Morgunblaðið - 24.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Streymisfundur meðBjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæð-
isflokksins, og Þórdísi KolbrúnuReykfjörðGylfadóttur varafor-
manni verður í hádeginu í dag, föstudaginn 24. apríl kl. 12:00.
Farið á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins til þess
að fylgjast með fundinum og senda inn spurningar.
Streymisfundurmeð
Bjarna&Þórdísi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Í HÁDEGINU
NÚ ÍDAG:
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Engar hvalveiðar verða í ár, ef að líkum lætur.
Aðalástæða þess að Hvalur hf. hefur ekki hval-
veiðar annað árið í röð er erfiðleikar á mark-
aðnum í Japan, að sögn Kristjáns Loftssonar
framkvæmdastjóra. Stjórnvöld niðurgreiða
veiðar heimamanna þannig að hvalaafurðir
héðan verða ekki samkeppnisfærar. Auk þess
eru gerðar aðrar kröfur til heilbrigðisvottunar
afurða sem fluttar eru héðan en þeirra eigin af-
urða.
„Við leggjum ekki keisarann í Japan, hann
er öflugri en það,“ segir Kristján. Eftir að Jap-
anir sögðu sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu á
árinu 2018 hafa þeir stundað hvalveiðar í eigin
landhelgi. Eru það bæði sandreyður og undir-
tegund hennar og hrefna. Veiðarnar fara fram
frá bátum sem leggja upp hjá móðurskipi úti á
miðunum. Einnig á minni bátum sem veiða
hrefnu nær landi og landa aflanum ferskum á
markað. Telur Kristján að kvótinn samsvari af-
urðum af um 100 langreyðum.
Endalausar kröfur
„Veiðarnar eru svo mikið niðurgreiddar að
verðið á afurðunum skiptir útgerðirnar engu
máli. Greiðslurnar eru líka faldar á ýmsan hátt.
Það gengur ekki fyrir okkur að keppa við
þetta,“ segir Kristján. Hann segir að enn séu
gerðar endalausar kröfur um prufur og efna-
greiningar hér og í sumum tilvikum endur-
tekningar í Japan en engar kröfur gerðar til af-
urða frá japönskum útgerðum.
Segir Kristján að þótt markaðurinn í Japan
væri í lagi hefði verið nánast vonlaust að hefja
veiðar og vinnslu vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Menn séu að vinna við hvalskurð í miklu
návígi. Ef einhver veiktist þyrfti að setja
marga menn í sóttkví og þá gengi dæmið ekki
upp.
Unnið að rannsóknum
Kristján er þó ekki af baki dottinn með að
hefja hvalveiðar að nýju. Hann segir að rann-
sóknir sem unnið hafi verið að á úrvinnslu úr
hvalaafurðum séu í fullum gangi. Þær felast í
því að athuga möguleika á því að nýta lang-
reyðarkjöt í járnríkt fæðubótarefni fyrir fólk
sem þjáist af blóðleysi og framleiða gelatín úr
beinum og hvalspiki til lækninga og matvæla-
vinnslu.
Heimilt er að veiða 161 langreyði á ári vest-
an við landið og 48 austan við það og 217 hrefn-
ur á landgrunninu. Engar hvalveiðar voru
stundaðar á síðasta ári en árið 2018 voru veidd-
ar 146 langreyðar en aðeins 6 hrefnur.
Leggjum ekki keisarann í Japan
Engar hvalveiðar í ár Kristján Loftsson segir að hvalveiðar í Japan séu svo mikið niðurgreiddar
að ekki sé hægt að keppa við þær Þróa efni úr hvalaafurðum til fæðubótar og lækninga
Morgunblaðið/Júlíus
Hlé Hvalbátarnir liggja bundnir við bryggju.
Í Laugarneshverfinu fögnuðu nokkrir íbúar
sumardeginum fyrsta með því að leika á hljóð-
færi sín úti á tröppum, hver heima hjá sér vegna
samkomubannsins. Hvatti íþróttafélagið Þróttur
alla í hverfinu til þess að taka þátt í fögnuðnum.
Þau Kristján Valur Árnason, Helga Júlía Árna-
dóttir og Árni Snorri Valsson urðu við áskorun-
inni og liðu frá þeim ljúfir tónar, nágrönnum og
vegfarendum til mikillar ánægju.
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Spilað og sungið á tröppunum heima
Hundrað og sextíu björgunar-
sveitarmenn af höfuðborgarsvæð-
inu og Vesturlandi leituðu að tíu
ára dreng sem varð viðskila við
fjölskyldu sína við Hreðavatn í
Borgarfirði eftir hádegi í gær.
Drengurinn fannst heill á húfi á
sjötta tímanum við gíginn Grábrók,
nokkrum kílómetrum norðaustan
við staðinn þar sem hann hafði orð-
ið viðskila við foreldra sína.
Þyrlan kölluð út
Að sögn Davíðs Más Bjarna-
sonar, upplýsingafulltrúa Lands-
bjargar, var leitarsvæðið seinfarið,
en þar er mikið kjarrlendi, hraun
og klettar.
Leitað var fótgangandi og á fjór-
hjólum og voru leitarhundar, spor-
hundar og drónar nýttir við leitina,
auk þess sem þyrlusveit Land-
helgisgæslunnar var kölluð út. Þá
voru 40 björgunarsveitarmenn til
viðbótar á leið að vatninu er
drengurinn fannst.
„Það hjálpaði til þegar mikill
mannskapur var kominn á svæðið
að þá fóru að berast ábendingar frá
björgunarsveitarfólki sem hafði séð
til hans svo það var hægt að
þrengja hringinn aðeins,“ segir
Davíð í samtali við mbl.is
Fannst
eftir fjöl-
menna leit
160 leituðu að tíu ára
dreng í Borgarfirði
Um 750 manns hafa svarað þjóð-
háttakönnun Þjóðminjasafnsins,
spurningakönnun um lífið á dögum
kórónuveirunnar sem finna má á
heimasíðu safnsins. Ágúst Ólafur
Georgsson, sérfræðingur þjóð-
háttasafns Þjóðminjasafnsins, seg-
ist mjög ánægður með viðtökurnar.
„Við erum að reyna að safna heim-
ildum fyrir framtíðina um það
hvernig lífið er á þessum sögulegu
tímum. Þetta er einstakt tækifæri
fyrir fræðimenn til að safna heim-
ildum,“ segir hann og bætir við að
ráðist hafi verið í álíka verkefni í
nágrannalöndum okkar.
Þjóðminjasafnið hefur um 60 ára
skeið staðið fyrir þjóðháttakönnun,
þar sem landsmenn geta sent inn
heimildir um líf sitt. Segir Ágúst að
könnunin hafi reynst ómetanlegur
fjársjóður og margar ritgerðir
verið skrifaðar upp úr henni.
Könnunin nú sé hins vegar sú mikil-
vægasta frá upphafi.
Góðar viðtökur við
þjóðháttakönnun