Morgunblaðið - 15.04.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.04.2020, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020 Útspil ríkisstjórn- arinnar í efnahags- málum vegna COVID-19 veirunnar með lagasetningu gegnum Alþingi er fordæmalaus hér á landi bæði hvað varð- ar stærð og aðferðar- fræði og eftir nokkra yfirlegu virðist sem ríkisstjórnin og Al- þingi séu lögst í veg- ferð sem hvorki sér fyrir endann á né vitað er hvað muni kosta. Þeg- ar kemur að ríkisfjármálum þjóð- ar er því ekki hægt að segja ann- að en að þetta líti út fyrir að vera ábyrgðarlaus leiðangur. Svo það komi fram er í fjár- aukalögunum sem samþykkt voru þann 30. mars síðastliðinn margt ágætra framlaga en það er tvennt sem stingur í augun þegar kemur að nánari skoðun. Það fyrra er heimildin upp á 140 milljarða til handa ríkissjóði vegna ríkis- ábyrgða á lánveitingar án trygg- inga vegna fyrirgreiðslu Seðla- bankans til banka sem þjónusta atvinnulífið. Hér virðist sem farið sé í fordæmalausa vegferð til að ríkisábyrgðavæða fyrirtækjarekst- ur í landinu án tilskilinna veða og að því er virðist að mestu án skil- yrða. Þótt talað sé um að áhættan af lánveitingum til fyrirtækja skiptist til helminga á Seðlabankann og viðkomandi lánastofnun verður að hafa í huga að tveir af þremur bönkum landsins, Íslandsbanki og Landsbankinn, eru í eigu ríkisins og því lendir öll áhættan þegar upp er staðið á skattgreiðendum. Í greinargerð með frumvarpinu eru sett átta skilyrði fyrir veitingu þessara ábyrgða en ekki verður séð að þau skilyrði séu nægilega skýr til að hægt sé að ramma inn þann kostnað sem af hlýst. Ekki er heldur að sjá að til- skilinn tímarammi til afturköllunar ábyrgð- anna, sem er átján mánuðir, skipti máli þar sem, eins og áður sagði, tveir af þremur bönkum eru í eigu rík- isins hvort eð er. Að auki er fyrirhuguð tíu milljarða króna arð- greiðsla Arion banka til eigenda sinna (sem eru erlendir vogunar- sjóðir) í maí næstkomandi sem blaut tuska í andlit aðferðarfræði ríkisstjórnarinnar, þar sem pen- ingar ríkissjóðs, ergo skattgreið- enda, renna í raun beint í arð- greiðslur til eigenda bankans. Hitt atriðið, sem er smærra í sniðum en skiptir samt máli, er að ríkisvaldið hefur tekið að sér að greiða auglýsingakostnað fyrir ferðaiðnaðinn í landinu upp á einn og hálfan milljarð til að reyna að koma þeim bisness í gang aftur. Það er einnig óskilvirk útdeiling á fé almennings til verkefnis sem ekki hefur verið skoðað hvort sé raunhæft og skili sér, þótt auglýs- ingastofur og starfsfólk þeirra njóti náttúrulega góðs af. Það rík- ir einfaldlega algjör óvissa um framtíð ferðaiðnaðarins í landinu næsta árið eða svo. Sú hugmynd ríkisstjórnarinnar að ríkissjóður taki að sér launa- greiðslur í stórum stíl og greiði allt upp í 75% af launakostnaði fyrirtækja gegnum Atvinnuleysis- tryggingasjóð (sem er ekki til sem sjálfstæður sjóður heldur er hluti af ríkissjóði) verður að teljast með þeim skrítnari og jafnvel óábyrg- ari sem litið hafa dagsins ljós. Þessi aðferðarfræði rennir algjör- lega blint í sjóinn hvað varðar kostnað og tímalengd og er að auki sérlega óskilvirk eins og kom fram strax í upphafi þegar Bláa lónið, sem hefur greitt eigendum sínum um tólf milljarða í arð undanfarin sjö ár, var eitt fyrsta fyrirtækið til að taka þátt. Svona aðgerð er ekki aðeins óskilvirk, þar sem fjölmörg fyrir- tæki sem ekki þurfa á því að halda munu fá launakostnað sinn að stórum hluta greiddan af al- mannafé, heldur er hún einnig ógagnsæ því eftirlit með því hverj- ir sækja um og á hvaða forsendum er ekki