Morgunblaðið - 15.04.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.04.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020 ✝ VilhjálmurÞórarinn Vil- hjálmsson fæddist í Reykjavík 29. nóvember 1940. Hann lést á Land- spítalan-um 30. mars 2020. Foreldrar Vil- hjálms voru þau Vilhjálmur Jón Þórarinsson, kynd- ari og vörubif- reiðastjóri, f. 11.9. 1897, d. 22.4. 1970, og Guðlaug Jóns- dóttir húsfreyja, f. 17.9. 1901, d. 1.3. 1981. Alsystkin hans eru: Hörður, f. 5. 9. 1929, d. 16 1. 1997, Grétar Þórarinn, f. 7.5. 1932, d. 10.11. 1999, Brynj- ólfur, f. 25.1. 1934, d. 10.8. 2010, Ingi Einar, f. 30.7. 1936, d. 14.2. 2009, og eftirlifandi systirin Marta Vilhjálmsdóttir, f. 6.7. 1942. Samfeðra voru Magnús, f. 13.8. 1918, d. 22.4. 1986, og Kristinn, f. 2.8. 1928, d. 1.3. 1958. Fyrrverandi eiginkona Vil- hjálms var Kristín G. Lár- maki Helgi Valgeirsson, börn: Magnús, Valgeir Theódór og Jóhann Steinar. Sigríður Sveinbjörnsdóttir, f. 31.8. 1952, var gift Aðalgeiri Olgeirssyni, d. 6.4. 2006. Börn: Þóra Ragn- heiður, Ollý Sveinbjörg, Hjalti Már og Elvar Hrafn. Kim Bri- git Sorning, f. 16.12. 1961, maki Guðmundur Baldursson. Börn: Magnús Joachim, Gunn- ar Jón, d. 1.4. 2001, Valdís Klara og Guðmundur Karl. Vilhjálmur bjó fyrstu ár ævi sinnar í miðbæ Reykjavíkur og stundaði nám í Austurbæjar- skóla en seinni árin bjó hann í Kópavogi. Alveg frá fyrstu tíð hafði Vilhjálmur mikinn áhuga á bílum, öðrum farartækjum og akstri og tók hann bæði mótorhjólapróf, bílpróf og meirapróf. Hann starfaði lengst af sem vörubifreiðastjóri bæði hjá Þrótti, Malbikunarstöðinni Höfða og Steypustöðinni en einnig starfaði hann sem véla- maður á fraktskipum hjá Eim- sip og sigldi víða um heiminn. Vilhjálmur verður kistulagð- ur og kvaddur í dag, 15. apríl 2020, en í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Minningarathöfn um Vil- hjálm verður auglýst síðar. usdóttir, húsmóðir og verslunarkona, f. 19.9. 1943, d. 8.1. 2020. Börn þeirra eru: Lára G., f. 29.1. 1961, maki Pálmi Aðalbjörns- son. Börn: Linda Kristín, Hildur, Agnar, d. 2018, Ester Rut og Eva María. Vilhjálmur Þór, f. 24.7. 1963, maki Elsa Kristín Helgadóttir. Börn: Vilhjálmur Þorri, Krist- ófer og Sindri Snær. Hjördís, f. 17.10. 1965, maki Anton Sig- urðsson. Börn: Fannar og Vikt- or. Seinni eiginkona Vilhjálms var Magnúsína Sigurðardóttir, ávallt kölluð Bía, verslunar- og þjónustukona, f. 19.12. 1929, d. 25.9. 2016. Magnúsína eign- aðist fjórar dætur, þær eru: Anna Fríða Ottósdóttir, f. 25.8. 1946, d. 17.2. 2009, maki Vil- hjálmur Ingvarsson, börn: Ottó Valur, Valdís og Ingvar. Klara Sveinbjörnsdóttir, f. 15.7. 1951, Elsku pabbi minn, nú hefur þú kvatt lífið hér og sameinast elsku Bíu þinni sem lést árið 2016. Þú fæddist í 101 Reykja- vík árið 1940 og bjóst þar fyrstu 30 árin þín. Ég er elst þriggja barna þinna og man nokkuð vel eftir fyrstu átta ár- unum á Brekkó með þér og mömmu. Þið giftuð ykkur árið 1963 sama ár og Þór fæddist, Hjördís fæddist svo 1965. Leið- ir ykkar mömmu skildi um haustið 1968 og fluttum við systkinin með mömmu í Foss- voginn. Þú stundaðir akstur lengst af þó með hléi sem þú fórst til sjós á fraktskip sem annar vélamaður. Það var æði oft fiðr- ingur í maga mínum hvað ég fengi í gjöf sérstaklega þegar þú varst að koma frá Banda- ríkjunum, þú keyptir oftast vín- ilplötur