Morgunblaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 recast svefnsófi kr. 149.900 vandaðir og góðir svefnsófar frá innovation living denmark - skoðaðu úrvalið á linan.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Það eru svo sem ekki ný sannindi að tónlistarmönnum þykir mörgum sop- inn góður. Ófáar sögur eru til af sulli og svalli og hefur þá stundum verið horft frekar í magnið en gæðin. Síð- ustu ár hafa hins vegar æ fleiri úr tónlistarheiminum opinberað ástríðu sína fyrir vönduðum vínum og bjór. Þá er ekki bara verið að vísa til krafna sem þeir leggja fram um hvað skuli vera til staðar baksviðs á tón- leikum þeirra – sumir hafa gengið svo langt að hefja framleiðslu á gæðavöru til að fá útrás fyrir þessa ástríðu. Þessi bylgja hefur nýverið náð til Ís- lands og minnst þrjár bjórtegundir hafa verið unnar í samstarfi við ís- lenskt tónlistarfólk. „Það hefur verið frábært að vinna með þessum hæfileikaríku tónlistar- mönnum sem eru vel að sér í bjór- fræðum – og vita hvað þeir vilja,“ seg- ir Árni Theodór Long, bruggmeistari hjá Borg brugghúsi. Á dögunum var kynntur til leiks bjórinn Undraland, sem gerður var í tilefni tíu ára af- mælis hljómsveitarinnar Valdimars. Þetta er þriðji bjórinn á skömmum tíma sem Borg gerir í samstarfi við hljómsveitir; fyrstur kom Bjór! Sem gerður var með Fræbbblunum og síð- ar Fever Dream sem unninn var með meðlimum Of Monsters and Men. 38 ára aðdragandi Árni segir í samtali við Morgun- blaðið að fyrsta samstarfsbrugg Borgar hafi verið vorið 2015 og strax þá hafi sú lína verið lögð að ekki væri verið að brugga bjór fyrir einhvern annan – allir yrðu að hafa eitthvað til málanna að leggja. „Það var svo á haustdögum 2018 sem snillingarnir í Fræbbblunum komu að máli við okkur og höfðu áhuga á samstarfi um bruggun á bjórnum Bjór!, sem nefndur er í höf- uðið á tímamótalagi þeirra frá 1981 sem talið er hafa haft raunveruleg áhrif á afléttingu bjórbannsins átta árum síðar. Innan bandsins er alvöru bjóráhugafólk sem hefur skoðanir á bjór og var að einhverju leyti með í þessari handverksbjórasenu sem við erum í. Okkur var því bæði ljúft og skylt að brugga með því þennan bjór í upphafi árs 2019, eftir 38 ára bið frá útgáfu lagsins, og í tilefni af 30 ára af- mæli bjórfrelsis á Íslandi,“ segir Árni. „Þarna opnuðum við aðeins dyrnar og svo gerist það síðasta vor að mögu- lega stærsta hljómsveit Íslandssög- unnar, Of Monsters and Men, hafði samband og lýsti yfir áhuga á að brugga með okkur bjór í tilefni af út- gáfu plötunnar Fever Dream.“ Gömul vinasambönd úr Reykja- nesbæ voru þar endurvakin en einn meðlima Of Monsters and Men, Brynjar gítarleikari, lærði tónfræði þar í bæ hjá Sturlaugi Jóni Björns- syni, bruggmeistara hjá Borg. „Þann bjór erum við einmitt að endurgera núna með þeim og er von á honum í búðir á næstu dögum,“ segir Árni. Önnur tenging úr Reykjanesbæ liðkaði til fyrir gerð bjórsins Undra- lands. „Fyrir nokkrum vikum kom svo út bjórinn Undraland, sem við brugguðum með hljómsveitinni Valdimar í tilefni af tíu ára afmælis- tónleikum sveitarinnar. Bandið er stofnað um sama leyti og brugghúsið og því 10 ára afmælisþema í gangi þar. Líkt og með Fever Dream var Tónlistarskóli Reykjanesbæjar hluti af tengingunni, en Valdimar og Stulli spiluðu þar saman og þekkjast frá unga aldri.“ Sting með vínekru á Ítalíu Meðal erlendra tónlistarmanna sem hafa látið til sín taka í vín- og bjórgerð er söngkonan Fergie, sem gerði garðinn frægan með Black Eyed Peas. Hún stofnaði víngerðina Ferguson Crest með pabba sínum og hefur vakið athygli fyrir ágætlega heppnuð rauðvín. Tónlistarmaðurinn Sting á vínekru á Ítalíu og nefnir vín- in af henni eftir frægustu lögum sínum, til að mynda Message in a Bottle og Roxanne. Söngvarinn Rick Astley, sem gerði garðinn frægan á níunda áratugnum, tók höndum saman við danska sí- gaunabruggarann Mikkeller og fram- leiddi bjór fyrir nokkrum árum. Þeir hafa síðan sett á fót tvo bari saman í heimaborg Astleys, London. Hljóm- sveitin The National gerði sömuleiðis bjór með Mikkeller fyrir skemmstu. Þá hefur rokkarinn Sammy Hagar lengi fengist við framleiðslu romms og tekíla. Popparar brugga af metnaði  Sífellt fleiri tónlistarmenn taka þátt í framleiðslu á metnaðarfullum vínum og bjór  Þrjár íslenskar bjórtegundir hafa nýlega verið framleiddar í samstarfi við tónlistarfólk  Horfa í gæði fremur en magn Samstarf Tveir meðlima hljómsveitarinnar Of Monsters and Men skála með bruggurum Borgar brugghúss. Mjúkt Söngkonan Fergie úr Black Eyed Peas þykir gera frambærileg vín.Hart Marilyn Manson gerir absint. Metnaður ræður ekki alltaf för þeg- ar tónlistarmenn leggja nafn sitt við áfengisframleiðslu. Oft og iðulega er augljóst að krónur og aurar ráða för. Þannig hefur stundum verið gert grín að bjórnum Bastards Lager sem kenndur var við hljómsveitina Motörhead. Í kynningu var hann sagður fá dreifingu „beint úr helvíti“ en var í raun framleiddur í Svíþjóð. Annar ómerkilegur bjór var Badass, sem bar nafn Kid Rock. Hann lét framleiða samfestinga og sitthvað fleira til að fylgja bjórnum úr hlaði en flestir létu sér fátt um finnast. Sama gildir um ýmsar tegundir sem hljómsveitin AC/DC hefur selt nafn sitt við. Og ætli margir séu hrifnir af rauðvíninu Kiss this Wine? Eða flauelsmjúku Zinfandel-víninu frá Whitesnake? En svo er líka hægt að fara alla leið með þetta eins og gert er með rauðvínið sem ber nafn rokkarans Ozzy Osbourne. Sérstök útgáfa af því er seld í líkkistum svo þar er í það minnsta kominn safngripur. Sama gildir með viskí sem gefið var út í tilefni 50 ára afmælis The Roll- ing Stones, en á flöskunni var tung- an fræga skorin út í glerið. Viltu Whitesnake eða Ozzy með matnum?  Tónlistarmenn lána nafnið sitt Valdimars- bjórinn Undraland. Ozzy Osbourne- rauðvín. Fræbbblarnir-Bjór! AC/DC- bjórinn. Whitesnake- rauðvín. Motörhead- viskí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.