til. Sú fullyrðing að þetta þurfi að gera til að þekking tapist ekki úr fyrirtækjunum stenst tæp- lega nema þá í undantekningartil- vikum, því mesta höggið kemur á ferðaiðnaðinn og þar er stærstur hluti vinnuaflsins með þekkingu sem áfram verður til staðar þegar endurreisnin hefst. Auk þess er ómögulegt að segja hvenær þetta ástand endar og þegar búið er að skrúfa frá peningakrananum munu fyrirtækin að sjálfsögðu heimta áframhald þar á. Þessi aðgerð ríkisstjórnarinn er líka undarleg þegar haft er í huga að til staðar eru kerfi sem eru þrautreynd og hafa reynst vel í efnahagslegum niðursveiflum hingað til, en það eru kerfi upp- sagnarfresta þar sem viðkomandi starfsmaður fær full laun út upp- sagnarfrest, í flestum tilvikum þrjá mánuði, og svo kerfi atvinnu- leysisbóta sem tekur við í kjöl- farið. Atvinnuleysisbætur geta numið allt að 441.000 krónum á mánuði í þrjá mánuði og fara svo í 289.000 krónur eftir það og heildartímabilið getur verið allt að þremur árum. Þessi kerfi eru gagnsæ, lögbundin og skilvirk og hafa verið við lýði hér á landi í áratugi. Vissulega munu sum fyrirtæki ekki geta staðið undir greiðslum í uppsagnarfresti og þær greiðslur því lenda á ábyrgðasjóði launa, en fyrirtæki sem hafa ekki borð fyrir báru vegna tekjusamdráttar í þrjá mánuði eru líklega rekin eftir við- skiptalíkani sem hvort eð er geng- ur ekki upp. Það er að þeim tíma loknum sem það kemur þá betur í ljós hvaða fyrirtæki það eru sem vert er að styðja við með opinber- um framlögum, svokölluð lífvæn- leg fyrirtæki. Slík greining yrði milli fyrirtækjanna og viðskipta- banka þeirra og framhaldið yrði svo samvinnuverkefni viðskipta- bankanna og ríkissjóðs. Þau fram- lög sem kæmu frá ríkinu ættu að sjálfsögðu að vera í formi krónu á móti krónu framlags frá eigendum fyrirtækisins annars vegar og rík- inu hins vegar og verða þá að nýju hlutafé sem ríkið gæti svo losað sig við þegar betur árar. Út- greiddur arður fyrri ára hefur náttúrulega ekki horfið og eðlilegt er að eigendur skili hluta hans til baka í formi nýs hlutafjár sem skilyrði fyrir stuðningi ríkisins. Vissulega er svona leið ekki ein allsherjarlausn á öllum vanda enda er slíkt ekki til við þessar aðstæður og það er mikilvægt að þjóðhagslega mikilvægustu fyrir- tækin eins og til dæmis Flugleiðir verði áfram til með sínu starfs- fólki og sérþekkingu. Eins er ekki víst að önnur fyrirtæki nái að safna mótframlagi á móti ríkis- framlaginu, en það þarf þá að taka á því sérstaklega. Fyrirtæki og eigendur þeirra njóta nú þegar mikillar verndar og mikillar vel- vildar gegnum löggjöf um hluta- félög og skattalög og það er óskynsamlegt, óskilvirkt og óþarfi að vernda þau gegn yfirstandandi áföllum með þeim hætti sem fyrir- hugað er. Þar sem eigendurnir eru nú þegar varðir persónulega gegn áföllum með takmörkun á ábyrgð gegnum hlutafélagalögin er það fullkomlega óskynsamlegt að vernda þá líka gegn tapi fyr- irtækjanna með óskilyrtum fram- lögum frá ríkinu. Fyrirtækja- eigendur sem hlaupa hlæjandi í bankann með arðinn sem mun lægri skattur er greiddur af en af venjulegum launatekjum eiga hreinlega enga réttmæta kröfu til að fá vernd ríkissjóðs þegar bjátar á í rekstrinum, þess sjóðs sem að stórum hluta til er fjármagnaður er með skattgreiðslum launafólks- ins. Yfirvofandi efnahagslegt sam- dráttarskeið, jafnvel kreppa, er fordæmalaust, en það hefur líka verið raunin með önnur slík skeið í sögunni. Þess vegna urðu til kerfi uppsagnarfresta og atvinnu- leysisbóta og eftir atvikum skil- virk gjaldþrotalöggjöf. Slíkt fyrir- komulag er þaulreynt, skilvirkt