Morgunblaðið - 15.04.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020
Körfuknattleiksmaðurinn Nikolas
Tomsick hefur skrifað undir samning
við Tindastól og mun leika með liðinu
á næstu leiktíð. Tomsick hefur leikið á
Íslandi síðustu tvö tímabil; fyrst með
Þór Þorlákshöfn og síðan Stjörnunni.
Leikmaðurinn er uppalinn í Bandaríkj-
unum en hann er einnig með króatískt
vegabréf. Tomsick skoraði 20,1 stig að
meðaltali í leik í vetur og gaf auk þess
5,1 stoðsendingu og tók 3 fráköst.
Hefur hann verið á meðal bestu leik-
manna landsins undanfarin tvö ár.
Belgíski knattspyrnumaðurinn
Marouane Fellaini, sem áður lék m.a.
með Manchester United, var útskrif-
aður af sjúkrahúsi í Kína í gær eftir að
hafa verið þar í þrjár vikur í kjölfar
þess að hafa smitast af kórónuveir-
unni.
Ítalskir fjölmiðlar fullyrða að
sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan
Ibrahimovic íhugi nú alvarlega að
ljúka ferli sínum sem leikmaður með
Hammarby í Stokkhólmi, þar sem
hann yrði samherji Arons Jóhanns-
sonar. Zlatan gerðist fyrr í vetur með-
eigandi í Hammarby og hefur hann æft
með liðinu undanfarið til að halda sér í
formi. Er hann samningsbundinn AC
Mílan.
Athafnakonan Amanda Staveley er
langt komin með kaup sín á enska úr-
valsdeildarfélaginu Newcastle af Mike
Ashley. Ashley hefur verið eigandi fé-
lagsins síðustu 13 ár, við litla hrifningu
stuðningsmanna þess. Er kaupverðið
um 310 milljónir punda.
Þýski knattspyrnumarkvörðurinn
Loris Karius er vongóður um að fá
framtíðarsamning hjá Besiktas í Tyrk-
landi, þar sem hann hefur verið í láni
frá Liverpool í tvö ár, og ætlar að
freista þess að fá forráðamenn Liver-
pool til að leyfa sér að fara frá félaginu
án greiðslu.
Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur
tilkynnt að Halldór Karl Þórsson muni
þjálfa meistaraflokk karla og kvenna
hjá félaginu. Þá verður hann einnig
yfirþjálfari yngri flokka. Halldór hefur
þjálfað meistaraflokk kvenna undan-
farin tvö ár og þá var hann aðstoðar-
þjálfari Fals Harðarsonar hjá meist-
araflokki karla á þessari leiktíð, en
Falur hefur yfirgefið félagið. Fjölnir
mun leika í efstu deild kvenna á næstu
leiktíð, þar sem liðið var í efsta sæti
þegar tímabilinu var aflýst, og fer upp
um deild á kostnað Grindavíkur. Karla-
liðið leikur hins vegar í 1. deild á næstu
leiktíð, þar sem það féll úr efstu deild.
Enska knattspyrnufélagið Everton
ætlar sér að selja landsliðsmanninn
Gylfa Þór Sigurðsson þegar fé-
lagaskiptaglugginn verður opnaður.
Liverpool Echo greinir frá því að Ever-
ton sé tilbúið að selja Gylfa fyrir 20
milljónir punda.
Miðilinn telur að
áhrif
kórónuveiru-
faraldursins
muni hafa
áhrif á sölu-
verð Gylfa og
því sé líklegt
að Everton
biðji ekki um
hærri upphæð fyrir
leikmanninn sem
hefur ekki náð að
sýna sitt rétta andlit á
tímabilinu.
Eitt
ogannað
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Handknattleikskonan Steinunn
Björnsdóttir varð á dögunum
deildarmeistari í fyrsta sinn á ferl-
inum með uppeldisliði sínu Fram.
Framarar voru með fimm stiga for-
skot á toppi úrvalsdeildarinnar, Olís-
deildarinnar, þegar ákveðið var að
blása tímabilið af vegna kórónuveiru-
faraldursins sem nú herjar á heims-
byggðina.
Steinunn, sem er 29 ára gömul,
hefur verið fyrirliði Fram undanfarin
ár en hún hóf meistaraflokksferil
sinn árið 2009 og á að baki rúmlega
300 leiki fyrir félagið. Framkonur
hafa verið nánast óstöðvandi á tíma-
bilinu, en liðið varð bikarmeistari í
byrjun mars eftir stórsigur gegn KA/
Þór í úrslitum í Laugardalshöll.
Rétt ákvörðun
Liðið stefndi því hraðbyri að fyrstu
þrennu sinni þegar ákveðið var að
blása tímabilið af, en liðið hefur aldrei
unnið þrefalt áður. Framkonur unnu
hins vegar tvöfalt tímabilið 2018 en
þá mistókst liðinu að verða deildar-
meistari. Þá unnu Framkonur átta
sinnum tvöfalt, Íslandsmótið og bik-
arkeppnina, á árunum 1978 til ársins
1990 en þá var ekki um úrslitakeppni
að ræða og möguleiki á þreföldum
sigri því ekki til staðar.