með öllum sem voru þá á toppnum, Janis Joplin, Deep Purple, Uriah Heep og Bítl- unum svo eitthvað sé nefnt, ó mæ, hvað það var spennandi að fá þessar geggjuðu plötur. Þú kynnist Bíu þinni árið 1978 ég man glampann í aug- unum á þér yfir dömunni sem þú eyddir svo næstu 40 árum með. Þið bjugguð í Ljósheimum og síðan fram til kveðjustundar í Kópavoginum. Árið sem elsku Bía veiktist kynntumst við má segja upp á nýtt við sárar að- stæður að líkna ástinni þinni, fyrst heima, síðan á líknardeild- inni. Þar sýndir þú svo sann- arlega ást þína og væntum- þykju til hennar þó að þú hefðir ekki mörg orð um ástina yfir höfuð. Þú misstir mikið þegar Bía kvaddi eftir æðrulausa bar- áttu við krabbamein. Bía var ekki bara eiginkonan þín heldur besta vinkona. Lífið hjá þér varð þögult og heilsan fór að gefa sig hjá þér. Má segja að þér hafi þótt það eiginlega búið á köflum. Í mars 2017 bauðstu mér til La Palma, einnar fegurstu eyju sem ég hef komið til. Þar dvöldum við á fjögurra stjörnu hóteli með allri þjónustu inni- falinni, mat, drykk og skemmt- un. Garðurinn, sem var eins og í ævintýri, var byggður í brekk- um frá hóteli niður að kletta- strönd. Íslendingar með okkur voru fljótir að sjá það skemmti- lega við þig og safnaðist hópur fólks ætíð þar sem þú varst. Heilsan þín í túrnum var mis- góð, þrekið stundum lítið, enda kom það í ljós nokkrum vikum eftir heimkomu þegar þú fékkst hjartstopp á heilsugæslunni í Kópavogi. Þá varst þú staddur á réttum stað. Þú náðir þér þokkalega. Á þessum þremur árum átt- um við í nokkuð góðum sam- skiptum, þó ekki árekstra- og sáraukalausum. En mér og okkur tókst að komast yfir þann tíma og ná sáttum sem er mér mjög dýrmætt og er þakk- arvert. Elsku pabbi, mér fannst þú stundum mjög erfiður og nei- kvæður sem var svo særandi, ástæða sennilega að þú naust lífsins ekki mjög vel eftir að ástin þín kvaddi. Síðustu vik- urnar heyrðumst við oftar nán- ast á hverjum degi og svo með daglegu innliti síðustu vikuna á heimili þínu í Vogatungunni. Það dró mjög hratt af þér eftir greiningu á krabbameini í febrúar, meinið tók rödd þína sem var þér afar þungbært að geta ekki talað, aðeins hvíslað. Þú dvaldir í viku á LSH krabbameinsdeild á tímum CO- VId-19 sem ekki var hægt að heimsækja þig, við fengum þó þrjú systkinin að eiga síðasta daginn með þér og vera hjá þér þar til yfir lauk. Hvíl í friði, elsku pabbi, viltu knúsa Agnar minn frá mér. Elska þig, þín dóttir Lára. Málið er að þiggja kærleikann, meðtaka hann af þakklæti og lifa honum. Með því að finna honum farveg, koma honum áfram svo fleiri fái notið hans. Kærleikurinn er tær, hann er heill, honum fylgir sannleikur og frelsi, umhyggja og umburðarlyndi, von og traust, ábyrgð og agi. (Sigurbjörn Þorkelsson) Nú kveð ég þig í hinsta sinn, pabbi minn. Ég veit að þú gerð- ir þitt besta. Allar góðar minn- ingar geymi ég í hjarta mínu. Þinn sonur Þór. Það er sérstök upplifun að hafa leitt pabba minn inn í ei- lífðina. Sjá hann og heyra taka sinn allra síðasta andardrátt, finna hann kólna og átta sig á að hann er dáinn, vona að það sé ekki rétt og að annar and- ardráttur komi, kalla á hjálp en fá það svo staðfest að hann hafi kvatt. Pabbi var almennt heilsu- hraustur og vann fulla vinnu fram yfir sjötugt og í afleys- ingum síðustu starfsárin. Þegar seinni kona hans og stjúpa