Morgunblaðið - 15.04.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020
Útspil ríkisstjórn-
arinnar í efnahags-
málum vegna
COVID-19 veirunnar
með lagasetningu
gegnum Alþingi er
fordæmalaus hér á
landi bæði hvað varð-
ar stærð og aðferðar-
fræði og eftir nokkra
yfirlegu virðist sem
ríkisstjórnin og Al-
þingi séu lögst í veg-
ferð sem hvorki sér fyrir endann á
né vitað er hvað muni kosta. Þeg-
ar kemur að ríkisfjármálum þjóð-
ar er því ekki hægt að segja ann-
að en að þetta líti út fyrir að vera
ábyrgðarlaus leiðangur.
Svo það komi fram er í fjár-
aukalögunum sem samþykkt voru
þann 30. mars síðastliðinn margt
ágætra framlaga en það er tvennt
sem stingur í augun þegar kemur
að nánari skoðun. Það fyrra er
heimildin upp á 140 milljarða til
handa ríkissjóði vegna ríkis-
ábyrgða á lánveitingar án trygg-
inga vegna fyrirgreiðslu Seðla-
bankans til banka sem þjónusta
atvinnulífið. Hér virðist sem farið
sé í fordæmalausa vegferð til að
ríkisábyrgðavæða fyrirtækjarekst-
ur í landinu án tilskilinna veða og
að því er virðist að mestu án skil-
yrða.
Þótt talað sé um að áhættan af
lánveitingum til fyrirtækja skiptist
til helminga á Seðlabankann og
viðkomandi lánastofnun verður að
hafa í huga að tveir af þremur
bönkum landsins, Íslandsbanki og
Landsbankinn, eru í eigu ríkisins
og því lendir öll áhættan þegar
upp er staðið á skattgreiðendum. Í
greinargerð með frumvarpinu eru
sett átta skilyrði fyrir veitingu
þessara ábyrgða en ekki verður
séð að þau skilyrði séu nægilega
skýr til að hægt sé að ramma inn
þann kostnað sem af hlýst. Ekki
er heldur að sjá að til-
skilinn tímarammi til
afturköllunar ábyrgð-
anna, sem er átján
mánuðir, skipti máli
þar sem, eins og áður
sagði, tveir af þremur
bönkum eru í eigu rík-
isins hvort eð er. Að
auki er fyrirhuguð tíu
milljarða króna arð-
greiðsla Arion banka
til eigenda sinna (sem
eru erlendir vogunar-
sjóðir) í maí næstkomandi sem
blaut tuska í andlit aðferðarfræði
ríkisstjórnarinnar, þar sem pen-
ingar ríkissjóðs, ergo skattgreið-
enda, renna í raun beint í arð-
greiðslur til eigenda bankans.
Hitt atriðið, sem er smærra í
sniðum en skiptir samt máli, er að
ríkisvaldið hefur tekið að sér að
greiða auglýsingakostnað fyrir
ferðaiðnaðinn í landinu upp á einn
og hálfan milljarð til að reyna að
koma þeim bisness í gang aftur.
Það er einnig óskilvirk útdeiling á
fé almennings til verkefnis sem
ekki hefur verið skoðað hvort sé
raunhæft og skili sér, þótt auglýs-
ingastofur og starfsfólk þeirra
njóti náttúrulega góðs af. Það rík-
ir einfaldlega algjör óvissa um
framtíð ferðaiðnaðarins í landinu
næsta árið eða svo.
Sú hugmynd ríkisstjórnarinnar
að ríkissjóður taki að sér launa-
greiðslur í stórum stíl og greiði
allt upp í 75% af launakostnaði
fyrirtækja gegnum Atvinnuleysis-
tryggingasjóð (sem er ekki til sem
sjálfstæður sjóður heldur er hluti
af ríkissjóði) verður að teljast með
þeim skrítnari og jafnvel óábyrg-
ari sem litið hafa dagsins ljós.
Þessi aðferðarfræði rennir algjör-
lega blint í sjóinn hvað varðar
kostnað og tímalengd og er að
auki sérlega óskilvirk eins og kom
fram strax í upphafi þegar Bláa
lónið, sem hefur greitt eigendum
sínum um tólf milljarða í arð
undanfarin sjö ár, var eitt fyrsta
fyrirtækið til að taka þátt.
