Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 365.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Angela Merkel Þýskalandskanslari
kallaði í gær eftir því að Þjóðverjar
sýndu áfram af sér aga, þrátt fyrir að
nokkrum af þeim hömlum sem þýsk
stjórnvöld hafa sett á vegna kórónu-
veirunnar væri aflétt í gær. Sagði
Merkel að í raun væri heimsfarald-
urinn rétt að byrja og að Þjóðverjar
væru langt frá því að vera „komnir
yfir fjallið“.
Minni búðir í sumum héruðum
Þýskalands mátti opna á ný í dag, en
verslanir sem eru með meira en 800
fermetra munu þurfa að bíða enn um
sinn. Þá munu einhverjir skólar, en
ekki allir, fá að hefja kennslu á ný frá
og með 4. maí. Jafnframt því að það
mátti opna búðir settu stjórnvöld í
sambandslöndunum Saxlandi og
Bæjaralandi þá skyldu á fólk að
hylja vit sín með grímu á almanna-
færi. Munu fleiri sambandslönd vera
að íhuga slík tilmæli.
Leikskólar í Noregi voru opnaðir
aftur í gær, og í Danmörku fengu
sum minni fyrirtæki, þar á meðal
hárgreiðslustofur, tannlæknar og
húðflúrarar, að opna fyrir kúnnum á
ný. Þá má einnig nefna að bókabúðir
voru opnaðar á Ítalíu, sem verst hef-
ur orðið úti í faraldrinum af Evrópu-
ríkjum.
Þessar aðgerðir evrópskra stjórn-
valda endurspegla aftur vonir um að
kórónuveirufaraldurinn sé í rénun
þar eftir erfiðar vikur, en meira en
tveir þriðju af öllum dauðsföllum
sem skráð hafa verið af völdum
kórónuveirunnar hafa orðið í ríkjum
álfunnar. Dánartölur hafa hins vegar
farið niður á við síðustu daga í flest-
um af stærri ríkjum Evrópu, svo sem
Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi
og á Ítalíu. Á Spáni voru skráð 399
dauðsföll vegna veirunnar á mánu-
daginn, sem er hið lægsta í meira en
mánuð.
Biður Kínverja um gagnsæi
Merkel skoraði á blaðamanna-
fundi sínum í gær á Kínverja að vera
eins gagnsæir og mögulegt væri um
upphaf kórónuveirufaraldursins.
„Ég trúi því að því meira sem Kín-
verjar greina frá upphafi veirunnar,
því betra sé það fyrir heimsbyggðina
alla til að læra af því,“ sagði Merkel.
Hún bættist þar með í hóp Emm-
anuels Macrons Frakklandsforseta,
og Dominics Raabs, staðgengils for-
sætisráðherra í Bretlandi, sem báðir
gáfu til kynna í síðustu viku að ekki
væru öll kurl komin til grafar varð-
andi upphaf faraldursins í Kína, og
sagði Raab að Kínverja biðu „erfiðar
spurningar“ um tildrög kórónuveir-
unnar og hvort hægt hefði verið að
stöðva framgang faraldursins fyrr.
Þá hafa stjórnvöld í Ástralíu óskað
eftir óháðri rannsókn á viðbrögðum
alþjóðasamfélagsins við faraldrin-
um, sem myndi meðal annars fjalla
um viðbrögð bæði Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, WHO, og
kínverskra stjórnvalda þegar
kórónuveiran kom fyrst upp.
Þjóðverjar sýni áfram af sér aga
Nokkur ríki Evrópu léttu af hömlum vegna kórónuveirunnar í gær Jákvæð teikn á lofti Merkel
segir harða baráttu enn eftir Kallar eftir því að Kínverjar séu opinskáir um upptök faraldursins
AFP
Gríma Margir Þjóðverjar verða nú
að ganga með grímu á almannafæri.
Skemmtiferðaskipið MSC Magnifica sést hér í höfninni
í Marseille í Suður-Frakklandi. Eru þá engin skemmti-
ferðaskip í siglingu á heimshöfunum sjö, en Magnifica
og gestir þess voru á ferðalagi um Eyjaálfu þegar þeim
var gert að halda heim á leið. Wellington á Nýja-
Sjálandi var síðasti áningarstaður skipsins og tók þá
við ferðalag aftur til Evrópu. Tók ferðalagið sex vikur
og voru farþegarnir eflaust fegnir að komast frá borði.