mín Bía, kvaddi 2016, fór heilsu hans að hraka. Hann var með lungnasjúkdóm og fékk hjarta- stopp 2017 en jafnaði sig þokkalega á því og fékk síðar gangráð. Hann var svo greind- ur með krabbamein í lungum og nýra 29. febrúar sl. og eftir það fór að draga hratt úr kröft- um hans. Lungnabólga varð þess valdandi að hann var flutt- ur á LSH og dvaldi hann þar í viku og illa gekk að vinna bug á henni. Enginn mátti heimsækja hann vegna heimsóknarbanns. Ástand hans versnaði snögg- lega og var þá systur minni, bróður og mér, leyft að fara til hans. Klukkan 02.55 aðfaranótt 30. mars kvaddi hann og ég hélt fast í höndina á honum og kleip og sú hugsun skaust í gegnum huga minn að ég gengi með honum upp til himins á meðan ég sagði við hann í hug- anum: „Pabbi minn, þú þarft ekki að vera hræddur, þetta verður allt í lagi, Bía bíður eftir þér og tekur á móti þér, Lára er hér líka og ég held í höndina á þér.“ Og svo bara hætti hann að anda, líkt og hann hefði beðið eftir að ég leiddi hann upp. Það tekur í hjartað að kveðja að ei- lífu og ég hef grátið um leið og ég hef hugsað með þakklæti fyrir fullt af góðum minningum. Þið mamma skilduð þegar ég var þriggja ára og það var mér erfitt, mér fannst þú alltaf vera akkerið mitt og halda vernd- arhendi yfir mér. Að fá að fara með þér um borð í stóru frakt- skipin, sem þú sigldir með um öll heimsins höf, eins og pabbi hennar Línu Langsokks. Þegar þú komst með amerískt kóka kóla í dós og nammi handa mér og allskonar hluti frá Ameríku, styttu af Empire State, penna- veski merkt Boston, þangað sem þig langaði til að hafa mig með í siglingu til en aldrei varð. Þökk sé nokkrum sopum af þeim undradrykk þá hresstist þú í smá tíma og nóg til þess að við systkin fengum svo dýr- mæta samverustund með þér síðasta daginn þinn. Mér verður hugsað til stíf- bónuðu vörubílana þinna og allra túranna með þér í þeim. Minninguna þegar þú hélst á sonum mínum í fyrsta sinn uppi á fæðingardeild, hvað þú ljómaðir af stolti og gleði, hnusaðir strax í litla hárið þeirra, sem var þín leið að segja: „Ég elska ykkur.“ Það sama gerðir þú alltaf við mig í æsku og ég fann þannig og vissi að þú elskaðir mig. Oft leið mér samt illa að hafa ekki orðið við bón þinni til mín um að skíra þá í höfuðið á þér, þó að vissulega eigi þeir falleg nöfn. Ég man öll skiptin í gegnum árin sem við fjöl- skyldan komum til ykkar Bíu í dýrindis mat og oft fórum við svo og völdum mynd saman í Snælands vídeó. Það var oft snúið því þú varst búinn að sjá þær flestar enda varstu mikill áhugamaður um góðar bíó- myndir alla tíð. Að ógleymdum öllum bíóferðunum í æsku minni þar sem þú bauðst okk- ur svo oft og popp og kók með. Með miklum hlýhug hugsa ég til þess þegar þið Bía komuð og heimsóttuð okkur til Sví- þjóðar 1990. Eitt af mörgu sem við gerðum saman var að þið buðuð okkur Eyjó, pabba sona minna, á jólahlaðborð og dansleik á eftir. Þú bauðst mér í dans og ég klunnaleg í spori og sagðir: „Þetta er nú bara eins og að dansa við kústskaft.“ Svo dansaðir þú við Bíu þína og hún á pinna- hælum, flaug um gólfið með þér eins og ekkert væri, enda dönsuðuð þið mikið í gegnum árin. Ég mun sakna óteljandi heimsókna þinna og símtala sem hófust alltaf á: „Hæ, er eitthvað nýtt eða títt?