„Auðvitað var þessi ákvörðun um
að aflýsa tímabilinu gríðarlega
svekkjandi en á sama tíma skilur
maður hana fullkomlega,“ sagði
Steinunn í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Satt best að segja átti maður
von á því að mótinu yrði aflýst. Miðað
við það sem er að gerast í heiminum
og hvernig yfirvöld hafa tekið á því
kom í raun ekkert annað til greina en
að slaufa mótinu.
Á sama tíma hélt maður líka alltaf í
smá von um að það yrði bara spilað í
sumar þar sem öll plön eru hvort sem
er farin út um gluggann. Með tilliti til
aðstæðna er lítið um plön hjá fólki í
sumar og því hefði kannski verið
hægt að spila einhverja leiki á þeim
tíma. Á móti kemur samt að fólk
hefði líklegast ekki mætt á leikina og
reynt að halda sig frá öllum fjölda-
samkomum þannig að þetta var erfið
ákvörðun að taka en rétt ákvörðun að
mínu mati.“
Meistari í fyrsta sinn
Framkonur hefðu getað tryggt sér
deildarmeistaratitilinn 13. mars
síðastliðinn með sigri gegn Stjörn-
unni í Framhúsi í 20. umferð deildar-
keppninnar. Leiknum var hins vegar
frestað vegna kórónuveirunnar en
Steinunn ítrekar að þótt Framliðinu
hafi verið dæmdur sigur í deildinni í
vetur hafi liðið átt bikarinn full-
komlega skilinn.
„Svona var bara staðan og maður
verður að bera virðingu fyrir þessari
niðurstöðu enda ekki annað hægt. Á
sama tíma er þetta líka sárt þar sem
við vorum að eiga besta tímabil okkar
í mjög langan tíma. Framliðið í vetur
hefur verið eitt best spilandi kvenna-
lið landsins í langan tíma og það var
því leiðinlegt að geta ekki landað
deildarmeistaratitlinum á formlegan
hátt. Handbolti er hins vegar bara
handbolti og það er meira í húfi núna.
Að verða deildarmeistarar á þenn-
an hátt var vissulega skrítin tilfinn-
ing en á sama tíma fannst mér við
eiga sigurinn fullkomlega skilinn. Við
vissum að við værum að fara að vinna
þennan deildarmeistaratitil og önnur
lið vissu það líka. Það er þess vegna
mikilvægt að við séum allar stoltar af
árangri okkar í vetur því eins og ég
horfi á þetta unnum við þennan titil,
og við unnum fyrir honum líka, þótt
mótið hafi ekki klárast.“
Sigurvegarar tímabilsins
Flestir höfðu spáð Framkonum Ís-
landsmeistaratitlinum í vor og var
liðið á góðri leið með að vinna þrefalt í
ár eftir sigur í deildinni og bikar-
keppninni. Steinunn viðurkennir að
það hafi verið eitt af markmiðum liðs-
ins fyrir tímabilið en ítrekar að leik-
menn liðsins séu nú þegar byrjaði að
hugsa til næstu leiktíðar.
„Við vorum klárlega byrjaðar að
hugsa fram á vorið og hvað við hefð-
um getað afrekað. Við erum hins veg-
ar ríkjandi bikar- og deildar-
meistarar og komum því út úr þessu
tímabili sem sannir sigurvegarar þótt
okkur hafi ekki tekist að landa
stærsta titlinum. Við lögðum gríðar-
lega mikið á okkur fyrir tímabilið og
stemningin og andinn í liðinu hefur
verið frábær í allan vetur. Við vorum
rétt að byrja þegar við urðum bikar-
meistarar og ég er stolt af öllum í
kringum liðið og félagið eftir þetta
tímabil og lít alls ekki svo á að það
hafi farið í súginn.
Núna tekur bara undirbúningur
fyrir næsta tímabil við og við erum
allar staðráðnar í að gera jafn vel og á
þessari leiktíð. Ég finn fyrir miklum
eldmóð í hópnum fyrir næsta tímabili
og það að önnur lið í deildinni hafi
verið að styrkja sig mikið hefur í raun
bara eflt okkur til þess að gera enn
betur í Safamýrinni. Við vorum særð-
ar eftir síðasta tímabil og þetta tíma-
bil fer eins og það fer þannig að við
verðum stórhættulegar næsta vet-
ur.“
Innstillt á landsleikina
Eins og staðan er í dag leikur ís-
lenska kvennalandsliðið við Tyrkland
í undankeppni EM 2020, heima og
ytra, í byrjun júní en nákvæm dag-
setning fyrir leikina hefur ekki verið
ákveðin. Steinunn á ekki von á því að
þessir leikir fari fram en æfir þó eins
og hún sé að spila mikilvægan lands-
leik í júní.