AFP
Síðasta skemmtiferðaskipið komið í höfn
Samninga-
nefndir Breta og
Evrópusam-
bandsins um frí-
verslun eftir út-
göngu Bretlands
úr sambandinu
funduðu á ný í
gær, í fyrsta sinn
eftir að viðræð-
urnar voru settar
í bið vegna kór-
ónuveirufaraldursins.
Bæði Michel Barnier, aðalsamn-
ingamaður ESB, og David Frost,
samningamaður Breta, fengu kór-
ónuveiruna, auk þess sem Boris
Johnson, forsætisráðherra Breta,
var þungt haldinn um stund.
Fór fundurinn fram með fjar-
fundabúnaði, en ekki eru taldar
miklar líkur á að samkomulag náist
í tæka tíð, því undanþágur Breta í
viðskiptum við ESB vegna útgöng-
unnar renna út um áramótin næstu.
Hafa bresk stjórnvöld lýst því yfir
að ekki komi til greina að fram-
lengja þær. Var sú afstaða stjórn-
valda ítrekuð í gær.
Viðræður um Brexit
aftur farnar af stað
Michel
Barnier
BRETLAND
Rannsóknarlögreglumenn í Nova
Scotia leituðu í gær ástæðu þess að
Gabriel Wortman, 51 árs gamall að-
stoðarmaður tannlæknis með hreint
sakavottorð, ákvað að ganga ber-
serksgang um helgina. Staðfest var í
gær að Wortman hefði orðið að
minnsta kosti átján að bana áður en
hann sjálfur var felldur af lögregl-
unni.
Justin Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, sagði í gær á blaðamanna-
fundi sínum að mögulega myndi eng-
inn vita hvers vegna Wortman ákvað
að láta til skarar skríða. Lýsti Trud-
eau yfir þjóðarsorg í Kanada vegna
ódæðisins.
Stephen McNeil, fylkisstjóri
Novia Scotia, sagði að rannsókn
málsins yrði flóknari en ella vegna
kórónuveirufaraldursins, og varaði
kanadíska lögreglan einnig við því að
enn kynnu að finnast fleiri fórnar-
lömb eftir skotárásina.
Kveikti í og skaut á íbúana
Wortman hóf árás sína í bænum
Portapique, þar sem hann átti
minnst tvö íbúðarhús. Vitni segja að
hann hafi kveikt í húsum þar og skot-
ið á fólk er það flúði eldtungurnar.
Fyrstu fórnarlömb hans virðast hafa
verið honum vel kunnug.
Var Wortman klæddur í lögreglu-
búning og keyrði á milli staða í bíl
sem hafði verið málaður til að líkjast
lögreglubíl. Stöðvaði hann meðal
annars bifreið undir því yfirskini að
hann væri lögreglumaður, og skaut
svo ökumann og farþega bílsins.
Lögreglan náði að króa Wortman
af við bensínstöð í bænum Enfield, í
nágrenni Halifax. Hófst þar skot-
bardagi, er lauk með andláti Wort-
mans. sgs@mbl.is
Leita að ástæðu
fyrir ódæðinu
Átján manns
létust í skotárás-
inni í Nova Scotia
AFP
Þjóðarsorg Flaggað var í hálfa
stöng við höfuðstöðvar fjalla-
lögreglunnar í Nova Scotia.
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, lýsti
því yfir í gær að hann vildi að ríkis-
stjórar landsins afléttu öllum höml-
um sem nú væru í gildi í þessari
viku, þrátt fyrir að heilbrigðisráðu-
neyti landsins telji að kórónuveiru-
faraldurinn hafi ekki náð hápunkti
sínum í Brasilíu. Forsetinn rak heil-
brigðisráðherra landsins á föstudag-
inn fyrir að styðja við áframhaldandi
útgöngubann.
Stjórnarandstaða landsins gagn-
rýndi Bolsonaro hart í gær fyrir að
hafa tekið þátt í mótmælum um
helgina gegn útgöngubanninu, en
hávær hluti mótmælenda hrópaði
meðal annars hvatningarorð til hers-
ins um að loka þinginu. Sagði Bols-
onaro sér til varnar að hann væri
frjáls skoðana sinna, en bætti við að
hann vildi ekki láta loka þinginu eða
hæstarétti landsins.
Vill opna
Brasilíu
í vikunni
Gagnrýna mót-
mæli Bolsonaros