Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 Það vill iðulega gleymast – eða þá að því er virðist er sleppt í umfjölluninni – að Evrópa er meira en Evrópusambandið (ESB). Í álfunni Evr- ópu telja Sameinuðu þjóðirnar að séu 44 ríki, en sú „Evrópa“, sem ESB nær til, telur ekki nema 27. Upphaf ESB Kímið að „Evrópu“ ESBs varð til árið 1949 í Evrópuráðinu og síð- ar í Stál- og kolasambandinu (SK) árið 1957, sem sex ríki, Belgía, Frakkland, Ítalía, Lúxemborg, Hol- land og Vestur-Þýskaland stóðu að. SK var á yfirborðinu stofnað til þess að hafa stjórn á stál- og kolaiðn- aðinum hjá þeim þjóðum, sem mynd- uðu það, vegna þess að talið var að með því að stýra þessum þáttum mætti koma í veg fyrir nýtingu þeirra til hergagnaframleiðslu og hervæðingar og að þannig yrði unnt að stuðla að friði í álfunni. Raunar var þó strax í upphafi víðtækari hug- mynd að baki þó að hún færi ekki hátt í umræðunni lengi framan af. Hún sneri að myndun Bandaríkja Evrópu í anda Bandaríkja Norður- Ameríku og átti uppruna lengra aft- ur í sögunni. ESB Er tímar liðu stækkaði það, sem upphaflega var KS, með inntöku ríkja í sambandið og lokastigið nú um stundir er ESB, sem talið er formlega komið til sögunnar árin 1992-1993 með Maastricht-sátt- málanum (MS). Í stað MS kom svo Lissabon-sáttmálinn (LS) árið 2009, sem er í raun stjórnarskrá ESB. Í honum kemur fram með ljósum hætti það markmið, sem hljótt var um lengi framan af, eða það að koma á einni yfirstjórn yfir öllum þeim ríkjum, sem mynda ESB, þar sem sjálfstæði þeirra yrði sem næst að öllu lagt fyrir róða. Reyndar hefur alla tíð verið unnið ötullega að því að skerða þetta sjálf- stæði og það gert undir yfirskini samræmingar með ýmsum reglu- gerðum og sáttmálum, sem binda hendur stjórnvalda hina einstöku ríkja – og jafnvel ríkja utan ESB, sem hafa undirgengist föst tengsl við sam- bandið og þar með það að lúta boðum þess. Á meðal þessara ríkja er Ísland og má í því efni minnast þriðja orku- pakkans, sem deilur stóðu um fyrir skömmu, en mun fleira mæti nefna. Vaxandi óánægja Alla tíð hafa verið uppi efasemdir um ESB og forvera þess. Þær fóru ekki hátt árum saman, enda kom upp nokkurs konar pólitísk- ur rétttrúnaður innan þess, sem laut að því að ekki mætti gagnrýna það og sem kvað alla gagn- rýni niður að hætti rétttrúnaðar- sinna allra tíma – það er að segja með hnýfilyrðum, uppnefnum og óhróðri en ekki rökum. Efasemd- irnar hurfu þó ekki, heldur efldust þær ekki síst eftir tilkomu LS, enda má segja að þá hafi hið ólýðræðislega stjórnarfar ESBs opinberast einna ljósast. Sáttmálann átti að fá sam- þykktan í þjóðaratkvæðagreiðslu innan meðlimaríkjanna árið 2008. Frakkar og Hollendingar höfnuðu honum og einnig Írar, en þeir voru látnir kjósa aftur og samþykktu hann þá. Síðan LS sett á án þess að leitað væri samþykkis þegnanna. Hin vaxandi óánægja almennings með ESB kemur ekki hvað síst fram í síauknu fylgi stjórnmálaflokka, sem hafa uppi gagnrýni á sambandið. Þeir hafa gagnrýnt íþyngjandi og viðamikið regluverk sambandsins, sem runnið er að miklu mestu undan rifjum ókjörinna embættismanna og hefur þrúgandi áhrif á fjölda sviða atvinnulífs og gerða almennings. Einnig hefur gagnrýnin beinst að sjálfum stjórnarháttum og uppbygg- ingu ESB, sem ýmsir telja ekki meira en svo lýðræðislega, þó að fylgjendur sambandsins telji sig vera í framvarðarsveit lýðræðisins. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt, að líkja ESB við hið rússneska sovét, þar sem til dæmis var kosið til sýndar- þings, og telja, að hið sama sé uppi í tilfelli Evrópuþingsins, enda sé það lítið annað en stimpilstofnun. Sá blær andúðar, sem uppi hefur verið í garð ESB, hefur á síðustu vik- um og mánuðum stig af stigi verið að sækja í sig veðrið. Einkum hefur það gerst í allra síðustu tíð eftir tilkomu COVID-19-plágunnar. Stoðir sam- bandsins virðast vera teknar að bresta. Hin háa hugsjón – ein af meginstoðum ESB – frjáls för manna um álfuna heyrir í það minnsta um sinn sögunni til. Ríki loka sig af. Uppi eru háværar raddir um getuleysi og ónýti sambandsins í því að bregðast við plágunni. Ítalir leituðu aðstoðar betur megandi ríkja í norðanverðri álfunni, en komu að mestu að lokuðum dyrum og svo er að yfir 60% Ítala telja sig ekki hafa gagn af verunni í ESB. Í sunnan- verðri álfunni gnæfir yfir gífurleg kreppa vega þeirra áhrifa sem plág- an hefur og mun hafa en lítill vilji virðist vera til samstöðu. Fyrir var klofningur innan ESB, til dæmis vegna innflytjendamála. Útganga Breta úr ESB jók í og nú bætist plágan við sem eykur enn á sundr- ungu og þá kreppu sem ESB hefur verið og er í. Hvað bíður? Ýmsir spekingar telja sig jafnvel sjá endalok ESB fyrir. Að minnsta kosti það að miklar sviptingar séu langlíklegastar og þá miklar breyt- ingar innan sambandsins. Framtíðin leiðir í ljós hvað verður. ESB mun án efa reyna að halda sér og sinni stefnu við lýði. Óneit- anlega er það þó svo að flest hnígur að því að menn verði að íhuga stefnu sína og gerðir allt frá grunni og að ESB verði ekki það sama og fyrr þegar þeirri óáran sem nú gengur yf- ir það og heiminn allan linnir. Framtíð „Evrópu“ Eftir Hauk Ágústsson Haukur Ágústsson »Hvað bíður „Evrópu“ ESBs. Höfundur er fv. kennari. Ríkisstjórnin hefur gert hrapalleg mistök í efnahagsstjórnun og við höfum tapað fjórum vikum vegna þess. Mis- tökin eru fólgin í:  að gera ráð fyrir að fyrirtæki landsins vilji fjármagna sig í ósjálfbærri stöðu í viðskiptabankakerf- inu til að forðast yfirvofandi greiðslu- eða gjald- þrot.  framkvæmd á niðurgreiðslu launa.  að nota ekki núverandi [núll] raunvexti til að létta á rekstri heimila og fyrirtækja.  að gefa sér það að efnahagsvanda- málið sé til nokkurra vikna eða mánaða en ekki til lengri tíma, svo sem eins til tveggja ára eða út árið 2021.  að kalla ekki á helstu óháðu efna- hagssérfræðinga landsins til ráð- gjafar.  að gefa ekki þjóðinni leiðsögn um efnahagslegar afleiðingar COVID. Vegna COVID-faraldursins munu gjaldeyristekjur líklega lækka um 250 ma. á þessu ári og því miður aðra 250 ma. árið 2021 [nettótölur]. Þetta mun hafa þær afleiðingar að ganga þurfi á gjaldeyrisvarasjóðinn en hann ætti að duga þar sem annar kostnaður er innlendur. Atvinnu- lausir og þeir sem eru á 75% regl- unni stefna í að fara yfir 50.000 manns. Þá má reikna með að þjóð- artekjur minnki um 20% á yfirstand- andi ári og 10% á því næsta. Þessar byrðar leggjast á ríkissjóð til að byrja með, þjóðin mun borga þetta síðar. Þótt COVID sé heimsfaraldur sem allar okkar viðskiptaþjóðir eru líka að lenda í ættum við Íslendingar að geta leyst okkar eigin vanda hér heima sjálfir. Ríkisstjórn Íslands, sem ákvað að loka samgöngum til og frá landinu og flestum fyrirtækjum landsins, borgi allan kostnað almennings við þessar aðgerðir að minnsta kosti þangað til vorið 2021, gefinn verði þriggja mán- aða fyrirvari á að stuðningi sé hætt. Þá taki fyrirtæki ábyrgð á rekstri sínum vonandi með gott ferða- mannasumar 2021. Vextir eru nú lágir og rétt væri að fjár- magna allan kostnað ríkissjóðs vegna CO- VID-faraldursins núna með láni úr Seðlabank- anum. Rétt væri að endurfjármagna öll nú- verandi húsnæðislán, fyrirtækjalán og bankalán almennings; lengja þau um tvö ár, engar afborganir þessi tvö ár og með lánin tryggð með ríkisábyrgð til að tryggja sem lægstu vexti. Lán sem veitt verða eftir að faraldrinum lýkur verði á venjulegum forsendum. Í stað