Morgunblaðið - 24.04.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 24.04.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-5 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Innra byrði má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta STÓRSNIÐUGT GRILL Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á FASTUS.IS/LOTUSGRILL Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KOMDU NÚ, TRYGGUR. ÞÚ ÁTT AÐ MÆTA Í PÍANÓTÍMANN ÞINN.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... sitt eigið tungumál. SJÁÐU ÓGNANDI AUGNARÁÐIÐ NEI, NEI, BÍDDU. ÉG GET GERT BETUR NEI, ÞETTA VAR FREKAR ÓGNVEKJANDI HVÍ EKKI?! BANNAÐU MÉR AÐ PANTA ÞETTA NOKKURN TÍMANN AFTUR! „ÞETTA ERU BARA HUGSANIR – ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ KRASSA YFIR ÞÆR.” VILJIÐ ÞIÐ PRÓFA „TVEIR FYRIR EINN” DRYKK AF TILBOÐSSEÐLINUM OKKAR? slagurinn um næstu krónu? „Jú, ís- lenska leiðin til að vera tónlistar- maður er að vera að gera rosalega marga hluti, nú er það til dæmis al- veg dottið upp fyrir að spila á böllum og tónleikar hafa í raun tekið við af þeim, margir eru að kenna og oft þarf að róa öllum árum til að lifa af þessu. Þetta var að mörgu leyti góð- ur tími þegar böllin voru og hægt að hafa mjög góðar tekjur af þeim, en það sem er að mörgu leyti komið í staðinn er þessi tónleikamenning og tónleikahúsin sem nú eru komin, til dæmis Harpan og Salurinn í Kópa- vogi, að ógleymdum þessum jóla- tónleikum, fyrirbæri sem var nánast varla til fyrir tíu árum. Þannig að möguleikarnir eru ýmsir og maður þarf bara að vera skapandi í hugsun. Þessar streymisveitur geta til dæm- is gefið þokkalegar tekjur en þú þarft að hafa rosalega mikla spilun til að fá einhverjar tekjur af þeim. Þannig að það eru ýmsar leiðir, en maður þarf að vera eiginlega bara í öllu til að láta hlutina ganga,“ segir Friðrik Karlsson gítarleikari að lokum, sextugur í dag. Fjölskylda Sambýliskona Friðriks er Laufey Birkisdóttir, f. 22.1. 1961, snyrti- fræðingur. Börn Laufeyjar eru Birkir Thor Björnsson háskólanemi, f. 5.3. 1999, og María Elísabet Björnsdóttir háskólanemi, f. 1.11. 2000. Barnsmóðir Friðriks er Steindóra Gunnlaugsdóttir, f. 30.12. 1968, kennari. Foreldrar Steindóru eru Gunnlaugur Sigurðsson rann- sóknarlögreglumaður, f. 2.1. 1932, og Jóhanna Guðrún Steinsdóttir verkakona, f. 18.7.1934. Dóttir Frið- riks er María Von Friðriksdóttir menntaskólanemi, f. 4.2. 2002. Bróð- ir Friðriks er Sigurbjörn Karlsson bifvélavirki, f. 23.12. 1956, maki Steinunn Gunnarsdóttir, f. 20.9. 1953. Sammæðra hálfsystkini eru Guðrún Björg Karlsdóttir, f. 3.10. 1972, námsráðgjafi, Kolbrún Kristín Karlsdóttir, f. 21.2. 1975, vefstjóri, og Jón Einar Karlsson, f. 7.8. 1976, rafeindavirki. Samfeðra þýsk hálf- systkini eru Werner og Ingeborg Sawitzky. Friðrik Karlsson Maria Sawitzky sporvagnstjóri í Berlín Frederich Sawitzky veitingamaður í Berlín Karl Friðrik Karlsson efnaverkfræðingur í Manheim í Þýskalandi Þóra Einarsdóttir húsmóðir á Húsavík Erlendur Guðlaugsson sjómaður á Húsavík Einar Sveinn Erlendsson hafnarverkamaður Sigurbjörg Björnsdóttir verkakona í Álafossi í Mosfellssveit Sigþrúður Dagbjartsdóttir húsmóðir á Hryggjum í Skaftafelli Björn Björnsson bóndi á Hryggjum í Skaftafelli Úr frændgarði Friðriks Karlssonar Guðbjörg Einarsdóttir húsmóðir í Reykjavík Hafsteinn Reykjalín Jóhannes-son byrjaði að yrkja eftir miðjan aldur. Fyrsta ljóðabók hans „Út úr þokunni“ kom út 2012 og nú í apríl sú fimmta, „Gengin slóð“. Yrkisefnin sækir hann í daglega lífið. Hann tók sér það fyrir hendur á árinu 1918 að yrkja eina vísu eða ljóð á dag og þetta er afraksturinn, - 225 sýnishorn af skáldskap þess- um. Það er sérstaða þessarar bókar að geta þannig fylgst með höfund- inum og því sem hann er að hugsa frá degi til dags. Hafsteinn er fædd- ur og uppalinn á Hauganesi við Eyjafjörð og ólst upp við sjósókn og saltfiskverkun. Það á því ekki að koma á óvart, að „Norðangarri“ nefnist fyrsta erindið í bókinni: Nú spáir hann norðan og versnandi veðri, verða mun snjókoma um Norðurland. Eins gott að klæðast þá íslensku leðri, ískaldur snjórinn mun nýtast í bland. Hafsteinn hefur fengist við margt. Hann var vélstjóri á fiski- skipum og fossum Eimskipafélags- ins, var í sjálfstæðum atvinnu- rekstri, hélt málverkasýningar og hefur samið ljóð og lög fyrir kirkju- kóra. Ekki að furða þótt hann yrki: Allt finnst mér snúast í heiminum hratt, allt hverfult og margt við að glíma. Lífið er snúið en líður þó glatt, mig langar að fá meiri tíma. Matarsmekkur hans kemur ekki á óvart: Siginn fisk og selspik þykkt segist kunna að meta, kartöflur og kjöt með lykt og kjamma sviðna eta. Smáskemmtilegt er „Hver sem er“: Ef stein á dettur dropinn dæld þá byrjuð er. Hver sem er með opin augu þetta sér. Menn velta ýmsu fyrir sér í dags- ins önn: Ef að heilsan þjakar þig þarftu ást og hlýju. Þeir sem lækna sjálfa sig sjá gott líf að nýju. Það er léttur húmor í „stutt- ljóðum“ Hafsteins: Nú borða ég ljúffengt og lekkert og lít ekki sykri við. Ég vil fá allt eða ekkert en alls ekki síðan kvið. Ein stakan ber yfirskriftina „5.3. 2018“: Ég hef þennan dýrðar dag í dagbók mína skráð, því að ég hef ljóð og lag lokið við í bráð. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort um daglega lífið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.