Morgunblaðið - 21.04.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 10:00-14:00 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
Rithöfundurinn Hildur Knútsdóttir
var beðin um að mæla með lista-
verkum sem hægt er að njóta innan
veggja heimilisins í samkomubanni.
„Ég var að klára að lesa Grown
Ups, nýju bókina eftir Marian
Keyes. Ég mæli alveg hrikalega
mikið með henni – eins og öllum
bókum Marian
reyndar, þær eru
fyndnar og
skemmtilegar og
taka sig ekki
mjög hátíðlega
þótt þær fjalli um
alvöru stöff.
Mjög gott að lesa
hana þegar mað-
ur er niðurdreg-
inn.
Á undan henni las ég Range of
Ghosts eftir Elizabeth Bear. Hún er
líka góð, þótt hún sé aðeins meira
„heví“. Þetta er fantasía sem gerist
í ímynduðum heimi sem líkist helst
Asíu. Allir eru mikið á hestbaki og
að drekka te og borða núðlur og
dömplinga og vekja upp dauða
stríðsmenn með svartagaldri.
Þessa dagana er ég búin að vera
mikið heima með börnunum mín-
um, eins og kannski fleiri, og þess
vegna hefur tónlistarvalið svolítið
stýrst af því að finna eitthvað sem
allir nenna að hlusta á. Það er t.d.
Taylor Swift, Billie Eilish og barna-
platan Bland í poka.
Núna er ég að horfa á nýju ser-
íuna af RuPauĺs Drag Race og líka
einhvern frekar „skerí“ þátt sem
heitir The Outsider, veit ekki alveg
hvort ég mæli með honum, hann er
byggður á bók eftir Stephen King
og er eiginlega aðeins of sorglegur
og ógeðslegur fyrir þessa tíma – ég
er soldið viðkvæm þessa dagana
eins og aðrir. En ef einhver er ekki
búinn að horfa á Fleabag þá verður
sá hinn sami að gera það strax.
Podköstin sem ég hlusta mest á
núna eru Dear Prudence, sem er
gamaldags heiðarlegur vanda-
máladálkur – það er alltaf svo gam-
an að gægjast inn í einkalíf fólks –
og svo Harry Potter and The
Sacred Text. Þar lesa tveir trúlaus-
ir guðfræðingar úr Harvard Harry
Potter eins og bækurnar væru
helgirit. Það hljómar kannski
undarlega en meikar samt fullkom-
inn sens!“
Mælt með í samkomubanni
Fleabag Hildur segir að hafi fólk ekki horft verði að bæta úr því.
Bland í poka
höfðar til allra
Marian Keyes Bækur hennar eru
„fyndnar og skemmtilegar“.
Hildur
Knútsdóttir
AFP
Heimilislegir The Rolling Stones flutti „You Can’t Always Get What You Want“, hver meðlimur heima í sinni stofu.
Margar vinsælustu stjörnur
tónlistarheimsins í Bandaríkjunum,
Bretlandi og víðar tóku höndum
saman og komu á laugardagskvöldið
var fram í tveggja klukkustunda
löngu streymi frá heimilum sínum,
til stuðnings heilbrigðisstarfs-
mönnum í framlínu baráttunnar
gegn COVID-19.
Áður en aðalútsendingin hófst var
löng upphitun þar sem minni spá-
menn komu fram.
Yfirskrift dagskrárinnar, sem
Lady Gaga stóð að ásamt fleirum,
var „One World: Together at
Home“. Streymt var á netinu en líka
sent út á þremur af vinsælustu sjón-
varpsstöðum Bandaríkjanna, CBS,
NBC og ABC, og skiptust kvöld-
þáttastjórar stöðvanna, Stephen
Colbert, Jimmy Fallon og Jimmy
Kimmel, á um að kynna, með góðri
aðstoð ýmissa sem ávörpuðu áhorf-
endur og heilbrigðisstarfsmenn.
Meðal listamana sem komu fram má
nefna Paul McCartney, Rolling
Stones, Billie Eilish, Lizzo, Taylor
Swift, Stevie Wonder og Elton John.
Studdu heil-
brigðisstarfsfólk
Látlaust Billie Eilish flutti ásamt Finneas slagarann „Sunny“.
Hugmyndasmiðurinn Lady Gaga söng „Smile“ eftir Charlie Chaplin.
Stjörnufans í beinni
Barnamenningarhátíð í Reykjavík
hefði átt að hefjast í dag, hefði ekki
komið til samkomubannsins, en
ekki verður hægt að halda fjöl-
menna viðburði fram á sumar.
Samt vill Reykjavíkurborg að börn
fái að njóta eins ríkulegrar barna-
menningar í vor og sumar eins og
kostur er. Í því skyni hefur verið
lögð fram tillaga að fyrirkomulagi
viðburða í nafni hátíðarinnar.
Lag Barnamenningarhátíðar
2020, samið af Daða Frey og unnið í
samstarfi við 4. bekki, mun koma út
í maí og verður Daði Freyr með
tónleika fyrir 4. bekki á netinu.
Lagið fer svo í almenna spilun þeg-
ar 4. bekkir hafa fengið að heyra
það fyrstir allra.
Viðburðir sem hafa fengið sam-
þykktar umsóknir um fé til við-
burða og/eða eru á dagskrá hátíð-
arinnar munu fá sveigjanleika til að
framkvæma þá í nafni hátíðarinnar
á tímabilinu 4. maí til 15. ágúst.
Opnunarviðburður Barnamenn-
ingarhátíðar fer fram 20. apríl á
næsta ári. Þá verður 4. og 5. bekkj-
ar árgöngum grunnskóla borgar-
innar boðið að njóta hátíðardag-
skrár í Hörpu saman.
Ævintýrahöll Barnamenningar-
hátíðar verður á Árbæjarsafni þeg-
ar samkomubanni fyrir allt að 2.000
manns hefur verið aflétt.
Barnamenningarhátíð tekur breytingum
Morgunblaðið/Eggert
Í fyrra Emmsjé Gauti tróð upp á hátíðinni.
Met var sett hvað varðar fjölda umsókna um styrki úr Hönnunarsjóði.
Umsóknarfrestur fyrir úthlutun í maí rann út 15. apríl og er ljóst að aldrei
hafa jafnmargir sótt um. Alls bárust 126 umsóknir um 237 milljónir króna,
sem er um 30% aukning, en sjóðurinn mun veita 20 milljónir að þessu sinni.
Í tilkynningu frá Hönnunarsjóði segir að ljóst sé að „ástandið í kjölfar
Covid-19-faraldursins hefur áhrif á fjölda umsókna og virðist líka hafa
áhrif á verkefnin sem sótt er um sem snúa mörg að nýsköpun í kjölfar far-
aldurs og breyttri heimsmynd sem blasir við. Meðal annars má sjá áherslu
á rafrænar lausnir, sjálfbærni og matarsóun.“
Hlutverk sjóðsins er að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á
sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf.
Hönnunarsjóður veitir jafnframt styrki til kynningar- og markaðsstarfs
erlendis í því skyni að efla útflutning íslenskrar hönnunar.
Metfjöldi umsókna úr Hönnunarsjóði