Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020
Scarpa Mistral GTX
léttir gönguskór,
dömu og herra.
28.995 kr.
Scarpa Mojito-hike GTX
léttir gönguskór,
herra.
32.995 kr.
Scarpa Mojito-hike GTX
léttir gönguskór,
dömu.
32.995 kr.
Scarpa Terra GTX
gönguskór,
dömu og herra.
32.995 kr.
Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að hlúa að andlegri og líkamlegri heilsu okkar.
Hvað er betra en góð gönguferð með sjálfum sér eða sínum nánustu, nú þegar sundlaugum,
líkamsræktarstöðvum og skíðalyftum hefur verið lokað?
Við minnum ykkur á að netverslunin okkar er opin allan sólarhringinn.
TILBÚIN Í ÚTIVISTINA
Fjölmiðlarýni Viðskiptablaðsþótti mikið bogið við við-
brögð forstjóra opinberrar stofn-
unar sem varð stúrinn yfir að-
finnslum í hennar garð sem birst
höfðu í fjölmiðlum:
Embættismaður-inn grípur þá
til þess óvanalega
ráðs að stíga fram
á völlinn og taka
til varna um sumt
af því, en gerir
það ekki á eigin
vettvangi, heldur í
grein í þriðja miðl-
inum, sem þó hefur
takmarkaða út-
breiðslu, og notar
svo skattfé til þess
að ýta undir út-
breiðsluna á orðaskakinu.
Með fullri virðingu fyrir Sam-keppniseftirlitinu og
kansellíinu öllu, þá er þetta eigin-
lega ekki í þess verkahring.
Vilji forstjórinn nota frítímasinn í ritdeilur má hann það
auðvitað, svo fremur sem
stofnunina setji ekki niður við
það, en það er fráleitt að fjár-
munum hins opinbera sé varið til
útbreiðslu á því.
Kannski forstjórinn hafi hugs-að þetta sem langþráðan
opinberan styrk til fjárvana fjöl-
miðils á dögum plágunnar, að
með þessu gæti hann aukið
lesturinn á eigin vísdómsorðum
og aukið umferðina til metnaðar-
fulls jaðarmiðils. Hver veit?
En það á ekki – ekki frekar ennokkrar fjárveitingar úr
sjóðum hins opinbera, af al-
mannafé – að gerast fyrir duttl-
unga og náð einstakra embættis-
manna.“
Andrés
Magnússon
Gáði í geitarhús
STAKSTEINAR
Páll Pálsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kvikmyndaframleiðendur, sem fá að
jafnaði fjórðung kostnaðar við fram-
leiðslu mynda endurgreiddan úr
ríkissjóði þegar verkefninu lýkur,
geta nú óskað þess að fá hluta þess-
arar endurgreiðslu fyrirframgreidd-
an. Með þessu er tekið tillit til þess
að framleiðsla kvikmynda geti hafa
raskast vegna kórónuveirunnar. Þar
sem því verður við komið geta
greiðslur borist fyrr en ella væri.
Þessi undantekning gildir á tíma-
bilinu 1. apríl til 1. júlí næstkomandi
og verkefnið þarf þegar að hafa haft
vilyrði stjórnvalda fyrir því að fá
þessa endurgreiðslu á endanum.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir nýsköpunarráðherra birti
reglugerð um þetta í Stjórnar-
tíðindum í gær.
„COVID-19 heimsfaraldurinn hef-
ur haft töluverð áhrif á kvikmynda-
gerð á Íslandi, þar sem frestað hefur
þurft tökum og framleiðslu á verk-
efnum. Þá hefur frumsýningum
einnig verið frestað vegna lokunar
kvikmyndahúsa,“ segir í tilkynn-
ingu. „Fjármögnun flestra íslenskra
kvikmynda og útgreiðsla styrkja er
háð framvindu verkefna og lokum
þeirra. Þannig greiða flestir sjóðir
lokagreiðslu sína við skil á verk-
efnum og frumsýningu. Við frestun
frumsýninga frestast því greiðsl-
urnar og hefur þetta töluverð áhrif á
greiðsluflæði verkefnanna.“
Endurgreiðslunum verður flýtt
Létt undir með kvikmyndaframleiðendum Frumsýningum var frestað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bíó Kvikmyndatökuvélar á lofti.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Tryggingastofnun (TR) hefur af-
greitt til útgreiðslu leiðrétt réttindi
þeirra dánarbúa ellilífeyrisþega sem
eiga réttindi fyrir janúar og febrúar
2017 og ekki var búið að afgreiða.
Um er að ræða um 3.100 dánarbú
þar sem réttindi auk vaxta nema alls
um 450 milljónum króna. Stofnunin
hefur þegar leiðrétt réttindi ellilíf-
eyrisþega sem og réttindi þeirra
dánarbúa þar sem maki situr í
óskiptu búi.
Umrædda leiðréttingu má rekja
til niðurstöðu dóms Landsréttar í
máli nr. 466/2018. Þar var niðurstað-
an sú að ekki var talið heimilt að láta
greiðslur úr skyldubundnum at-
vinnutengdum lífeyrissjóðum hafa
áhrif á ellilífeyri til lækkunar í jan-
úar og febrúar 2017.
Tryggingastofnun greiddi síðast-
liðið haust tæplega 29 þúsund ein-
staklingum í samræmi við dóm
Landsréttar, alls um 5.500 milljónir.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
rúnar Jónsdóttur, verkefnastýru á
skrifstofu forstjóra TR, er heildar-
upphæðin því um 6 milljarðar króna
á þessum tímapunkti. „Endanlegt
uppgjör og samantekt liggur ekki
fyrir en það verður væntanlega á
næstunni,“segir Sigrún.
Tryggingastofnun hefur sent bréf
til forsvarsmanna dánarbúanna með
nánari upplýsingum um útgreiðslu
réttinda ásamt því að birt hefur verið
auglýsing í Lögbirtingablaðinu.
Fullnægjandi umboð og upplýsingar
um bankareikning umboðsmanns
viðkomandi dánarbús þurfa að liggja
fyrir hjá Tryggingastofnun til að
hægt sé að greiða leiðrétt réttindi.
Skila þarf umræddum gögnum í
gegnum Mínar síður á tr.is.
Fram kemur í bréfinu að greiddir
séu 5,5% vextir af upphæðinni og
hefur fjármagnstekjuskattur verið
dreginn frá. Spurð hvort rétthafar
þurfi að greiða erfðafjárskatt af upp-
hæðinni segir Sigrún að sýslumenn
taki ákvörðun um hvort þörf sé á að
endurupptaka skipti og greiða af
inneigninni erfðafjárskatt. TR bendi
á í bréfum sínum til hlutaðeigandi að
það sé í höndum erfingja að taka upp
einkaskipti komi fram eignir sem
hefðu átt að koma til skipta.
Dánarbú fá 450
milljónir frá TR
Leiðrétt réttindi frá árinu 2017
Um er að ræða um 3.100 dánarbú