og gagnsætt og ber að nota óbreytt þar til fer að sjást betur fram á veginn með það hvernig þessi vegferð endar. Að öðrum kosti mun gríðarleg seðlaprentun Seðlabankans og skuldsetning ríkissjóðs leiða til jafnvel verri langtíma efnahagslegra afleiðinga þegar upp er staðið. Nýsett löggjöf um gríðarleg framlög úr ríkissjóði til bjargar fyrirtækjum og eigendum þeirra virðist einfaldlega vera van- hugsuð og gerð í óðagoti. Aðferð- arfræðin er óskilvirk, ógagnsæ og óskynsamleg og getur hæglega valdið miklum vandræðum þegar til lengri tíma er litið, byggir að því er virðist á hugsun sem á sér frekar litla stoð í einhverjum efnahagslegum raunveruleika og er í anda þeirrar hugsunar að maskínan haldi áfram að snúast endalaust bara ef bætt er meiri peningum í hana. Það er ekki fjarri hugsuninni og aðferðarfræðinni á bak við síð- ustu ævintýrasiglingu íslenska hagkerfisins hverra einkunn- arorð, sögð með djúpri rödd voru: „Kaupthinking er hugsun sem teygir sig handan venjulegrar hugsunar. Kaupthinking er að hugsa handan hins eðlilega.“ Það fór ekki vel. Það eru nefnilega til efnahagslegar staðreyndir hvað svo sem hver segir. Íslensk hagsaga er mikið til endurtekið efni mistaka sem urðu vegna óðagots, vanþekkingar og óeðlilegrar hagsmunagæslu stjórnvalda. Enn eina ferðina virðist það vera raunin. En kannski er það bara svo að það eina sem við getum lært af sög- unni er að við lærum ekkert af sögunni. „Kaupthinking“ ríkisstjórnar Eftir Þór Saari Þór Saari »Nýsett löggjöf um gríðarleg framlög úr ríkissjóði til bjargar fyrirtækjum og eig- endum þeirra virðist einfaldlega vera van- hugsuð og gerð í óðagoti. Höfundur er hagfræðingur. Mig langar til að deila með ykkur hvernig líf mitt er í dag. Þótt ég sé stundum að sprella við fólk og með brandara á Fa- cebook þá tek ég líf mitt alvarlega. Ég er í 12 spora samtökum og er mikið að vinna í sjálfum mér. Er búinn að vera edrú í rúm níu ár og er í góðum bata. Ég ætla deila með ykkur degi í lífi mínu. Ég vakna hress á morgnana og fæ mér morgunmat og svo hugleiði ég í korter og fer yfir daginn, hvað ég ætla að gera og skipulegg dag- inn. Ég er með dálk í símanum sem ég skíri: Minnisbanki. Þar skrifa ég allt sem ég þarf að muna og gera. Í hugleiðslunni man ég oftast eftir mörgu sem ég þarf að gera og þá teygi ég mig í símann og skrifa það í minnisbankann og held svo áfram í hugleiðslunni og læt símann um að muna. Annars myndi það trufla hugleiðsluna. Öðru hvoru yfir dag- inn skrifa ég í minnisbankann sem ég þarf að muna og gera. Ef það kemur einhverra hluta vegna eyða einhvern tímann á deginum fer ég í minnisbankann og sé hvað ég get gert. Í hugleiðslunni hef ég minnisbankann með þegar ég er að skipu- leggja daginn. Ég reyni að gera hlutina eins fljótt og ég mögulega get og það er alltaf nóg að gera. Þess vegna er ég í bata. Stundum, en það er ekki oft, ákveð ég að gera bara ekkert þann daginn og mér líður bara vel með það. Á sunnudögum geri ég mjög lítið; fer á fund og í nokkrar heimsóknir og er bara að leika mér og það verður maður stundum að gera til að maður fari ekki yfir um. Svo fer ég á fund á hverjum degi í hádeg- inu. Langaði svo að deila þessu með ykkur ef það hjálpar einhverjum. Minnisbankinn og líf mitt í dag Eftir Ragnar Rúnar Þorgeirsson Ragnar Rúnar Þorgeirsson »Er búinn að vera edrú í rúm níu ár og er í góðum bata. Höfundur er eftirlaunaþegi. ragnar.r@simnet.is Atvinna Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja Það er bara best að kynnast mér til að skilja mig betur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.