Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 17
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 9,9% fretta- bladid.is 14,0% Fréttablaðið 8,8% visir.is 9,7% ruv.is 6,1% RÚV: útvarp/ sjónvarp 2,8% Bylgjan/ Stöð 2 4,2% DV 6,4% dv.is 38,0% 38,0% allra frétta frá tíu stærstu fréttamiðlum landsins koma frá fréttastofu Morgunblaðsins og mbl.is. Þessi elsta fréttastofa landsins er mönnuð reynslumiklu fagfólki sem hefur aðeins eitt markmið — að miðla vönduðum fréttum og fjölbreyttu efni til lesenda á hverjum degi. Ekki missa af því sem skiptir máli. Komdu í áskrift strax í dag Sím i 569 1100 m bl.is/a s kri ft Við skrifum fleiri fréttir Heimild: Creditinfo - Fjölmiðlavaktin 2020 18,8% Morgun- blaðið 19,2% mbl.is Í Morgunblaðinu 14.4. 2020 var birt ágæt grein eftir Jónas Elías- son prófessor með yfir- skriftinni: „Raforku- vinnsla á Íslandi: Aftur á byrjunarreit?“ Í greininni ræðir Jónas um samskipti Lands- virkjunar og Rio Tinto, sem er eigandi álverk- smiðju ÍSAL í Straumsvík. Samningur Lands- virkjunar og ÍSAL Viðskiptasamningur um sölu á raf- orku frá virkjunum Landsvirkjunar til ÍSAL hefur verið í gangi samfellt síðan 1970 eða í hartnær 50 ár. Samningurinn hefur verið íslensku þjóðfélagi til mikilla hagsbóta. Með honum var riðið á vaðið með nýtingu vatnsorku í stórum stíl hér á landi. Almennt séð hafa allt frá upphafi verið góð samskipti milli ÍSAL og Landsvirkjunar, sem í rauninni er nauðsynlegt í svo löngu og farsælu samstarfi. Þetta hefur breyst á undanförnum árum. Svo virðist sem upphaf þeirra hnökra megi rekja til ársins 2010, þegar nýr forstjóri Landsvirkjunar hóf störf, en sama ár var gengið frá nýjum orkusölusamningi við ÍSAL. Annars vegar komu til undirbúnings- ráðstafanir ÍSAL ef til lokunar á verksmiðjunni kæmi og hins vegar kvartaði Landsvirkjun yfir framferði ÍSAL og sagði þær vera hótanir í sinn garð. Þetta hefur haft neikvæð áhrif á samskipti fyrirtækjanna. Orkuverð í samningnum 2010 var tengt neysluvísitölu í Bandaríkj- unum en hafði áður verið tengt ál- verði á heimsmarkaði. Síðan þá hefur álverð fallið verulega einkum vegna stóraukinnar framleiðslu Kínverja á áli og ekki bætir kórónuveiran ástandið. Á tímabilinu hefur neyslu- vísitala í Bandaríkjunum farið stöðugt hækkandi og er nú svo komið að orku- verð Landsvirkjunar til ÍSAL er orðið 38% hærra en það hefði ver- ið ef álverðstenging hefði gilt og er þar mið- að við CPI vísitölu 258 og álverð 1494 USD/ tonn. Einnig mætti nefna önnur atriði í samningnum, t.d. að hann skuli gilda til langs tíma eða til ársins 2036 og með um 80% kaupskyldu. Það er með ólíkindum að ÍSAL skuli hafa látið hafa sig út í þetta á sínum tíma og mætti halda að þeir hafi hreinlega gert reiknivillu í mati sínu á samningnum eða alla vega gert herfileg mistök í mati á mögu- legri þróun verðvísa. Þáttur Harðar Arnarsonar Þegar Hörður Arnarson tók form- lega við starfi forstjóra Landsvirkj- unar í ársbyrjun 2010 lét hann í ljós þau áform sín að breyta ætti starf- semi Landsvirkjunar yfir í markaðs- drifið fyrirtæki sem mundi einbeita sér að því að græða peninga með öll- um ráðum, til hagsbóta fyrir eig- endur þess sem er hinn íslenski al- menningur. Byggði hann upp