Morgunblaðið - 24.04.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020
GRÆNT ALLA LEIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fiskur verður ekki unninn í fiskiðju-
veri Brims hf. á Norðurgarði í
Reykjavík næstu tvo mánuðina. Að
loknum vinnudeginum í dag hefst
undirbúningur að uppsetningu á full-
komnum vinnslubúnaði og hugbúnaði
fyrir bolfiskvinnslu, auk endurbóta og
nauðsynlegra lagfæringa á húsnæð-
inu. Áætlað er að hefja vinnslu á
Norðurgarði að nýju í lok júní. Brim
og Marel skrifuðu undir samning um
verkefnið í október í fyrra og áætlar
Ægir Páll Friðbertsson, fram-
kvæmdastjóri Brims, að í heild nemi
fjárfestingin um þremur milljörðum.
Unnið af krafti í Hafnarfirði
Undanfarnar vikur hefur verið lögð
áhersla á veiðar og vinnslu á karfa og
ufsa vegna aðstæðna á erlendum
mörkuðum. Tveir ísfisktogarar í stað
þriggja verða gerðir út þann tíma sem
breytingar standa yfir, einn ísfisk-
togari Brims fer í slipp á tímabilinu og
annar í önnur verkefni. Starfsfólk á
Norðurgarði fer í sumarleyfi meðan á
framkvæmdum stendur.
Brim keypti Fiskvinnsluna Kamb
hf. í Hafnarfirði síðastliðið haust,
meðal annars með það að markmiði
að nýta þá fiskvinnslu á meðan á
framkvæmdum við Norðurgarð í
Reykjavík stæði. Bætt verður veru-
lega í starfsemina þar á meðan unnið
verður að breytingum á Norðurgarði
og er stefnt að því að hluta starfs-
fólksins verði boðin vinna í Kambi
meðan á framkvæmdum stendur.
Ægir Páll segir að rólegt hafi verið
á mörkuðum erlendis síðustu vikur og
sala á afurðum verið mjög hæg. Þetta
eigi sérstaklega við um sölu á sjó-
frystum afurðum, þar sem t.d. Bret-
landsmarkaði var lokað, og um fersk-
an fisk en salan sé aðeins farin að taka
við sér á ný á ferskum afurðum.
Nýjasta tækni
Þegar greint var frá samningi
Brims og Marels sagði m.a. í frétta-
tilkynningu: „Kerfið felur í sér ýmsar
nýjungar, þar á meðal öflugt gæða-
eftirlitskerfi og nýjustu róbótatækni
sem mun sjálfvirknivæða og strauml-
ínulaga vinnsluna til muna.
Meðal þess sem Brim hefur fest
kaup á er háþróað pökkunarkerfi með
tíu róbótahausum sem mun strauml-
ínulaga allt pökkunarferlið. Jafn-
framt felur vinnslukerfið í sér þrjár
FleXicut vatnsskurðarvélar ásamt til-
heyrandi forsnyrtilínum og sjálfvirkri
afurðadreifingu, auk þess sem Brim
verður fyrst til að innleiða nýtt
SensorX beinaleitarkerfi fyrir fersk-
ar afurðir. Hugbúnaður verður í lyk-
ilhlutverki í nýja vinnslukerfinu, þar
sem hann tengir tækin í hverju
vinnsluþrepi hvert við annað og
tryggir jafnframt rekjanleika gegn-
um allt vinnsluferlið.“
Morgunblaðið/Eggert
Viðey RE Einn ísfisktogara Brims.
Fullkominn bún-
aður settur upp
á Norðurgarði
Lokað í fiskiðju-
verinu í tvo mánuði
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsmenn RVK Studios eru að
undirbúa tökur á vísindaskáldsögu-
þáttunum Kötlu, þar sem Vík í Mýr-
dal og nágrenni er sögusviðið.
Þættirnir verða sýndir á Netflix.
Verkefnið kemur á besta tíma inn í
samfélagið, þar sem ferðamennirnir
sem bera atvinnulífið uppi skila sér
ekki vegna kórónuveirufaraldursins.
Sveitarstjórinn segir að íbúarnir taki
þessu verkefni fagnandi.
Þættirnir, sem eru úr smiðju Balt-
asar Kormáks, eiga að gerast þegar
Katla hefur gosið nær samfellt í heilt
ár með tilheyrandi afleiðingum fyrir
Víkurbúa.
Hluti Víkur mun í samræmi við
þetta breyta um svip á meðan á tök-
um stendur, frá því sem nú er. Aska
verður yfir öllu og staðurinn hálf
yfirgefinn og eyðilegur. Þegar er
byrjað að dreifa ösku á helstu töku-
staði en einnig verður útliti staðarins
breytt í eftirvinnslu, að því er fram
kemur í tilkynningu RVK Studios til
íbúa.
Kemur á besta tíma
„Við höfðum áhyggjur af þessu
umstangi þegar það fór að dragast
að tökur hæfust, enda áttum við von
á því að bærinn yrði fullur af ferða-
mönnum. En nú kemur þetta á besta
tíma. Mér skilst að þættirnir verði
sýndir í febrúar á næsta ári og held
að þeir hljóti að verða mjög góð
kynning fyrir okkur,“ segir Þorbjörg
Gísladóttir, sveitarstjóri í Vík.