Svona aðgerð er ekki aðeins
óskilvirk, þar sem fjölmörg fyrir-
tæki sem ekki þurfa á því að halda
munu fá launakostnað sinn að
stórum hluta greiddan af al-
mannafé, heldur er hún einnig
ógagnsæ því eftirlit með því hverj-
ir sækja um og á hvaða forsendum
er ekki til. Sú fullyrðing að þetta
þurfi að gera til að þekking tapist
ekki úr fyrirtækjunum stenst tæp-
lega nema þá í undantekningartil-
vikum, því mesta höggið kemur á
ferðaiðnaðinn og þar er stærstur
hluti vinnuaflsins með þekkingu
sem áfram verður til staðar þegar
endurreisnin hefst. Auk þess er
ómögulegt að segja hvenær þetta
ástand endar og þegar búið er að
skrúfa frá peningakrananum
munu fyrirtækin að sjálfsögðu
heimta áframhald þar á.
Þessi aðgerð ríkisstjórnarinn er
líka undarleg þegar haft er í huga
að til staðar eru kerfi sem eru
þrautreynd og hafa reynst vel í
efnahagslegum niðursveiflum
hingað til, en það eru kerfi upp-
sagnarfresta þar sem viðkomandi
starfsmaður fær full laun út upp-
sagnarfrest, í flestum tilvikum
þrjá mánuði, og svo kerfi atvinnu-
leysisbóta sem tekur við í kjöl-
farið. Atvinnuleysisbætur geta
numið allt að 441.000 krónum á
mánuði í þrjá mánuði og fara svo í
289.000 krónur eftir það og
heildartímabilið getur verið allt að
þremur árum. Þessi kerfi eru
gagnsæ, lögbundin og skilvirk og
hafa verið við lýði hér á landi í
áratugi.
Vissulega munu sum fyrirtæki
ekki geta staðið undir greiðslum í
uppsagnarfresti og þær greiðslur
því lenda á ábyrgðasjóði launa, en
fyrirtæki sem hafa ekki borð fyrir
báru vegna tekjusamdráttar í þrjá
mánuði eru líklega rekin eftir við-
skiptalíkani sem hvort eð er geng-
ur ekki upp. Það er að þeim tíma
loknum sem það kemur þá betur í
ljós hvaða fyrirtæki það eru sem
vert er að styðja við með opinber-
um framlögum, svokölluð lífvæn-
leg fyrirtæki. Slík greining yrði
milli fyrirtækjanna og viðskipta-
banka þeirra og framhaldið yrði
svo samvinnuverkefni viðskipta-
bankanna og ríkissjóðs. Þau fram-
lög sem kæmu frá ríkinu ættu að
sjálfsögðu að vera í formi krónu á
móti krónu framlags frá eigendum
fyrirtækisins annars vegar og rík-
inu hins vegar og verða þá að nýju
hlutafé sem ríkið gæti svo losað
sig við þegar betur árar. Út-
greiddur arður fyrri ára hefur
náttúrulega ekki horfið og eðlilegt
er að eigendur skili hluta hans til
baka í formi nýs hlutafjár sem
skilyrði fyrir stuðningi ríkisins.
Vissulega er svona leið ekki ein
allsherjarlausn á öllum vanda
enda er slíkt ekki til við þessar
aðstæður og það er mikilvægt að
þjóðhagslega mikilvægustu fyrir-
tækin eins og til dæmis Flugleiðir
verði áfram til með sínu starfs-
fólki og sérþekkingu. Eins er ekki
víst að önnur fyrirtæki nái að
safna mótframlagi á móti ríkis-
framlaginu, en það þarf þá að taka
á því sérstaklega. Fyrirtæki og
eigendur þeirra njóta nú þegar
mikillar verndar og mikillar vel-
vildar gegnum löggjöf um hluta-
félög og skattalög og það er
óskynsamlegt, óskilvirkt og óþarfi
að vernda þau gegn yfirstandandi
áföllum með þeim hætti sem fyrir-
hugað er. Þar sem eigendurnir
eru nú þegar varðir persónulega
gegn áföllum með takmörkun á
ábyrgð gegnum hlutafélagalögin
er það fullkomlega óskynsamlegt
að vernda þá líka gegn tapi fyr-
irtækjanna með óskilyrtum fram-
lögum frá ríkinu. Fyrirtækja-
eigendur sem hlaupa hlæjandi í
bankann með arðinn sem mun
lægri skattur er greiddur af en af
venjulegum launatekjum eiga
hreinlega enga réttmæta kröfu til
að fá vernd ríkissjóðs þegar bjátar
á í rekstrinum, þess sjóðs sem að
stórum hluta til er fjármagnaður
er með skattgreiðslum launafólks-
ins.
Yfirvofandi efnahagslegt sam-
dráttarskeið, jafnvel kreppa, er
fordæmalaust, en það hefur líka
verið raunin með önnur slík skeið
í sögunni. Þess vegna urðu til
kerfi uppsagnarfresta og atvinnu-
leysisbóta og eftir atvikum skil-
virk gjaldþrotalöggjöf. Slíkt fyrir-
komulag er þaulreynt, skilvirkt
og gagnsætt og ber að nota
óbreytt þar til fer að sjást betur
fram á veginn með það hvernig
þessi vegferð endar. Að öðrum
kosti mun gríðarleg seðlaprentun
Seðlabankans og skuldsetning
ríkissjóðs leiða til jafnvel verri
langtíma efnahagslegra afleiðinga
þegar upp er staðið.