“ Ég elska þig og á eftir að sakna þín og mun varðveita minningu þína og heiður og passa Elvis Presley-klukkuna sem þú vildir að ég fengi að eiga. Enda hann einn af þínum uppáhalds og þú hefur alltaf minnt mig á hann, myndarlegur töffari og hálf amerískur á margan hátt. Bía heldur áfram að dekra við þig, dedúast og snurfusa, og ég kem svo í mat til ykkar þegar minn tími kem- ur. Bless pabbi minn, þín Hjördís (Hjödda). Þá er hann tengdapabbi minn farinn yfir móðuna miklu. Fyrsta minning mín um Villa var þegar hann kom með möl í bílaplanið við heimili mitt árið 1983 og ekki vissi ég þá að síðar yrði dóttir hans, sem ég kynntist hér í húsinu árinu áð- ur, konan mín og hann tengda- pabbi minn. Það má segja að hann hafi lagt traustan grunn að lífi og framtíð okkar Hjöddu minnar, með þessari möl, því hér búum við enn. Þetta þótti mér skondið að rifja upp við hann, þegar ég svo kynntist honum árið 2012. Það var ávallt gott að heim- sækja hann og einnig áður á meðan Bía lifði. Alltaf rólegur í viðmóti og fasi og mjög ræð- inn. Við ræddum oft um bíla, þekking hans var góð og sér- staklega á amerískum bílum og áhugi hans á þeim leyndi sér ekki, enda átt nokkra góða sjálfur í gegnum árin. Marga af þeim fjölmörgu kostum sem dóttir þín á; hrein- skilni hennar, sannleikur og heiðarleiki, hefur hún augljós- lega erft frá þér og það var ég fljótur að sjá eftir kynni mín við þig. Og nú þegar ég læt hugann reika á páskadags- morgni, fékk ég þennan máls- hátt í páskaeggi frá henni: „Af hreinu bergi kemur hreint vatn,“ og það er alveg rétt og passar vel við. Bæði segið þið hlutina eins og þeir eru og um- búðalaust. Mér þótti þú aldrei vera neitt gamall, hvorki í fram- komu, hugsun né í tali og laus við alla sýndarmennsku og yf- irlæti, kostir sem þið bæði hafið og ég met mikils og virði og er þakklátur fyrir. Kveð þig með söknuði, þinn tengdasonur, Anton. Vilhjálmur Vilhjálmsson Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG ÞÓRUNN HERVARSDÓTTIR, Hraunbæ 111, Reykjavík, lést laugardaginn 11. apríl. Vegna ástandsins í samfélaginu fer útförin fram í kyrrþey. Leifur Ásgrímsson Rúnar Garðarsson Rochell Garðarsson Linda Hildur Leifsdóttir Óskar Sigvaldason ömmubörn og langömmubörn Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Deildartungu, Birkigrund 63, lést á Hrafnistu við Sléttuveg aðfaranótt mánudagsins 13. apríl. Útför hennar mun fara fram í kyrrþey, en minningarathöfn verður haldin síðar. Jón Finnbjörnsson Erla S. Árnadóttir Guðrún Hrönn Jónsdóttir Birna S. Jónsdóttir barnabarnabörn Ragnheiður Jónsdóttir Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og vinur, ÞORSTEINN PÉTURSSON tryggingasölumaður, er látinn. Kistulagning með nánustu aðstandendum fór fram miðvikudaginn 8. apríl. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður útför auglýst síðar. Þökkum hlýhug og góðar kveðjur. Aðstandendur Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði. Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur um birtingu á minningargreinum. Minningargreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð og samhug. Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í kyrrþey. Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningar- greina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins. Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Birting minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.