Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020
Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is
Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja
Það er bara best að kynnast
mér til að skilja mig betur
40 ára Íris Björg Birg-
isdóttir er fædd og
uppalin í Reykjavík en
búsett í Garðabæ.
Íris Björg er með B.Sc.
í sálfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík og
vinnur sem verkefna-
stjóri á fjáröflunar- og kynningarsviði
Rauða krossins á Íslandi.
Maki: Gunnþór Steinar Jónsson, fæddur
1978, svæðisstjóri þjónustu hjá Marel.
Börn: Birgir Bragi, fæddur 2004, og
Bjarki Steinar, fæddur 2007
Foreldrar: Birgir Bjarnason, fæddur
1953, fjármálastjóri HK, og Guðbjörg Sig-
mundsdóttir, fædd 1953, listakona.
Íris Björg Birgisdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu á varðbergi gagnvart þeim
sem tala of mikið og jafnvel meira á varð-
bergi gagnvart þeim sem gefa þér loforð.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk veitir þér eftirtekt í dag, tjald-
aðu öllu sem þú átt til. Ef þú stefnir á lang-
tímamarkmið er gott að skammta orkuna
og einbeita sér að því sem lætur verkið
rúlla og þróast.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu það ekki slá þig út af lag-
inun þótt skyndilegar efasemdir um eigið
ágæti sæki á þig í dag. Varastu að taka
fljótfærnislegar ákvarðanir í fjölskyldumál-
unum í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hugaðu að því hvernig þú getir
bætt heimilisaðstæður þínar og samband
þitt við fjölskylduna. Farðu varlega í það að
biðja nána vini eða fjölskyldu um liðsinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú vera utangátta, en þorir
ekki að láta til þín taka. Reyndu að halda
sambandi við vini þína jafnvel þótt vík
verði í milli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Finnist þér þú vera sambandslaus
og þreyttur er kominn tími til að slaka á og
hlusta á líkamann. Farðu vel með þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft á mikilli þolinmæði að halda í
samskiptum við aðra í dag. Gættu þess
bara að gleyma ekki hvað skiptir raunveru-
legu máli í lífinu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að snúa þér að þeim
verkefnum sem þú hefur látið dragast.
Hvaðeina sem þú tekur upp á til þess að
bæta skipulagið mun koma þér að notum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er farsælla að velta hlut-
unum fyrir sér heldur en að bregðast strax
við. Hikaðu ekki við að koma hugmyndum
þínum á framfæri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fólk þarf á þér að halda, en þú
þarft það líka! Settu mörk og styrktu þau,
ekki síst hvað varðar það dýrmætasta sem
þú átt, tímann þinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gættu að því hvað þú segir því
það er mikill ruglingur í loftinu sem getur
hæglega leitt til misskilnings.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gerðu umbætur á heimili þínu í dag
og leggðu þig fram um að bæta samband
sem hefur verið að versna.
skipaður í nefndir til endurskoðunar
á ýmsum lagabálkum tengdum sigl-
ingum, svo sem siglingalögum, sjó-
mannalögum, lögskráningu sjó-
manna og atvinnuréttindalögum
skipstjórnarmanna og vélstjóra.
Hann sat í framkvæmdaráði
Vinnuveitendasambands Íslands
1987 til 1989. Var formaður stjórnar
Fiskifélags Íslands 1992 til 1994.
Gullmerki Ferðafélags Íslands hlaut
Jónas svo árið 1992.
Jónas hefur skrifað fjölda greina
um mál tengd sjávarútvegi í meðal
annars Morgunblaðið, Fiskifréttir
og sjómannablaðið Víking.
„Til að benda á eitthvað nefni ég
það, að hafa starfað í rannsóknar-
nefnd sjóslysa með þeim ágætu
mönnum, sem með mér voru á þeim
tíma, hefur alltaf verið mér hug-
leikið. Sú lífsreynsla mín, að togvír
slóst í fót mér með tilheyrandi spít-
alavist og jafnframt að hafa dregist
fyrir borð fastur í lykkju á drag-
nótatógi, fannst mér gefa mér meiri
dýpt og skilning til þess að fjalla um
öryggismál sjómanna. Á þessum
vel, en einnig er Haukur Jóhannes-
son jarðfræðingur mér eftirminni-
legur, hann var þarna líka,“ segir
Jónas.
Á starfstíma sínum hjá LÍÚ átti
hann sæti í ýmsum nefndum tengd-
um sjávarútvegi, svo sem rann-
sóknarnefnd sjóslysa 1972 til 1985.
Undanþágunefnd, mönnunarnefnd
fiskiskipa og siglingaráði. Jónas var
J
ónas Haraldsson er fæddur
í Reykjavík 21. apríl 1945.
Hann gekk í Landakots-
skóla, Gagnfræðaskóla
miðbæjar og Verslunar-
skóla Íslands þaðan sem hann lauk
stúdentsprófi árið 1966. Lá leiðin því
næst í lagadeild Háskóla Íslands og
lauk Jónas þaðan embættisprófi árið
1972. Hann öðlaðist málflutnings-
réttindi fyrir héraðsdómi árið 1975
og fyrir Hæstarétti 2001.
