Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020
www.flugger.is*Tilboðið gildir frá 6.-30. apríl 2020 á meðan birgðir endast á öllum
stærðum og gljástigum af áðurnefndum vörum í tilboðinu
Langar þig að lakka
glugga, húsgögn eða
innréttingar?
Flügger Interior Fix Primer og Interior
High Finish leysir það verkefni með þér. 30%
afsláttur
út apríl*
Fyrir helgi komu út sjö barnabæk-
ur hjá Forlaginu. Ein útgefin í
fyrsta skipti en aðrar fyrir löngu
orðnar klassík verk sem hafa verið
uppseld á markaði. Í tilkynningu
segir að „um sé að ræða lítið barna-
bókaflóð sem ætti að gleðja for-
eldra fyrir sumardaginn fyrsta.
Bækurnar henta börnum á mismun-
andi aldri og eru margar hverjar sí-
gildar bækur sem hafa ekki fengist
í lengri eða skemmri tíma.“
Skólaráðgátan eftir Martin Wid-
mark er ný viðbót við Spæjarastofu
Lalla og Maju en bókin hentar vel
fyrir krakka sem vilja æfa lesturinn
enda er letrið stórt og setningar
stuttar. Aðrar bækur sem komu út
teljast endurútgáfur.
Allt í plati er fyrsta bók Sigrúnar
Eldjárn og kom fyrst út fyrir 40
árum.
Tvær bækur um Emmu og Tuma
eftir Gunilla Wolde eru endur-
útgefnar: Emma og litli bróðir og
Tumi ætlar út. Í meira en fjóra ára-
tugi hafa bækurnar um Tuma og
Emmu sýnt íslenskum börnum og
foreldrum þeirra töfrana í hvers-
deginum.
Vísnabókin kom fyrst út árið
1946 en með tímanum var aukið við
hana bæði vísum og teikningum
sem hafðar eru með í þessari nýju
og fallegu útgáfu. Vísnabókin hefur
verið ófáanleg um hríð.
Sagan af Dimmalimm eftir Guð-
mund Thorsteinsson – Mugg – kom
fyrst út árið 1942 en fáar íslenskar
barnabækur hafa notið viðlíka vin-
sælda og ævintýrið um litlu prins-
essuna.
Sígilda sagan Fólk og ræningjar í
Kardemommubæ eftir Thorbjörn
Egner er síðan endurútgefin í til-
efni uppsetningar Þjóðleikhússins á
leikritinu en þessi saga um fjöl-
skrúðugt mannlíf í Kardemommu-
bæ hefur glatt margar kynslóðir Ís-
lendinga.
Sjö barnabækur
komnar á markað
Ein ný og aðrar orðnar klassískar
Dimmalimm Teikning úr sígildu og
endurútgefnu ævintýri Muggs.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég steinhætti allt í einu að skrifa
skáldsögur fyrir nokkrum árum –
ekki viljandi, heldur hvarf mér gáf-
an og ég hef aldrei viljað kreista
neitt upp úr mér. Hins vegar fór
ég að iðka það að setja saman lög
þá sjaldan að stopular stundir gáf-
ust í slíkt: sat kannski í sófa yfir
einhverri vitleysu í sjónvarpinu,
helst Barnaby, með gítar og
hummaði einhverjar lagleysur yfir
alls konar hljómagang meðan ég
fylgdist með einstaklega óáhuga-
verðum framgangi mála á skjánum.
Stundum small eitthvað og allt í
einu tilbúið lag. Og ég get sagt
eins og allir stoltir fúskarar: ég
veit bara ekkert hvaðan það kom!“
skrifar þingmaðurinn, rithöfundur-
inn og söngvaskáldið Guðmundur
Andri Thorsson á fésbókarsíðu sína
um tilurð fyrstu sólóplötu sinnar,
Ótrygg er ögurstundin, sem
væntanleg er um mánaðamót.
Guðmundur Andri er enginn ný-
græðingur þegar kemur að tónlist,
hefur verið einn liðsmanna Spaða
um árabil en ekki gefið út plötu
einn síns liðs fyrr en nú.
Gott að kúpla sig út
Blaðamaður er sammála Guð-
mundi Andra þegar kemur að
Barnaby, finnst þættirnir óttalega
leiðinlegir en hann bendir á já-
kvæða hlið þeirra leiðinda, að nota-
legt geti verið að horfa á leiðinlegt
sjónvarpsefni eftir erfiðan vinnu-
dag eða -viku. „Eitthvað sem höfð-
ar ekki á neinn hátt til manns,“
segir hann, „og þá hef ég stundum
setið með gítar í hönd og raulað
eitthvað yfir einhverjum hljóma-
gangi sem maður fer að spila.
