-
ræsa hagkerfið en um leið tryggja
að faraldurinn nái sér ekki á strik
aftur með skelfilegum afleiðingum.
Ekki er hægt að búast við öðru en
stigin verði varfærin skref í þá átt
að koma samfélögum í eðlilegt horf.
Sebastian Kurz, kanslari Austur-
ríkis, hefur þegar kynnt áætlanir
um að aflétta takmörkunum á við-
skiptalífinu. Í opnu bréfi á laug-
ardag sagðist hann vilja „koma út úr
kreppunni eins fljótt og auðið er og
verja hvert einasta starf í Austur-
ríki“. Verslanir sem eru undir 400
fm að stærð, sem og bygginga-
vöruverslanir og blómabúðir hafa
fengið að opna að nýju. Endurræs-
ing austurríska hagkerfisins byggist
á skref-fyrir-skref áætlun. Leyft
verður að öllu óbreyttu að opna
stærri verslanir, verslunarmið-
stöðvar og hárgreiðslustofur að nýju
1. maí en veitingastaði og hótel um
miðjan maí. Enn verða í gildi
strangar reglur um félagslega fjar-
lægð og fólk er hvatt til að vera
heima eins mikið og mögulegt er. Í
matvöruverslunum og lyfjabúðum
verður enn skylda að vera með and-
litsgrímu.
Önnur lönd eru einnig að feta sig í
átt að því sem hægt er að segja að sé
eðlilegt ástand. Skrefin eru ekki
stór en eru hluti af varfærnum áætl-
unum um að koma hjólum efnahags-
lífsins af stað. Spánn hefur m.a. leyft
byggingaverktökum og verk-
smiðjum að hefja aftur starfsemi og
í Danmörku geta yngri börn snúið
aftur í skóla. Jafnvel á Ítalíu er víða
verið að slaka á takmörkunum.
Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, hefur hins vegar til-
kynnt að útgöngubann verði fram-
lengt til 11. maí. Frá þeim tíma verði
slakað á kvöðum og reynt að tryggja
að hægt og bítandi komist daglegt
líf í eðlilegt horf. Forsetinn, sem
sagði í sjónvarpsávarpi að enn hefði
ekki tekist að ná tökum á faraldr-
inum, tilkynnti að nánari áætlun
yrði kynnt í lok apríl.
Fyrstu skrefin í maí
Flest bendir til að heilbrigðisyf-
irvöldum hafi tekist vel upp í barátt-
unni við kórónuveiruna. Erlendir
vísindamenn og fjölmiðlar hafa vak-
ið athygli á árangrinum. Í hádeginu
í gær kynntu íslensk stjórnvöld
áætlun um hvernig hægt og bítandi
höftum verði lyft af þjóðarfélaginu
frá og með 4. maí. Þar er fylgt til-
lögum sóttvarnalæknis.
Hefðbundið skólahald í leik- og
grunnskólum hefst og með nokkrum
takmörkunum verður unnt að opna
framhalds- og háskóla. Fjöldamörk
samkomubanns hækka úr 20 í 50.
Ýmis þjónusta getur hafist, s.s. hár-
greiðslustofur, nuddstofur, sjúkra-
þjálfun, snyrtistofur. Tannlæknar fá
að taka til starfa og öll heilbrigðis-
starfsemi sem ekki felur í sér val-
kvæðar skurðaðgerðir verður heim-
il. Söfn verða að nýju aðgengileg
almenningi. Með takmörkunum
hefst íþróttastarf barna og unglinga.
Enn verða ferðatakmarkanir milli
landa a.m.k. fram til 15. maí.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um mikilvægi þess að vel takist til
við að lyfta íþyngjandi takmörk-
unum á daglegt líf almennings. Þau
skref sem stíga á 4. maí skipta máli
en ráða því miður ekki úrslitum um
efnahagslega afkomu þjóðarinnar.
Við munum enn þurfa að glíma við
efnahagslegar þrengingar. Efna-
hagslegar aðgerðir stjórnvalda, –
ríkis, sveitarfélaga og Seðlabanka –
hafa verið nauðsynlegar til að verja
fyrirtæki og heimili. En þær voru til
að koma okkur í gegnum fyrsta leik-
hluta af nokkrum. Annar leikhluti er
að hefjast og ekki verður hjá því
komist að beita jafnt ríkisfjármálum
og peningamálum með róttækum
hætti á komandi mánuðum.
Eftir Óla Björn
Kárason »En fyrr eða síðar
verða stjórnvöld að
slaka á ströngum
reglum, bæði af efna-
hagslegum og félagsleg-
um ástæðum.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Að láta hjólin snúast að nýju