Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Grafarvogskirkja Félagsstarf eldriborgara fellur niður þriðjudaginn 21. apríl vegna samkomubanns. Korpúlfar. Yndislegu Korpúlfar og co., Allt félagsstarf liggur niðri en hvetjum alla til að hreyfa sig eftir getu, borða hollt og fara varlega á óvissutímum. Takk fyrir hversu vel þið haldið utan um hvert annað með símhringingum og samskiptum á veraldarvefnum. Hlýjar kveðjur til ykkar allra og velkomið er að hafa samband rafrænt t.d. í gegnum fb. síðu Korpúlfa eða hringja í síma 662-5058. Kærleikskveðja. Seltjarnarnes Jæja gótt fólk. Tíminn líður og nú fer vonandi að styt- tast í að við fáum einhverjar upplýsingar varðandi okkar áframhald. Höldum áfram að sýna þolinmæði og bjartsýni. Höldum íka áfram að viðhalda hreinlæti og spritta. Hugið að nærinu og hreyfingu. Vonum að allir séu við góða heilsu. Eins og áður þá er fólki velkomið að senda ábendingar á fb síðuna. Einnig má hringja í Kristínu í síma 893 9800. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Málarar. Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu, mjög sangjarnir í verðum. Upplýsingar í síma 782-4540 eða loggildurmalari@gmail.com Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA ✝ Sólveig Þór-unn Hervars- dóttir fæddist í Súðavík í Álfta- firði 5. september 1932. Hún lést á Landakotsspítala 11. apríl 2020. Foreldrar henn- ar voru Guðmunda Eiríksdóttir, f. 19. desember 1909, d. 5. júlí 2005, og Hervar Sigurvin Þórðarson, f. 29. september 1906, d. 21. júlí 1985. Systkini Sólveigar eru: Ósk- ar, f. 17. júní 1930, d. 10. febrúar 1998; Fanney, f. 17. júní 1931, d. 17. september 2000; Birna, f. 7. desember 1933, d. 8. mars 2009; Svanhildur f. 26. janúar 1936, d, 8. desember 2009; Ei- ríkur, f. 14. sept- ember 1938; Dóra, f. 4. september 1939; Hafsteinn Gunnar, f. 19. febrúar 1943, d. 5. september 1943; og Jón Trausti, f. 19. ágúst 1945. Sólveig eignaðist soninn Rúnar Jóhannes Garðarsson 25. janúar 1952, hann er giftur Rochell Garðarsson, f. 4. mars 1965. Börn hans eru Andrés Pétur, Ryan Philip og Eric. Sólveig giftist 31. desember 1959 Leifi Ásgrímssyni. Börn þeirra eru: 1) Haukur, f. 1. desember 1958, d. 15. sept- ember 1988. 2) Linda Hildur, fædd 25. apríl 1960, gift Ósk- ari Sigvaldasyni, f. 10. október 1962. Börn hennar eru Leifur, Íris, Haukur og Ívar Örn. 3) Drengur, f. 1962, lést við fæð- ingu. Langömmubörnin eru fimm, Logi Freyr, Gabriela Linda, Sólveig Cramer, Mikael Leó og Aþena Mía. Vegna ástandsins í sam- félaginu fer útförin fram í kyrrþey 21. apríl 2020. Elsku mamma, nú hafa leiðir skilið. Það er erfitt að hugsa til þess að hafa þig ekki lengur hjá mér. Ég vil þakka þér fyrir sam- fylgdina. Betri móður var ekki hægt að fá í lífslottóinu. Alltaf gat ég leitað til þín með hvað sem var, hvort sem það var að tala um daginn og veginn, passa fyrir mig ömmubörnin eða bara gera okkur glaðan dag saman. Ég mun sakna þín en ylja mér við ljúfar minningar um okkar góða samferðalag. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín. Í þeim las ég alla, elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best hjartað blíða, heita –- hjarta, er sakna’ ég mest. (Sumarliði Halldórsson) Kveðja, þín dóttir Linda. Elsku amma. Þegar við hugsum um ömmu þá hugsum við um blóm og blómailm. Dálæti hennar á blómum var óendanlegt. Lagið Liljan kemur upp í hugann og þau systkinin trallandi saman á ættarmóti, þetta er alveg ógleymanlegt. Það hefur verið svo erfitt að kveðja þig. Þú varst ein sú besta kona sem til hefur verið. Við höfum oft talað um það systk- inin hvað það var alltof gott að vera hjá ykkur afa. Þú varst