Nýsett löggjöf um gríðarleg
framlög úr ríkissjóði til bjargar
fyrirtækjum og eigendum þeirra
virðist einfaldlega vera van-
hugsuð og gerð í óðagoti. Aðferð-
arfræðin er óskilvirk, ógagnsæ og
óskynsamleg og getur hæglega
valdið miklum vandræðum þegar
til lengri tíma er litið, byggir að
því er virðist á hugsun sem á sér
frekar litla stoð í einhverjum
efnahagslegum raunveruleika og
er í anda þeirrar hugsunar að
maskínan haldi áfram að snúast
endalaust bara ef bætt er meiri
peningum í hana.
Það er ekki fjarri hugsuninni
og aðferðarfræðinni á bak við síð-
ustu ævintýrasiglingu íslenska
hagkerfisins hverra einkunn-
arorð, sögð með djúpri rödd voru:
„Kaupthinking er hugsun sem
teygir sig handan venjulegrar
hugsunar. Kaupthinking er að
hugsa handan hins eðlilega.“ Það
fór ekki vel. Það eru nefnilega til
efnahagslegar staðreyndir hvað
svo sem hver segir.
Íslensk hagsaga er mikið til
endurtekið efni mistaka sem urðu
vegna óðagots, vanþekkingar og
óeðlilegrar hagsmunagæslu
stjórnvalda. Enn eina ferðina
virðist það vera raunin. En
kannski er það bara svo að það
eina sem við getum lært af sög-
unni er að við lærum ekkert af
sögunni.
„Kaupthinking“ ríkisstjórnar
Eftir Þór Saari
Þór Saari
»Nýsett löggjöf um
gríðarleg framlög úr
ríkissjóði til bjargar
fyrirtækjum og eig-
endum þeirra virðist
einfaldlega vera van-
hugsuð og gerð í
óðagoti.
Höfundur er hagfræðingur.
Mig langar til að
deila með ykkur
hvernig líf mitt er í
dag.
Þótt ég sé stundum
að sprella við fólk og
með brandara á Fa-
cebook þá tek ég líf
mitt alvarlega. Ég er í
12 spora samtökum og
er mikið að vinna í
sjálfum mér. Er búinn
að vera edrú í rúm níu
ár og er í góðum bata. Ég ætla deila
með ykkur degi í lífi mínu.
Ég vakna hress á morgnana og
fæ mér morgunmat og svo hugleiði
ég í korter og fer yfir daginn, hvað
ég ætla að gera og skipulegg dag-
inn.
Ég er með dálk í símanum sem
ég skíri: Minnisbanki. Þar skrifa ég
allt sem ég þarf að muna og gera. Í
hugleiðslunni man ég oftast eftir
mörgu sem ég þarf að gera og þá
teygi ég mig í símann og skrifa það
í minnisbankann og held svo áfram í
hugleiðslunni og læt símann um að
muna. Annars myndi það trufla
hugleiðsluna. Öðru hvoru yfir dag-
inn skrifa ég í minnisbankann sem
ég þarf að muna og gera. Ef það
kemur einhverra hluta
vegna eyða einhvern
tímann á deginum fer
ég í minnisbankann og
sé hvað ég get gert. Í
hugleiðslunni hef ég
minnisbankann með
þegar ég er að skipu-
leggja daginn. Ég reyni
að gera hlutina eins
fljótt og ég mögulega
get og það er alltaf nóg
að gera. Þess vegna er
ég í bata. Stundum, en
það er ekki oft, ákveð
ég að gera bara ekkert þann daginn
og mér líður bara vel með það.
Á sunnudögum geri ég mjög lítið;
fer á fund og í nokkrar heimsóknir
og er bara að leika mér og það
verður maður stundum að gera til
að maður fari ekki yfir um. Svo fer
ég á fund á hverjum degi í hádeg-
inu.
Langaði svo að deila þessu með
ykkur ef það hjálpar einhverjum.
Minnisbankinn
og líf mitt í dag
Eftir Ragnar
Rúnar Þorgeirsson
Ragnar Rúnar
Þorgeirsson
»Er búinn að vera
edrú í rúm níu ár og
er í góðum bata.
Höfundur er eftirlaunaþegi.
ragnar.r@simnet.is
Atvinna
Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is
Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja
Það er bara best að kynnast
mér til að skilja mig betur