markaðsdeild innan Landsvirkjunar og fyllti deild- ina af konum til að gæta jafnréttis. Hóf hann umfangsmiklar rannsóknir á þeim ákvörðunum sem leiddu til byggingar Kárahnjúkavirkjunar með það að markmiði að sýna fram á hversu óhagkvæm sú framkvæmd var. Sá málarekstur var allur með ólíkindum en í raun var virkjunin tækniundur sem ávallt hefur staðist ýtrustu kröfur. Gagnrýni forstjórans á eigin virkjanir þótti óverðskulduð. Þáttur Halldórs Ásgrímssonar Svo langt gekk þetta á stundum að jafnvel Halldór Ásgrímsson, fyrrver- andi forsætisráðherra, sá ástæðu til að heimsækja forstjórann og ræða við hann um þetta málefni. Fundur- inn var haldinn eftir að Halldór lauk starfi í Kaupmannahöfn 2013. Hall- dór sagði mér frá fundinum og að það hefði verið fátt um svör frá hendi forstjórans þegar hann gekk eftir þeim. Hann útskýrði fyrir forstjór- anum að það hefði aldrei verið hug- myndin með Kárahnjúkavirkjun að Landsvirkjun rukkaði fyrir raforku umfram það sem eðlilegt mætti telj- ast heldur ætti fyrst og fremst að hugsa um heildarhagsmuni þjóðar- innar. Halldór var lykilmaður í að koma á fót Kárahnjúkavirkjun og ál- veri ALCOA á Reyðarfirði. Því miður féll Halldór skyndilega frá á vormánuðum 2015. Hann var því ekki til staðar þegar umræða hófst 2017 um stofnun á Þjóðarsjóði þar sem arður Landsvirkjunar af raforkusölu væri lagður inn, en tekjur sjóðsins færu í að versla með verðbréf í erlendum kauphöllum. Þessi hugmynd kom frá forstjóra Landsvirkjunar, en fyrirtækið átti að halda uppi tekjum sjóðsins. Það hef- ur ekki hljómað vel í eyrum hinna stóru viðskiptavina Landsvirkjunar að þeir væru að greiða svo mikið fyr- ir raforkuna að það væri grundvöllur að slíkum sjóði og sem var líkt við olíusjóð Norðmanna. Ég var búinn að nefna við Halldór að hann skrifaði eitthvað niður um aðdraganda, byggingu og fyrstu rekstrarár Kárahnjúka- virkjunar og tók hann líklega í það. Ekkert fannst um það mál að honum látnum. Lokaorð Með þriðja orkupakkanum verða nýir viðskiptahættir með raforku innleiddir hér á landi. Markaðs- hönnun er þar afar mikilvæg, en Landsnet stendur fyrir verkinu og hefur fengið til þess erlent ráðgjaf- arfyrirtæki. Ekkert hefur ennþá heyrst um hvernig verkinu vindur fram, en maður bara vonar það besta. Þá ætti að verða handhægara að tengja orkusölusamninga við al- þjóðlega viðskiptahætti í stað þess að þurfa að sérhanna heimatilbúnar lausnir. Þarna koma þá væntanlega staðlaðir raf- orkumarkaðir við sögu og þá munu sjálf- tökugjaldskrár orkufyrirtækja ljúka sínu skeiði og frjáls sam- keppni taka við. Það á að hætta þessu þjóðarsjóðsrugli og drífa í að endurskoða samninginn við ÍSAL, með sanngirni í huga. Orkusölusamningur Landsvirkjunar og ÍSAL Eftir Skúla Jóhannsson » Það á að hætta þessu þjóðarsjóðsrugli og drífa í að endurskoða samninginn við ÍSAL, með sanngirni í huga. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræð- ingur. skuli@veldi.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morg- unblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkom- andi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýs- ingar veitir starfs- fólk Morgunblaðs- ins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.