„Ég hef æft vel og reglulega í þess-
ari pásu og æfingalega séð er maður
bara í mjög góðum gír. Eins og stað-
an er í dag finnst manni ólíklegt að
leikirnir gegn Tyrkjum verði í júní.
Það er hins vegar mikilvægt að mað-
ur sé innstilltur á það að vera að fara
að spila þessa leiki. Það er því mik-
ilvægt að halda sér í formi og hafa
eitthvað til að stefna að enda er langt
í næsta tímabil byrji. Við í landsliðinu
þurfum að standa saman núna og
halda okkur í eins góðu standi og
mögulegt er,“ bætti Steinunn við í
samtali við Morgunblaðið.
Stórhættulegar næsta vetur
Steinunn Björnsdóttir og samherjar í Fram misstu af möguleikanum á fyrstu
þrennunni þegar tímabilinu var hætt Stolt af félaginu og tímabilinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bestar Steinunn Björnsdóttir fagnaði vel eftir sigur í bikarkeppninni, en
Fram vann 21 af 22 leikjum sínum í deild og bikar á tímabilinu.
Landsliðskonan Þórey Anna Ás-
geirsdóttir hefur skrifað undir
tveggja ára samning við handknatt-
leiksdeild Vals. Kemur hún til fé-
lagsins frá Stjörnunni, þar sem hún
hefur leikið síðustu þrjú tímabil.
Þórey skoraði 62 mörk í tólf leikj-
um í Olísdeildinni á leiktíðinni og
var einn allra besti leikmaður
Stjörnunnar, sem var í þriðja sæti
þegar tímabilið var blásið af í síð-
ustu viku. Þórey varð Íslandsmeist-
ari með Gróttu árið 2016 og hefur
spilað 23 landsleiki. Hefur hún
einnig leikið með FH hér á landi.
Þórey Anna
samdi við Val
Morgunblaðið/Eggert
Valskona Þórey Anna Ásgeirs-
dóttir er gengin í raðir Vals.
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar
í franska félaginu París SG voru í
gær úrskurðaðir franskir meistarar
í handknattleik karla árið 2020 þeg-
ar ákveðið var að binda enda á tíma-
bilið þar í landi.
Átján umferðir höfðu verið leikn-
ar af 26 en PSG er með sex stiga for-
skot á Nantes á toppnum og hefur
unnið 17 leiki og gert eitt jafntefli í
átján leikjum.
Guðjón Valur hefur með þessu
orðið meistari í fjórum löndum á
ferlinum en hann hefur áður unnið
meistaratitlana á Spáni (Barcelona
2015 og 2016), í Þýskalandi (Kiel
2013 og 2014, RN Löwen 2017) og
Danmörku (AG 2012), samtals sjö
meistaratitla í fjórum sterkustu
deildum heims.
Líklegt er að Guðjón Valur hafi
þegar leikið sinn síðasta leik fyrir
PSG en eins árs samningur sem
hann gerði við félagið á síðasta ári
rennur út í sumar. Hann verður 41
árs í ágúst.
Um leið eru Geir Guðmundsson
og félagar hans í Cesson-Rennes
komnir upp í 1.
deild, efstu deild-
ina, en þeir voru
úrskurðaðir sig-
urvegarar í B-
deildinni eftir að
hafa verið með
tveggja stiga for-
skot þegar átta
umferðir voru
eftir.
Liðum í 1. deild
er fjölgað úr fjórtán í sextán fyrir
næsta tímabil, ekkert lið fellur en
Cesson Rennes og Limoges bætast
við. Lið Tremblay og Créteil sleppa
fyrir horn og halda sætum sínum
meðal þeirra bestu en þau voru illa
stödd í fallsætum 1. deildarinnar.
Endanleg ákvörðun með frönsku
kvennadeildirnar liggur ekki fyrir.
Þó hefur þegar verið ákveðið að ekk-
ert lið falli úr efstu deild og tvö lið
bætist við. Bourg-De-Péage, lið
Hrafnhildar Hönnu Þrastardóttur,
og Toulon, lið Mariam Eradze, eru
þar með örugg með að halda sætum
sínum en bæði voru í fallhættu.
Guðjón Valur
Sigurðsson
Guðjón Valur meistari í fjórða landinu
Óvíst er að hægt verði að ljúka um-
spilinu fyrir EM karla í knattspyrnu á
þessu ári en lokakeppninni var frest-
að til sumarsins 2021. Ísland á þar eft-
ir að mæta Rúmeníu og síðan mögu-
lega Búlgaríu eða Ungverjalandi í
leik um sæti á EM. Kanadamaðurinn
Victor Montagliani, stjórnarmaður í
FIFA, sagði við bandaríska fjölmiðla í
gær að í forgangi væri að klára
deildakeppnir. Vegna þess og ferða-
takmarkana sem ættu eftir að vera í
gildi lengi enn væri ólíklegt að lands-
leikir færu fram fyrr en í fyrsta lagi í
lok þessa árs.
Engir fleiri lands-
leikir á árinu?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EM Íslenska landsliðið þarf að bíða
lengi enn eftir umspilinu.