alltaf svo hugulsöm og blíð. Okkur leiddist aldrei með þér, amma, hvort sem það var að fara í strætó, bókasafnið, leigja kvikmynd, fá lukkupakka í Kola- portinu eða fá að gista, það var auðvitað toppurinn. Það var allt- af svo gaman að fá þig og afa í heimsókn í hverri viku til okkar þegar við vorum yngri. Við spjölluðum um daginn og veginn og þú varst alltaf með allt á hreinu, þú varst einstaklega dugleg að kynna þér nýja hluti eins og að læra á tölvu, skrifa í word, læra ensku, læra á gsm- síma og svo á facebook, þú gast þetta allt. Alltaf með puttann á púlsinum. Þú varst ekki bara besta amman heldur líka besta langa- mman, þú hefur reynst börn- unum okkar einstaklega vel. Þau elskuðu langömmu svo mikið, enda ekki annað hægt. Það hefur aldrei skipt neinu máli hvort við vorum börn, ung- lingar eða fullorðin þú vildir allt- af hlusta og af mikilli athygli, það var alltaf hægt að leita til þín. Góð ráð og falleg orð var ávallt það sem þú lagðir til mál- anna. Mikið hefur það verið erf- itt að geta ekki hitt þig seinustu vikurnar, en við njótum góðs af því að hafa átt mörg hundruð gæðastundir með þér í gegnum lífið, elsku amma. Minning þín lifir að eilífu, hvíldu í friði, elsku amma Sól- veig. Þín ömmubörn, Leifur, Íris, Haukur og Ívar Örn. Sólveig Þórunn Hervarsdóttir ✝ Björn ViðarSigurjónsson fæddist á Akureyri 7. júní 1944. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skóg- arbæ í Reykjavík 4. apríl síðastliðinn. Foreldrar Björns Viðars voru Sigurjón Sig- urjónsson, aðalbók- ari á Reykjalundi, f. 12. maí 1915 á Ísafirði, d. 5. september 1979, og Ármey Björnsdóttir, f. 1. október 1921 í Reykjavík, d. 10. september 1960. Björn var elstur þriggja systkina, en hin tvö eru Erna, f. 30. september 1949, d. 21. jan- úar 2004, og Sigurður Rúnar, f. Baldur Leó, f. 2015, og Evu Marí, f. 2019. 3) Ármey Björk, f. 7. júlí 1970, gift Jóni G. Þormar og eiga þau tvær dætur, Maríu Ólafíu, f. 2007, og Rakel Hrönn, f. 2010. Stjúpsonur Björns og sonur Bergljótar er Páll Páls- son, f. 13. maí 1963, og á hann þrjú börn, Eystein Helga, f. 1998, Steinunni Helgu, f. 2002, og Ásgeir Harald, f. 2007. Björn Viðar fluttist ungur að norðan og ólst síðan upp í Mos- fellssveit til 16 ára aldurs. Eftir andlát móður sinnar dvaldi Björn um skeið hjá ættingjum í Vestmannaeyjum en bjó svo í Reykjavík. Hann vann um tíma á Keflavíkurflugvelli, en hóf ár- ið 1964 störf hjá Skeljungi í Reykjavík og vann þar þangað til starfævi hans lauk. Útför Björns Viðars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 21. apríl 2020. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður athöfnin einungis fyrir nánustu aðstand- endur. 17. desember 1955. Björn kvæntist 7. júní 1965 Berg- ljótu Aðalsteins- dóttur, f. 28. febr- úar 1944. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Sigurjón Helgi, f. 10. mars 1965, í sambúð með Þorgerði Jóns- dóttur. 2) Að- alsteinn Rúnar, f. 3. mars 1966, í sambúð með Paulu Holm og eiga þau tvö börn, Hans, f. 1996, og Guð- rúnu, f. 2000. Fyrir átti Að- alsteinn dótturina Dagnýju Björk, f. 1990, í sambúð með Aroni B. Jósepssyni og eiga þau þrjú börn, Elfar Bjarka, f. 2013, Elsku pabbi, með þessu ljóði kveð ég þig. Hafðu hjartans þakkir fyrir góðar stundir. Nú liðin er hin þunga þraut og þreytta brjóstið rótt, þinn andi svífur bjarta braut á bak við dauðans nótt. Ég kveð með þökk, í traustri trú um tilverunnar geim að sál þín örugg svífi nú til sigurlandsins heim. (Ingibjörg Þorbergs) Guð geymi þig. Þín Ármey (Emma). Ástkæri tengdapabbi minn Björn Viðar, lést 4. apríl, langt fyrir aldur fram. Ég hitti hann fyrst fyrir um 29 árum þegar ég og