Kvikmyndatökufólkið áformar að
hefja undirbúning á staðnum strax
og samkomubannið breytist, 4. maí,
og að mannskapurinn mæti 7. maí og
verði meira og minna í Vík út mánuð-
inn og jafnvel fram í júní.
Í tilkynningu RVK Studios til íbúa
kemur fram að mikil áhersla verði
lögð á hreinlæti og sóttvarnir og að
skila staðnum síðan vel af sér að tök-
um loknum.
90% tengjast ferðaþjónutu
Staðan í atvinnumálum í Mýrdals-
hreppi er afar erfið enda byggist at-
vinnulífið á ferðaþjónustu. Þorbjörg
segir að 90% íbúanna séu í störfum
sem tengist ferðaþjónustu. Það hafi
því áhrif á öll heimili þegar ferða-
menn komi ekki. Margir eru á hluta-
bótum eða fullum atvinnuleysisbót-
um og mælist atvinnuleysið 42% af
vinnuaflinu nú um stundir. Þorbjörg
er ekki bjartsýn um að atvinnuleysið
muni minnka í maí, eins og Vinnu-
málastofnun spáir, og telur að það
gæti farið upp í 50%. Þeir fáu sem
halda fullri vinnu eru starfsmenn
sveitarfélagsins og dvalarheimilisins
og bændur á fjórum kúabúum.
Hún segir að kvikmyndaverkefn-
inu fylgi stór hópur fólks. Það gistir
á Hótel Kötlu, hvar annars staðar, og
vonast Þorbjörg til að það nýti veit-
ingahúsin og aðra þjónustu.
Aska fellur á Vík í rúman mánuð
Umsvif sem fylgja tökum á vísindaskáldsöguþáttunum Kötlu eru kærkomin þegar ferðaþjónustan er
í lamasessi Flestir íbúarnir vinna við ferðaþjónustu og stefnir í 50% atvinnuleysi í næsta mánuði
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Öskufall Gamli sýslumannsbústaðurinn í Vík hefur greinilega eitthvert hlutverk í sviðsmyndinni.
„Við þurfum aðstoð til að kom-
ast í gegnum þessa mánuði. Við
vitum að hingað koma ferða-
menn þegar ferðamenn fara aft-
ur að koma til landsins. Búið er
að byggja mikið upp, bæði stór
og lítil fyrirtæki, og það væri
mikil sóun ef við þyrftum að
bakka aftur í tímann og byrja
upp á nýtt,“ segir Þorbjörg
Gísladóttir sveitarstjóri.
Hún segir að ástandið sé ekki
enn farið að hafa mikil áhrif á
hag sveitarfélagsins sjálfs. „Ég
óttast að fyrirtækin gefist upp á
að halda ráðningarsambandi við
starfsfólk og þá fari fólkið að
flytja úr sveitarfélaginu. Þetta
er kvikur hópur, margir af er-
lendum uppruna.“
Tvær framkvæmdir á vegum
ríkisins eru að hefjast. Lagfær-
ingar á veginum í gegnum þorp-
ið og gerð hringtorgs eru að
hefjast og verið er að bjóða út
varnargarð austan við þorpið
vegna Kötluhlaupa. Þorbjörg
segir að framkvæmdunum fylgi
einhver vinna og umsvif.
Óttast að
fólkið flytji
KVIKUR HÓPUR
Starfsfólk Auðkennis hringir nú í alla
handhafa rafrænna skilríkja þegar
skilríkin eru við það að renna út, til
þess að minna þá á. Það er gert til
þess að fólk lendi síður í þeim erfiðu
aðstæðum að vera með útrunnin skil-
ríki og ef til vill bundið heima í
sóttkví eða einangrun vegna kórónu-
veirufaraldursins.
Hingað til hefur Auðkenni sent
smáskilaboð í þá síma sem eru með
rafræn skilríki. Nú hefur símtalinu
verið bætt við, vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu.
Haraldur A. Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Auðkennis, segir mis-
jafnt hversu marga hringt sé í á dag
en hópurinn sé ekki stór.
Skilríkin duga í
fimm ár og er sá
tími kominn núna
hjá mörgum. Fólk
getur endurnýjað
skilríkin sjálft í
gegnum vef Auð-
kennis eða mætt á
starfsstöðina í
Kringlunni, í
bankaútibú eða til
símafyrirtækis.
Nú hefur aðgengi að þessari þjón-
ustu minnkað, þar sem mörg banka-
útibú eru með takmarkaðan aðgang
og sumar verslana símafyrirtækja
eru lokaðar. Þá þurfti Auðkenni að
loka afgreiðslu sinni vegna slæmrar
aðstöðu til sóttvarna. Haraldur segir
að fyrirtækið hafi í staðinn opnað að-
stöðu í Kringlunni tímabundið. Hún
er í göngugötunni og einnig í aðstöðu
Sambíóanna. Fólk geti alltaf snúið
sér þangað.
Erfitt í sóttkví og einangrun
Haraldur segir að vandinn sé meiri
þegar skilríkin renni út á meðan fólk
er í sóttkví eða einangrun, þess
vegna sé betra að huga að endur-
nýjun í tíma.
Skilríkin endurnýjast til fimm ára
og eru endurgjaldslaus. Um 80%
landsmanna eru með rafræn skilríki
og hlutfallið er yfir 90% í aldurs-
hópnum 30 til 70 ára. helgi@mbl.is
Fólk er minnt á endurnýjun
Auðkenni sendir SMS og hringir ef fólk gleymir sér
Haraldur A.
Bjarnason