Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1. A P R Í L 2 0 2 0
Stofnað 1913 93. tölublað 108. árgangur
ANNA LEGGUR
SKÓNA Á
HILLUNA
ŠKODA
SUPERB
PRÓFAÐUR
GUÐMUNDUR
ANDRI SENDIR FRÁ
SÉR SÓLÓPLÖTU
BÍLAR 8 SÍÐUR ANGURVÆRT 28HANDBOLTI 26
Nú er hún Snorrabúð stekkur, orti listaskáld-
ið um fallandi frægð Þingvalla og víst er
margt þar nú með breyttum brag frá því sem
var. Venjulega er iðandi líf á svæðinu og
ferðamenn í þúsundatali þar daglega. Einn
ferðalangur stóð á Hakinu í gær og virti fyrir
sér ágætt útsýnið þar á annars regnvotum
vordegi. Þjónustumiðstöð og gestastofa á
Þingvöllum hafa verið lokuð síðan samkomu-
bann gekk í gildi, en verða opnuð 4. maí næst-
komandi og er þess þá vænst að ferða-
mönnum fari aftur að bregða fyrir.
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamaður í rigningu á Hakinu á Þingvöllum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vegna gerbreyttrar stöðu í atvinnu-
lífinu skoða fulltrúar launþega leiðir
til að gera fyrirtækjum kleift að
hækka laun þrátt fyrir mikið fall í
eftirspurn vegna faraldursins.
Samkvæmt lífskjarasamningun-
um hækka laun í fjórum lotum.
Hægt verður að endurskoða samn-
ingana í september næstkomandi.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir óraun-
hæft að hækka laun næstu áramót.
Leiðir til meira atvinnuleysis
„Það segir sig sjálft að launa-
hækkun ofan í þessar hamfarir er
eins og að hella olíu á eld. Hún væri
til þess fallin að auka atvinnuleysi og
hægja enn frekar á viðspyrnu at-
vinnulífsins,“ segir Halldór.
Hækkunin var hluti af lífskjara-
samningunum. Önnur hækkun af
fjórum verður greidd næstu mán-
aðamót. Sú þriðja er áformuð um
næstu áramót. Með því hafa almenn
laun hækkað um tæp 51 þúsund og
taxtalaun um 65 þúsund síðan samn-
ingarnir tóku gildi í apríl í fyrra.
Niðursveifla var þá hafin í íslensku
efnahagslífi sem hefur dýpkað enn
frekar vegna kórónuveirufaraldurs-
ins.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir félagið ekki munu afsala
sér launahækkunum heldur reyna að
ná þríhliða samningi milli stjórn-
valda, atvinnulífsins og verkalýðs-
hreyfingarinnar svo þær geti gengið
eftir. M.a. megi skoða að lækka
tryggingagjald tímabundið. Þá þurfi
samningsaðilar að sammælast um að
halda aftur af verðlagshækkunum.
Vilja verja samningana
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir
ákveðið uppgjör fram undan þegar
endurskoðunarákvæði samninganna
virkjast í september. „Ég hef hins
vegar unnið út frá því að lífskjara-
samningarnir haldi og að samnings-
aðilar reyni að róa öllum árum að því
að svo verði,“ segir Drífa.
Launahækkanir eins
og að hella olíu á eld
SA telja þær óraunhæfar Rætt um mótvægisaðgerðir
MRætt um mótvægisaðgerðir … »12
Morgunblaðið/Golli
Áskorun Laun hækka nú í niður-
sveiflu og sögulegu atvinnuleysi.
Hugmyndir eru uppi um ammon-
íaksframleiðslu við væntanlega
stórskipahöfn í Finnafirði á Norð-
austurlandi. Samhliða þróun á
verksmiðjum til að framleiða vetni,
súrefni og ammoníak er unnið að
könnun á möguleikum þess að
framleiða raforku til þessara nota í
vindorkuverum. Sex hugsanlegir
staðir fyrir vindorkuver sem fram-
leitt gætu 640 megavött hafa verið
tilkynntir til mats í rammaáætlun.
Ammoníakið yrði flutt með tank-
skipum á markað þar sem þörf er á
grænu eldsneyti á skip. Veðjað er á
að ammoníak verði framtíðar-
eldsHneyti fyrir skipaflota heims-
ins. Súrefnið sem til fellur verður
notað í fiskeldi á landi. »6
AFP
Flutningar Veðjað er á að ammoníak verði
eldsneyti fyrir skipaflota heimsins.
Ammoníak verði
framleitt í Finnafirði
„Það er bókstaflega verið að borga
fólki fyrir að afhenda ekki olíu,“
segir Gylfi Magnússon, viðskipta-
fræðingur og dósent við Háskóla Ís-
lands, um sögulegt verðhrun banda-
rískrar hráolíu í gær. Í viðtali við
mbl.is sagði Gylfi að engin fordæmi
væru fyrir slíkri stöðu á olíumarkaði.
Verð á bandarískri hráolíu, West
Texas Intermediate, sem afhenda á í
næsta mánuði var í frjálsu falli í gær.
Tunna af hráolíu kostaði aðeins 0,01
dollara um klukkan 18 síðdegis en
aðeins nokkrum mínútum síðar var
verðið komið í -11,42 dollara og í
gærkvöldi var verðið komið niður í
-37,45 dollara. Þetta merkir að fram-
leiðendur þurfa að greiða fyrir að af-
henda olíu, sem hefur ekki gerst frá
því að hráolíuverð var fyrst skráð á
NYMEX-hrávörumarkaðnum í New
York árið 1983.
Sökum kórónuveirufaraldursins
er birgðastaða olíu víða að fyllast og
eftirspurnin lítil sem engin.
Ekki er um að ræða Brent-olíu
sem notuð er á evrópskum mörk-
uðum.
Sögulegt
verðhrun
hráolíu