núverandi niðurgreiðslu launa í formi 75% starfs [minnkað starfshlutfall], eins og búið er að semja um við aðila atvinnumark- aðarins, verði niðurgreiðsla til fyr- irtækja 100% til að þau viðhaldi ráðningarsambandinu, starfsmenn mæti ekki til vinnu. Laun verði niðurgreidd 50% til þeirra fyrirtækja sem hafa séð tekjur 20% lægri en rekstrarkostnaður og þar sem at- vinnurekendur vilja að starfsmenn mæti til vinnu. Atvinnuleysisbætur verði hækkaðar um 100 þúsund á mánuði meðan á COVID stendur og einyrkjum og sjálfstætt starfandi leyft að skrá sig [allir fá að skrá sig sem eru ekki á launum annars stað- ar]. Gert verði ráð fyrir því að enginn sem er á atvinnuleysisskrá fái vinnu meðan á COVID stendur. Ríkis- starfsmenn haldi sínum núverandi launum. Ekki er hægt að ætlast til að bankakerfið sjái um að fjármagna fyrirtæki sem eru eða verða greiðslu- eða gjaldþrota. Rétt væri að öll COVID-lán til fyrirtækja væru gerð í banka sem ríkið setti upp ein- göngu í því skyni og Seðlabankinn héldi á. Viðskiptabankarnir gætu verið verktakar í þessari vinnu. Ekki væri gerður neinn greinarmunur á „lífvænlegum og ekki lífvænlegum fyrirtækjum“. Ríkið taki á sig líklega um 1.000.000 ma. á þessum tíma en það fleytir íslensku samfélagi í gegn- um þennan ólgusjó. Við viljum koma standandi niður á okkar eigin fótum sem þjóð þegar þessum COVID-tíma lýkur. Til að efla utanumhald um efna- hagsmál í stjórnarráðinu væri rétt að skipa formlega sérfræðinefnd eins og gert var í Noregi í síðustu viku, t.d. skipuð sex íslenskum hag- fræðingum sem eru ekki hags- munatengdir. Fulltrúar sérfræðinefndar og Seðlabanka haldi vikulega blaða- mannafundi í sjónvarpi þar sem þeir sitji fyrir svörum á sama hátt og þríeykið gerir í dag. Sama geri pólit- ísk forysta ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin hafi samráð við stjórnarandstöðuna með þessar að- gerðir. Að lært verði af mistökum í fjármálum heimila og fyrirtækja eins og gerðist í kjölfar bankahrunsins 2008. Komið verði í veg fyrir að vext- ir hækki eins og þá, komið verði í veg fyrir að bankar leysi til sín fyrirtæki og selji svo aftur og að lán til heimila verði færð til 110% af virði þeirra. Sporin hræða. Næstu mánaðamót og þau sem á eftir koma geta orðið mjög grimm í efnahagslegu tilliti. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki og heimili verði tekjulaus. Gera má ráð fyrir óánægju og óróa sem magnast á næstu vikum og mánuðum í þjóð- félaginu. Útganga úr COVID Gert er ráð fyrir í þessari umfjöll- un að í byrjun 2021 verði að minnsta kosti komin lyf sem slái mjög á ein- kenni COVID í veikindum og með- ferð á sjúkrahúsum og geri álag á heilbrigðiskerfið ásættanlegt. Að bóluefni sé þá að minnsta kosti í aug- sýn. Ráðherrar tóku að sér það verk- efni að stjórna landinu, þeir þurfa að tala meira við þjóðina. Þjóðin mun kalla þá til ábyrgðar, ekki seinna en í kosningum á næsta ári. Það er ekki ásættanlegt að ríkis- stjórnin klúðri þessu verkefni, þetta er miklu verra efnahagslega en 2008. Pólitísk mistök í efnahagsstjórnun Eftir Holberg Másson »Ríkisstjórnin hefur gert hrapalleg mis- tök í efnahagsstjórnun og við höfum tapað fjór- um vikum vegna þess. Holberg Másson Höfundur er framkvæmdastjóri. holberg.masson@softverk.is Í endalausri ótíð, brælum og gæftaleysi (á gamlan mælikvarða) nú í vetur hef ég stund- um hugsað til þeirra sem stunduðu á vetrar- vertíð sjóróðra frá Loftsstöðum, Tunguósi og Baugsstöðum suður í Flóa. Allt árabátar. Páll Guðmundsson á Baugsstöðum segir (Bókaflokkurinn Suðri 1970): „það var ekki fyrir neinn undirmálsmann að vera formaður á þessum brim- sundum. Það þurfti stundum snilli til að skjótast milli skers og báru.