Morgunblaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020
Veiðivefur
í samstarfi við
40 ára Björn Ásgeir er
fæddur og uppalinn í
Hveragerði og að hluta
til í Ólafsvík. Hann er
pípulagningameistari
ásamt því að vera eig-
andi og framkvæmda-
stjóri Lagnaþjónust-
unnar ehf. á Selfossi.
Maki: Rannveig Reynisdóttir, f. 1985,
iðjuþjálfi og starfar sem forstöðumaður
stuðningsþjónustu og málefna aldraðra
hjá Hveragerðisbæ.
Börn: Lovísa Ásgeirsdóttir, f. 2015, og
Árelía Ásgeirsdóttir, f. 2018.
Foreldrar: Björgvin Ásgeirsson, f. 1961,
pípulagningameistari og stórbóndi á há-
tæknibúinu í Hlíðartungu.
Hrefna Kristjánsdóttir, f. 1961.
Björn Ásgeir
Björgvinsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gerðu eitthvað öðruvísi í dag, ann-
aðhvort eitthvað lítið eða stórbrotið. Þú
býrð yfir miklum krafti og hreinskilni, hugs-
ar hratt og missir ekki af neinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Gættu þess að bregðast ekki of hart
við minniháttar málum. Gættu þín á að vera
ekki óþolinmóður gagnvart þeim sem eru
þér nákomnir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú ríður á að þú haldir fast við
þitt og látir ekki smáatriðin trufla þig. Vertu
á verði gagnvart hvers konar leyndarmálum
og leynimakki.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki það sem þú segir eða
hvernig þú segir það sem skiptir máli.
Reyndu að temja þér meiri tillitssemi í sam-
skiptum við aðra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Lífið heldur áfram þó þú tapir stund-
um, það gerir sigrana bara sætari. Virtu
skoðanir annarra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert kappsfullur með áhuga á
mörgum sviðum og átt auðvelt með að laða
fólk til samstarfs. Gefðu rómantískum elsk-
huga alla þína ást í stað þess að flækja mál-
in.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að leggja þig allan fram til
þess að ná þeim upplýsingum sem þarf svo
þú getir ótrauður haldið áfram starfi þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er úr vöndu að ráða þegar
staðið er frammi fyrir mörgum mögu-
leikum. Vertu rólegur því þú munt njóta ár-
angurs erfiðis þíns í fyllingu tímans.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samheldnin er fyrir öllu en það
þýðir þó ekki að hver og einn eigi ekki að
eiga stund fyrir sjálfan sig. Traust skiptir
öllu máli svo þú getir staðið þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Enginn er fær um að lesa ann-
arra hug svo þið verðið að tjá ykkur um það
sem vefst fyrir ykkur. Bryddaðu upp á nýj-
ungum í samskiptunum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Smámunasemin er alveg að fara
með þig þessa dagana. Gakktu ótrauður til
verks við nýtt verkefni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er eðlilegt að finna til af-
brýðisemi vegna yfirgengilegrar velgengni
annarra. Sýndu varkárni í peningamálum
og ekki eyða um efni fram.
F
riðrik Karlsson, gítar-
leikari hljómsveitar-
innar Mezzoforte, varð
fyrstur til að ljúka
stúdentsprófi af
tónlistarbraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti á sínum tíma, árið 1982.
Árið eftir lauk hann burtfararprófi í
gítarleik frá Tónskóla Sigursveins
„Og ég er náttúrulega með bílpróf,“
segir Friðrik og hlær innilega. „Ég
bara rétt náði að klára námið og þá
vorum við bara farnir að túra,“ rifjar
Friðrik upp.
Hann lauk enn fremur fjölda tón-
listartengdra námskeiða, hvort
tveggja í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. „Ég var búinn að fá styrk til
að fara í háskóla í Ameríku, en svo
ákvað maður bara að láta frægðina
stíga sér til höfuðs,“ segir gítarleik-
arinn, sem hefur nánast eingöngu
starfað við tónlist síðan á unglings-
árum og var farinn að hafa tekjur af
tónlistinni þegar 15 ára gamall.
Fyrir utan unglingavinnuna, sem
margur Íslendingurinn hefur reynt
á eigin skinni, starfaði Friðrik sem
afgreiðslumaður í hljóðfæraverslun-
inni Rín við Rauðarárstíg og telur að
hann eigi þar enn sölumet í gíturum.
Kennsla hefur verið drjúgur þátt-
ur af starfsferli Friðriks. Hann
kenndi við Tónskóla Sigursveins,
þar sem hann sjálfur nam, og auk
þess við skóla Félags íslenskra
hljómlistarmanna, FÍH. Árið 1990
stofnuðu þeir Björn Thoroddsen
gítarleikari, sem líklega er einna
nafnkunnastur fyrir hljómsveit sína,
Tríó Björns Thoroddsen, Nýja
gítarskólann við Rauðagerði.
