Morgunblaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA. Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16
RAFLAGNAEFNI
Í MIKLUÚRVALI
Alexander Kristjánsson
Ragnhildur Þrastardóttir
„Stór hluti Íslendinga upplifir nú
veruleika margra öryrkja með þeirri
einangrun sem fylgir heimsfaraldri
kórónuveirunnar.“ Þetta sagði Þuríð-
ur Harpa Sigurðardóttir, formaður
Öryrkjabandalags Íslands, á blaða-
mannafundi almannavarna í gær.
Tæplega 20.000 Íslendingar hafa
þurft að fara í sóttkví og 2.000 í ein-
angrun.
Kórónuveirufaraldurinn er í rénun
en virk smit eru nú 270. Alls greindust
fjögur ný smit í gær en undanfarna
daga hefur fjöldi nýgreindra verið
undir miðspá úr líkani HÍ. Alma Möll-
er landlæknir segir þó ekki tilefni til
að flýta tilslökunum á samkomubanni
í ljósi víðtækra áhrifa bannsins á efna-
hagslífið. „Nei, við teljum engan veg-
inn óhætt að slaka á,“ sagði Alma.
Blóðþynning og veik lungu
Ellefu liggja nú á Landspítala
vegna kórónuveirunnar. Þar af eru
átta sem er batnað af sjúkdómnum en
glíma enn við afleiðingar sýkingar-
innar, að sögn Páls. Sagði hann að
margir sjúklingar glímdu við blóð-
storknun og fengju þynningarlyf, en
það er algengur fylgifiskur gjör-
gæslumeðferðar. Þá eru margir
þeirra með veikluleg lungu.
Feðrum verður heimilt að vera við-
staddir fæðingar frá og með 4. maí.
Þeim verður þó ekki heimilt að fylgja
konu á legudeild eftir fæðingu eða að
fara í sameiginleg rými. Heimsóknar-
bann verður í meginatriðum óbreytt
eftir 4. maí, sagði Páll og áfram miðað
við að heimsóknir verði ekki leyfðar
nema í undantekningartilfellum sam-
kvæmt mati starfsfólks.
Þó verður rýmkað um heimsóknir á
Grensásdeild og þær leyfðar eftir
klukkan fjögur á daginn. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun um rýmkun
reglna á Landspítalanum við Hring-
braut eða í Fossvogi en Páll segir að-
spurður að skýrar vísbendingar þurfi
um að kórónuveirusmit sé að minnka
mjög í samfélaginu. Slík ákvörðun sé í
höndum sóttvarnalæknis.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 2 58
Útlönd 1 0
Austurland 8 14
Höfuðborgarsvæði 1.306 464
Suðurnes 77 30
Norðurland vestra 35 5
Norðurland eystra 46 16
Suðurland 177 55
Vestfirðir 95 88
Vesturland 42 19
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands
Óþekktur
Erlendis
45.093 sýni hafa verið tekin
1.509 einstaklingar hafa náð bata
10 einstaklingar eru látnir
15 eru á sjúkrahúsi 5 á gjör-gæslu
270 eru í einangrun
Fjöldi smita frá 28. febrúar til 22. apríl
Heimild: covid.is
1.789 smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
1.789
270
apríl
1.750
1.500
1.250
1.000
750
500
250
þeirra sem
hafa greinst
voru í sóttkví
81%
54%
9,6% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,61% sýna tekin hjá ÍE
18.623 hafa lokið sóttkví749 manns eru í sóttkví
Staðfest smit
Virk smit
feb. mars
„Engan veginn óhætt að slaka á“
Megum ekki hrósa sigri of snemma 11 á Landspítala vegna veirunnar, þar af átta sem er „batnað“
Blóðstorknun algeng eftir gjörgæslulegu Feður fá að vera viðstaddir fæðingar frá 4. maí
Ljósmynd/Lögreglan
Blaðamannafundur Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, var gestur á fundinum í gær.
Íslenskur læknir sem starfar í
nágrannaríki Íslands þurfti að
leggjast inn á sjúkrahús vegna
kórónuveirunnar eftir að hafa
smitast við störf. Hafði honum
áður verið gert að sinna sjúk-
lingum, sem smitaður voru af
veirunni, án viðeigandi hlífðar-
búnaðar. Þetta kom fram í máli
Páls Matthíassonar, forstjóra
Landspítalans, á blaðamanna-
fundi almannavarna í gær.
Páll sagði að læknirinn væri
einn af bestu vinum hans, en
það hefði tekið lækninn langan
tíma að ná sér á strik aftur
vegna takmarkaðrar aðstoðar
heilbrigðiskerfisins. Þá hefði
verið töluverð bið eftir því að
komast í skimun.
„Ég er þakklátur fyrir að búa
í landi þar sem við höfum bor-
ið gæfu til að hugsa um sjúk-
linga sem einstaklinga og
meta stöðuna út frá stað-
reyndum en ekki óskhyggju,“
sagði Páll. Það væri ekki sjálf-
gefið að brugðist væri jafn vel
við faraldrinum og hér.
Þakklátur
Íslendingum
VINUR PÁLS SMITAÐIST Á
SJÚKRAHÚSI ERLENDIS
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráð-
herra hefur dustað rykið af tillögum
frá árinu 2006 um viðbyggingu við
Þjóðleikhúsið og óskað eftir að þær
verði endurskoðaðar með það að
markmiði að móta nýjar tillögur.
Frá þessu greindi Lilja í grein hér
í Morgunblaðinu í gær í tilefni af 70
ára afmæli leikhússins.
Magnús Geir Þórðarson þjóðleik-
hússtjóri segir í samtali við Morgun-
blaðið að orð ráðherra séu fagnaðar-
efni. „Þetta er mál sem leikhúsfólk
hefur kallað eftir árum saman og ég
fagna því að ráðherra sýni þörfum
leikhússins skilning og stuðning á af-
mælinu.“
Starfsemin í nokkrum húsum
Starfsemi Þjóðleikhússins hefur
fyrir löngu sprengt utan af sér, en
útihús þess eru nú nýtt sem skrif-
stofur, tveir sýningarsalir, Kassinn
og Kúlan, eru í gömlu íþróttahúsi í
Lindargötu aftan við aðalbygging-
una og æfingaaðstaða er í gamla
Hæstaréttarhúsinu að Lindargötu 3.
Magnús Geir seg-
ir að þessi rými
séu ekki tilvalin
fyrir starfsemi
leikhússins.
Tillögurnar frá
árinu 2006 ganga
út á að stækka
bygginguna til
austurs með
svartri kassalaga
viðbyggingu sem
myndi hýsa annað svið. Magnús Geir
segir að vanda þurfi verulega til
verka þegar byggt er við jafn sögu-
frægt hús og Þjóðleikhúsið, sem
hann segir eina merkilegustu bygg-
ingu þjóðarinnar. Hugmyndirnar frá
2006 hafi hins vegar verið ansi klókar
og hann sé sannfærður um að hægt
sé að útfæra tillögur sem samræmist
þörfum greinarinnar og standist all-
ar kröfur út frá arkitektúr.
Aðspurður segir Magnús ótíma-
bært að segja til um hvenær ný við-
bygging gæti verið tekin í gagnið
enda sé verkefnið á upphafsreit. „En
það er ómetanlegt að finna fyrir
stuðningi ráðherra sem hann sýnir í
verki með þessu afgerandi skrefi.“
Mun stórbæta að-
stöðu leikhússins
Menntamálaráðherra opnar á hug-
mynd um viðbyggingu við Þjóðleikhúsið
Magnús Geir
Þórðarson