Síðan verður bara til eitthvert lag,
allt í einu.“
Angurvær og frekar blíðleg
–Hvernig söngvaskáld ertu?
„Þetta er svolítið angurvært,
hljóðlátt og hægt. Ég er svo léleg-
ur gítarleikari, spila mjög hægt á
gítarinn og því verða lögin öll frek-
ar hæg og angurvær, frekar blíð-
leg. Það er frekar blíðleg stemning
í þessari músík og hún er ekkert
flókin og ekki mikið áreiti í henni.
Hún er frekar þægileg að hlusta
á,“ svarar Guðmundur Andri.
–Hvað ertu að semja um? Um
hvað eru textarnir?
„Ég er að semja um ástina og
hverfulleika alls, eru ekki allir
textar um það? Ástina, dauðann og
hverfulleikann?“ spyr söngvaskáld-
ið og blaðamaður segir það líklega
rétt athugað.
Guðmundur Andri segir lögin
hafa komið á undan textunum,
hann hafi fundið einhverja texta
sem pössuðu við lögin. „Þá fór ég
oft í gömul þjóðkvæði og fann þar
stef sem ég prjónaði í kringum,
það er oft þægilegt að hafa eitt-
hvað til að prjóna við. Þannig að
það eru dálítið mörg þannig lög,
prjónuð í kringum gömul þjóð-
kvæðastef.“
Góðar viðtökur
–Svo ég vitni aftur í textann
þinn á Facebook þá virðist þú ekki
hafa fengið mikla hvatningu til út-
gáfunnar?
Guðmundur Andri hlær. „Þú
mátt ekki taka bókstaflega allt sem
maður skrifar,“ segir hann, „þetta
er eiginlega lygi, það tóku mér all-
ir voðalega vel og hvöttu mig til
dáða.“
–Fékkstu einhverjar ráðlegg-
ingar, t.d. frá félögum þínum í
Spöðunum?
„Það var nú félagi minn í Spöð-
unum sem tók þetta upp, bassa-
leikarinn Guðmundur Ingólfsson.
Hann tók þetta allt upp og spilaði
á bassann og hjálpaði mér heil-
mikið við þetta. Og ýmsir fleiri
komu og spiluðu fyrir mig í þess-
um lögum. En í rauninni fékk ég
engar sérstakar ráðleggingar, nei,
enda var þetta dálítið tilbúið.“
Carpe diem
–Þessi titill, Ótrygg er ögur-
stundin, þú segist hafa stolið hon-
um. Hvaðan stalstu honum?
„Frá föður mínum. Þetta er þýð-
ing hans á leikriti sem var sýnt í
Iðnó og hét A Delicate Balance á
ensku. Ég notaði þessa línu í ein-
hverju lagi og ég ákvað bara að
nota hana sem titil. Þá var þetta
kannski eitthvað svona „carpe
diem“, maður lifir bara einu sinni.“
Guðmundur Andri er spurður að
því hvort hann ætli að gefa út fleiri
plötur. „Já, þetta er svona tíu
platna plan sem ég er með. Nei, ég
er nú að ljúga því en það er aldrei
að vita. Ég á alla vega slatta af
lögum í viðbót,“ svarar hann.
Þingmenn þurfa ekki að óttast
–Hafa störfin á þinginu ekki
veitt þér innblástur við textagerð?
„Nei, ekki ennþá en kannski
þegar maður verður laus þaðan og
fer að vinna úr þessari reynslu, þá
er aldrei að vita. En á þessari
stundu, þegar maður er í óveðrinu
miðju, verður maður að einbeita
sér að því. Samþingmenn og fé-
lagar mínir á þingi þurfa ekki að
óttast að ég fari alltaf heim á
kvöldin og skrifi einhverjar lýs-
ingar á þeim sem ég nota svo í
skáldsögu,“ segir Guðmundur
Andri sposkur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjölhæfur Guðmundi Andra Thorssyni er margt til lista lagt. Brátt kemur út fyrsta sólóplatan hans og segir hann
lögin á henni hæg, angurvær og frekar blíðleg. Hann kveðst syngja um ástina, dauðann og hverfulleikann.
Af ástinni og hverfulleika alls
Guðmundur Andri gefur út fyrstu sólóplötu sína, Ótrygg er ögurstundin Gott að semja lög
yfir leiðinlegu sjónvarpsefni á borð við Barnaby Titillinn sóttur í þýðingu föður hans á leikriti