„Þetta var rosalega vinsæll skóli,
þú gast lært allt þarna, rokk og
djass og eiginlega allar stefnur og
kennararnir okkar voru vanir tón-
listarmenn, Bjössi sjálfur náttúru-
lega hálærður og þetta var bara
mjög skemmtilegt tímabil,“ segir
Friðrik, sem bjó í Bretlandi í 18 ár
og spilaði þar með mörgum þekktum
tónlistarmönnum, svo sem bresku
söngkonunni Kate Bush á röð 22
tónleika árið 2014 sem voru fyrstu
tónleikar hennar síðan 1979.
Þá var Friðrik gítarleikari í sjón-
varpsþáttunum X-Factor og hefur
komið fram með listafólki á borð við
Madonnu, José Carreras og hinn
velska Tom Jones.
Ekki er þó örgrannt um að Frið-
rik Karlsson er kunnastur fyrir feril
sinn með Mezzoforte, sveitinni sem
öðlaðist nánast heimsfrægð árið
1983 með laginu Garden Party og
lætur enn engan bilbug á sér finna.
Messufall varð þó hjá sveitinni í
fyrirhugaðri tónleikaferð um Noreg
sem hefjast skyldi í Stavanger 5.
mars, um það leyti sem kórónu-
veiran herti tak sitt fyrir alvöru á
Evrópu og Norðurlöndunum.
„Öllum tónleikunum var frestað
fram á haust og ég veit auðvitað
ekkert hvernig það fer,“ segir
Friðrik.
Ekki blés byrlegar með sextugs-
afmælið í dag. „Ég er nú bara búinn
að vera í sjálfskipaðri sóttkví. Ég
ætlaði að halda risaveislu og endur-
vekja fullt af gömlum hljómsveitum
sem ég hef verið í, en þetta verður
bara allt að bíða, hvort sem það
verður í haust eða hvað. Nú ætlum
við bara að hittast nánasta fjöl-
skyldan.“
Helsta áhugamál Friðriks, nú
þegar árin færast yfir, er heilsan.
„Ég stunda sjósund. Fyrir þremur
árum ákvað ég að hætta að drekka
áfengi og sjósundið hefur svolítið
komið í staðinn, það er ákveðið
„kick“,“ segir Friðrik, sem auk þess
stundar líkamsrækt undir vökulu
auga einkaþjálfara og hugleiðslu og
jóga, en hugleiðslu- og slökunar-
tónlist gítarleikarans er vafalaust
mörgum kunn sem slíkt sækja.
Þá er samband Friðriks við einka-
dóttur sína, Maríu Von, honum ákaf-
lega kært og segir hann dótturina
augasteininn sinn.
„Ég gef út undir eigin nafni, en
tónlistin kemur út hjá Alda Music
sem var Sena áður. Nú fer þetta allt
á Spotify og aðrar streymisveitur,
maður gefur ekkert út á diskum
lengur, það er alveg búið,“ segir
Friðrik og hlær, en hann heldur auk
áðurnefndra leiða úti sínu eigin smá-
forriti, eða „appi“, ichill music.
Skyldi líf tónlistarmanna nú-
tímans þá alltaf vera sama harkið og
þekkst hefur um áratugi, eilífur
Friðrik Karlsson gítarleikari – 60 ára
Ljósmynd/Aðsend
Reynslubolti Friðrik Karlsson gítarleikari hefur marga fjöruna sopið á 45
ára tónlistarferli og man tímana tvenna. Hann fórnar stórveislu í dag.
Ætlaði sér að halda risaveislu
Ljósmynd/Aðsend
Feðgin Bæjarlistamaður Seltjarnarness ásamt Maríu Von dóttur sinni.
50 ára Unnur Jóns-
dóttir er Árbæingur
en býr í Hafnarfirði.
Unnur er þroskaþjálfi
og með meistarapróf
í lýðheilsuvísindum.
Hún starfar sem
yfirþroskaþjálfi í
skammtímadvölinni Hnotubergi í
Hafnarfirði sem þjónar fötluðum ung-
mennum.
Maki: Hilmar Þór Harðarson, f. 1956,
vélfræðingur og rafvirki.
Börn: Jón Hálfdan, f. 1995, Dagný, f.
2002, og Daníel Vignir, f. 2003.
Foreldrar: Jón H. Guðmundsson, f.
1946, húsasmíðameistari frá Súganda-
firði, og Hólmfríður Jónsdóttir, f. 1944,
hjúkrunarfræðingur frá Kópaskeri.
Unnur
Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is