Jónas kom víða við á vinnumark-
aði. Árin 1956 og 1957 seldi hann og
bar út dagblöð. Næstu tvö árin þar á
eftir starfaði hann sem sendill hjá
Garðari Gíslasyni hf. Var hann svo
við fiskveiðar við Vestur-Grænland
á b.v. Þorsteini Ingólfssyni RE-206
og 1961 á b.v. Pétri Halldórssyni
RE-207. Ísfiskveiðar á b.v. Karlsefni
RE-24 árin 1962 til 1965 en auk
þessa sótti Jónas sjóinn á b.v. Júpi-
ter RE-161, b.v. Röðli GK-518 og
var á dragnót á mb. Breiðfirðingi
RE-101 og ms. Gullfossi hjá Togara-
afgreiðslunni hf.
Að loknu laganámi hélt Jónas til
starfa hjá Landssambandi íslenskra
útgerðarmanna og gegndi þar stöðu
skrifstofustjóra árin 1972 til 1999,
en var sjálfstætt starfandi lögmaður
árin 1999 til 2017.
„Maður er búinn að vinna hingað
og þangað um dagana sem er auðvit-
að ágætt veganesti fyrir lífið seinna
meir,“ segir Jónas. „Ég fór svo beint
til LÍÚ eftir lögfræðina. Það kom
þannig til að búið var að bjóða ein-
um vinnu þar, skólabróður mínum,
sem hafði hins vegar engan áhuga á
þessu, hann hafði ekkert verið í
sjávarútvegi og benti þá á mig og
þarna var ég í 27 ár,“ segir Jónas.
„Svo fór ég að starfa sjálfstætt við
lögmennsku, fyrst með Friðrik H.
Hermannssyni heitnum en síðar
með syni mínum, Jónasi Þór Jónas-
syni, og var við það fram til ársins
2017,“ segir Jónas.
Hann er áhugamaður um tónlist
og gönguferðir og starfaði lengi sem
leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Ís-
lands. „Ég var bara í dagsferðunum
en tók einnig þátt í vinnu við skála
félagsins. Páll Sigurðsson lagapró-
fessor var formaður félagsins lengi
tíma voru oft mikil átök um öryggis-
mál þeirra, sérstaklega vegna
sleppibúnaðar gúmbáta og fengum
við í nefndinni stundum kaldar
kveðjur frá Vestmannaeyjum,“ segir
Jónas kíminn.
Vegna heimsástands segist Jónas
líklega ekki gera sér mikinn daga-
mun á afmælisdaginn. „Það er allt í
lamasessi út af þessari veiru svo það
verður eitthvað rólegt, ég fresta
þessu bara um óákveðinn tíma,“
segir hann. „Maður er líka orðinn
þetta gamall þótt ég sé við fína
heilsu. Það hefur alltaf háð mér dá-
lítið að ég fótbrotnaði í körfubolta og
ég fann alveg fyrir því þegar ég var í
fjallgöngunum,“ segir afmælis-
barnið.
Fjölskylda
Eiginkona Jónasar er Guðný
Jónasdóttir, f. 16.1. 1944, fyrrver-
andi sögukennari við Mennta-
skólann í Reykjavík. Foreldrar Guð-
nýjar voru Jónas Guðmundsson, f.
11.6. 1898, d. 4.7. 1973, ráðuneytis-
stjóri og formaður Sambands ís-
Jónas Haraldsson, fyrrverandi lögmaður – 75 ára
Þjóðhátíð Jónas ásamt fjölskyldu 17. júní 2019. Hann sjálfur lengst t.v. F.v. aftari röð: Ragnar Eyþórsson, Jónas
Þór Jónasson, Guðný Jónasdóttir og Valgerður Jónasdóttir. F.v. fremri röð: Margrét Lára Jónasdóttir, Guðný
Helga Ragnarsdóttir, Jónas Karl Ragnarsson og María Lovísa Jónasdóttir.
Allt í lamasessi vegna veiru
Ljósmynd/Aðsend
Á sjó Um borð í b.v. Þorsteini
Ingólfssyni RE-206 í tveggja
mánaða saltfiskstúr 1960.
50 ára Magnús fædd-
ist í Hafnarfirði en ólst
upp á Selfossi. Hann
býr í Garðabæ.
Magnús er lyfjafræð-
ingur frá HÍ og MBA
þaðan. Hann er eig-
andi Apóteks Garða-
bæjar og Apóteks Hafnarfjarðar þar sem
hann er lyfsali.
Maki: Borghildur Ágústsdóttir, fædd
1972, fjármálastjóri hjá Icelandair Hotels.
Börn: Eyþór Már, fæddur 1990, Egill,
fæddur 1996, og Ágúst, fæddur 2006.
Foreldrar: Sigurður Sveinsson, f, 1944,
lögfræðingur, og Ingunn Þóra Magnús-
dóttir, f. 1944, kennari og sagnfræðingur.
Magnús Sigurðsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is