sonur hans hófum sambúð. Björn var mér alltaf góður tengdapabbi, við gát- um hlegið og talað saman um allt milli himins og jarðar. Þegar við eignuðumst börnin okkar tvö var hann tíður gestur á heimili okkar, hann passaði þau stundum og fór oft í göngutúra með þeim í 10/11 sem var nálægt okkur þá. Svo skemmtilega vildi til að þau komu alltaf til baka með fulla poka af alls konar mat, kaffi, hakki, mjólk og kókómjólk, sem sonur okkar örugglega hafði sett í körfuna. Svona var tengda- pabbi, alltaf tilbúinn að hjálpa til að leggja í búið. Árin liðu og í lokin var hann orðinn það slæmur til heilsu að hann þurfti að fara á hjúkrunar- heimili. Ég tel mig heppna að hann kom á hjúkrunarheimilið sem ég er að vinna á, svo ég var í daglegu sambandi við hann. Hann var farinn að bíða eftir mér, stundum frammi við lyft- una. Hann sagði of að hann hlakkaði til að ég kæmi bara til að spjalla og gleyma öllu öðru í kringum sig. Þetta hefur verið mín daglega rútína í nærri tvö ár. Elsku Björn, ég takka fyrir stundirnar okkar og fer að sakn- að þeirra mikið, ég veit að þú ert kominn á betri stað núna. Ég á eftir að saknað þín mjög mikið, hvíldu í friði, elsku tengdapabbi. Þakkir til starfsfólks Heiðar- bæjar fyrir að hugsa vel um hann. Paula. Björn Viðar Sigurjónsson Þegar við frétt- um lát Róberts kom það í raun á óvart, þó svo að vitað væri að hann glímdi við ólækn- andi sjúkdóm. Seiglan og lífs- Róbert Jón Jack ✝ Róbert JónJack fæddist 15. september 1948. Hann lést 18. mars 2020. Útför Róberts Jóns hefur farið fram. Minning- arathöfn mun fara fram síðar. krafturinn í honum var svo ótrúlegur að hann lifði lengur en búist var við. Ef til vill hefur það lengt líf hans að hann hafði svo miklar framkvæmdir á Geitafelli sífellt til umhugsunar. Meðal þess sem hann hafði í huga var að reisa þar or- lofsbúðir fyrir Vestur-Íslendinga á stað nærri sjónum og gerðar voru teikningar sem hann sýndi mér. Leit vel út með að það kæmist í verk, en svo varð ekki úr. Þá var ein hugmyndin að endurreisa klettinn Bárð sem stóð utar í fjörunni og tengist sögunni af Hvítserk og hafa hann ekki í sjó frammi, heldur hjá bænum á Geitafelli. Man ég eftir því að eitt sinn er ég hitti hann þar heima vorum við að at- huga stað fyrir hann. Hvort tveggja hefði orðið mikil stoð við ferðamannaþjónustu hér, en verður vart úr þessu. Ógleymanleg er samkoman sem þau hjón héldu um haustið 2017 heima á Geitafelli. Þar var á borðum, auk sviðaveislu, „hagg- is“ frá Skotlandi. Þá var skoskur maður í þjóðbúningi Skota sem flutti áður kvæði Roberts Burns, „Hail to the Haggis“, á skosku og blessaði yfir, á máli sem fáir þar inni skildu en spilaði á undan og eftir á sekkjapípu. Til þess að gera meira þjóðlegt flutti kvæða- mannafélagið nokkrar stemmur og frumsamin kvæði voru lesin. Kona frá þjóðdansafélaginu stjórnaði skoskum og íslenskum þjóðdönsum. Ekki spillti fyrir að með hverjum miða fylgdi eitt staup af ekta skosku drammi. Var þar um merkan menningar- atburð að ræða, sem ekki hafði verið áður á Vatnsnesinu. Til stóð að gera hann að árlegum viðburði, sem varð ekki úr. Við hjónin þekktum Róbert heitinn ekki neitt áður fyrr því leiðir lágu ekki saman þar til hann fluttist að Geitafelli, en þá mynduðust fljótt góð kynni, enda þau hjón einstök í sinni röð. Vegna þess samkomubanns sem er nú í landinu gátum við ekki mætt við útför hans til að kveðja, en hugur okkar var hjá aðstandendum. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til Sigrúnar, barna þeirra, Vigdísar móður hans og systkina, sem og ann- arra aðstandenda. Hlíf og Agnar, Hrísakoti. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.