“ Fá sjóslys urðu hér frá söndunum gegnum aldirnar og þótti það til merkis um klóka og útsjónarsama formenn (skipstjóra). En afli var oft drjúgur, stutt á miðin. Lýsingar Einars Guðnasonar, starfandi skipstjóra (Jón á Hofi ÁR), á fiskgengd nú á þessum slóð- um virðast sambærilegar við þessi gullaldarár. Til eru sögur um 24 skip sem reru samtímis frá Loftsstöðum. Þar stóð útgerð 30-40 ár í mestum blóma. Flest skipin voru smíðuð á þessum árum. Það hefur verið líf og fjör, þá jafnvel 150-200 karlmenn við róðra á þessum slóð- um á sama tíma. Flest voru skipin „áttróin með níu manna áhöfn“. Er frægt máltæki upprunnið í Gaulverja- bæjarhreppi (nú Flóa- hrepp). Páll segir frá þekktum förumönnum sem voru á ferð á hverjum vetri. Einn af þeim var Bréfa-Runki, Skaftfellingur fæddur 1830. Fór víða og m.a. með bréf og önnur skilaboð milli verstöðva. „Internet“ þeirra tíma til að fá fréttir. „Vomurnar voru verstar,“ segir Páll, sbr. sögnin að vomast yf- ir einhverju. Hér getur orðið stór- brim í besta veðri (líkt og við þekkj- um Bæhreppingar), sundin fyrir opnu hafi og jafnvel landlegur af þeim sökum svo dögum skipti. Við þannig aðstæður birtist Runki eitt sinn. Var strax spurður fiskifrétta af sjómönnum í landi. „Þeir fiska sem róa,“ svaraði hann um hæl. Lúmskt skot á karl- ana að róa ekki. Var það haft fyrir máltæki síðan, sagði Páll. En afli á land varð samt oft ágætur. Kom sér þá vel að stutt var á miðin og mest komust kappsamir menn fimm sinn- um á sjó sama daginn! Þrjú til fjög- ur skipti algengt. Nú á tímum COVID-pestar sem skekur heiminn er merkilegt að Páll minnist á „inflúensuvertíðina 1894“. Þá voru ógæftir og brælur „fram um marzlok“. Þá „kom inflúensan sem lagði flesta í rúmið. Lítið sem ekkert hægt að róa fyrir mannleysi“ (loksins þegar gaf). Þessi flensa var skæð um allt land og lýsingar á ein- kennum pestarinnar í annálum virð- ast ótrúlega líkar og í dag. Börnin sluppu að mestu en fólk í eldri kant- inum varð veikast. Þessi vetur virð- ist nánast „kopí peist“ núverandi ástands 2020. Árið 1895, seint í mars, komust Þykkbæingar ekki til baka í land. „Brimaði snögglega“ og lending ómöguleg. Freistuðu þeir þess að fara vestur yfir Þjórsárós; tvö stór skip, 30 menn alls, yngsti 15 ára og elsti 80 ára. Komu að Loftsstaða- sundi undir kvöld. Ekki var skárra í sjóinn þar. Eldur var kveiktur á Loftsstaðahóli. Vissu þeir þá að tek- ið hafði verið eftir þeim. Enn var stórbrim næsta morgun, en skipin tvö sáust fyrir utan. Gísli Jónsson á Eystri-Loftsstöðum og Jón sonur hans freistuðu þess þá að róa út til þeirra. Þeir sögðust ekki geta skipað neinum að koma með, svo illt var út- lit. En allir buðust til og gátu þeir valið úr þeirra öflugustu mönnum með árina. Biðu lengi eftir sjólagi og Jón stýrði. Komust loks út fyrir brimgarð í hvissandi ölduróti. „Þeir náðu mönnunum og röðuðu þeim endilöngum niður í skipið eins og fiskur væri „ Komust þeir í land. Var þá mál manna að aldrei hefði verið farið um Loftsstaðasund í öðru eins brimi. Enn herti vind og sjó. Sást ekkert eftir af bátum þeirra daginn eftir. Páll segir að eftir 1900 hafi fisk- gengd farið að minnka, sérstaklega ýsan. Ástæðan m.a. sú að bresku togararnir voru komnir alveg hér upp undir fjöru og toguðu þar á bestu miðunum. Eftir þetta fækkaði skipum mjög, en útræði hélt áfram fyrripart síðustu aldar í minna mæli. Ótíð, brælur, baráttan við Ægi og pestir Eftir Valdimar Guðjónsson »Nú á tímum COVID- pestar sem skekur heiminn er merkilegt að Páll minnist á „inflú- ensuvertíðina 1894“; þá voru ógæftir og brælur „fram um marzlok“. Valdimar Guðjónsson Höfundur er kúabóndi á bænum Gaulverjabæ. gaulverji1@outlook.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.