Morgunblaðið - 24.04.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020
24. apríl 1979
Morgunblaðið skýrir frá því að
belgíska knattspyrnufélagið
Lokeren vilji semja að nýju við
hinn 17 ára gamla Arnór Guð-
johnsen sem er að ljúka fyrsta
tímabili sínu hjá félaginu. Arn-
ór skoraði eitt mark og lagði
upp þrjú í síðasta leik liðsins,
7:0 sigri á La Louviere þar
sem Keflvíkingurinn Þor-
steinn Bjarnason varði mark
mótherjanna.
24. apríl 1982
Kraftajötunninn Jón Páll Sig-
marsson setur tvö Evrópumet
í kraftlyftingum
á móti í beinni
útsendingu í
sjónvarpssal
Ríkisútvarpsins.
„Þetta er ekkert
mál fyrir Jón
Pál,“ hrópar
hann með 362,5 kg í hönd-
unum í réttstöðulyftu en um
leið setur hann Evrópumet í
samanlögðu í sínum
þyngdarflokki, 940 kg.
24. apríl 1987
Ragnheiður Ólafsdóttir setur
Íslandsmet í 1.500 metra
hlaupi kvenna
þegar hún
hleypur vega-
lengdina á
4:14,94 mínútum
á háskólamóti í
Des Moines í
Bandaríkjunum.
Hún bætti
eigið sex ára met um eina sek-
úndu og þetta met hennar stóð
í 30 ár, eða þar til Aníta Hin-
riksdóttir hljóp á 4:06,43 mín-
útum árið 2017.
24. apríl 1994
Ísland sigrar Bandaríkin, 2:1, í
vináttulandsleik karla í knatt-
spyrnu í Kaliforníu, aðeins 55
dögum áður en bandaríska lið-
ið spilar fyrsta leik sinn á
heimavelli á HM 1994. Helgi
Sigurðsson kemur Íslandi yfir
snemma leiks og Bjarki Gunn-
laugsson skorar sigurmarkið á
86. mínútu eftir fyrirgjöf Ólafs
Þórðarsonar.
24. apríl 1996
Eiður Smári Guðjohnsen, 17
ára gamall leikmaður PSV
Eindhoven, kemur inn á sem
varamaður í sínum fyrsta A-
landsleik í knattspyrnu, fyrir
Arnór Guðjohnsen, föður sinn,
þegar Ísland sigrar Eistland,
3:0, í vináttulandsleik í Tall-
inn. Þeir eru þar með fyrstu
feðgar heims til að taka þátt í
sama landsleiknum. Bjarki
Gunnlaugsson skorar öll þrjú
mörk íslenska liðsins.
24. apríl 2000
Haukar tryggja sér Íslands-
meistaratitil karla í fyrsta
skipti í 57 ár með því að sigra
Fram, 24:23, í fjórða úrslita-
leik liðanna um titilinn í
íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði. Guðmundur
Karlsson stýrir Haukum til
sigurs en honum hafði nokkr-
um mánuðum fyrr verið til-
kynnt að hann yrði ekki
endurráðinn eftir tímabilið.
24. apríl 2010
Morgunblaðið segir frá því að
Ragna Ingólfsdóttir badmin-
tonkona hafi
flogið upp um 29
sæti á heimslist-
anum í íþróttinni
eftir frammi-
stöðu sína á EM í
Manchester. Þar
komst hún í sex-
tán liða úrslit, fyrst íslenskra
kvenna.
Á ÞESSUM DEGI
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslands-
meistara KR, á von á því að knatt-
spyrnumenn hér á landi verði eins og
beljur á vorin þegar þeir mega byrja
að æfa saman á nýjan leik 4. maí
næstkomandi.
Samkomubann hefur ríkt hér á
landi frá 13. mars vegna kórónuveir-
unnar en 4. maí verður slakað á
banninu. Þá mega íþróttamenn með-
al annars byrja að æfa saman, sjö í
einu, en í upphafi stóð til að aðeins
fjórir leikmenn gætu æft saman eftir
tilslakanirnar.
Þá gaf Knattspyrnusamband Ís-
lands, KSÍ, það út á dögunum að til
stæði að hefja leik í úrvalsdeild
karla, Pepsi Max-deildinni, 14. júní
og styttist því óðum í að knatt-
spyrnusumarið fari af stað hér á
landi.
„Við erum farnir að huga að næstu
skrefum varðandi æfingar og und-
irbúning eftir þessar góðu fréttir
sem bárust í vikunni,“ sagði Rúnar í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
ansi stór munur á því að geta æft sjö
saman í einu og fjórir saman í einu.
Að vera sjö saman í hópi býður upp á
mun meiri möguleika og það er
miklu meira hægt að gera á æfing-
unni sjálfri.
Það eru líka miklar gleðifréttir að
við getum farið að hittast meira, allt
liðið, þótt við þurfum vissulega að
halda góðri fjarlægð á milli manna.
Það er mjög mikilvægt fyrir strák-
ana að hittast reglulega og menn var
farið að lengja mikið eftir því að geta
hreyft sig almennilega. Ég finn ekki
fyrir neinu öðru en mikilli tilhlökkun
í öllum hópnum að hefja leik.“
Krefjandi áskorun
Rúnar viðurkennir að það hafi ver-
ið mikil áskorun að undirbúa og
þjálfa liðið á meðan samkomubannið
stóð yfir en ítrekar að þjálfarateymi
liðsins hafi fylgst vel með öllum leik-
mönnum liðsins í millitíðinni.
„Þetta hafa vissulega verið krefj-
andi tímar fyrir okkur þjálfarana.
Það eru ekki margir möguleikar í
stöðunni þegar menn geta ekki æft.
Við höfum sent leikmönnum æf-
ingaáætlun sem hefur aðallega snúið
að hlaupum og úthaldsæfingum. Við
höfum reynt að hafa einhvern smá
fjölbreytileika í þessu svo menn séu
ekki eingöngu að hlaupa Neshring-
inn aftur og aftur á sama hraðanum.
Við höfum reynt að snerta á eins
mörgum þáttum og við getum varð-
andi alla styrktarþjálfun. Þetta hef-
ur verið áskorun og alls ekki auðvelt
en ég tel að liðið sé í góðu standi á
þessum tímapunkti. Við höfum not-
ast við Playertek-æfingavestin og
þau hafa gefið okkur mjög greinar-
góðar upplýsingar og það er mikill
munur fyrir okkur að geta fylgst
svona vel með strákunum.“
Þreyttir á einverunni
Valur og KR áttu að mætast í upp-
hafsleik Íslandsmótsins síðasta mið-
vikudagskvöld, 22. apríl, en ekkert
varð úr því vegna kórónuveirunnar.
KSÍ stefnir á að fyrstu leikir úrvals-
deildarinnar fari fram 14. júní og
Rúnar viðurkennir að það sé gott að
hafa ákveðna dagsetningu til þess að
miða við.
„Það styttist í að við getum farið
að hittast með allt liðið. Menn eru
orðnir þreyttir á að æfa einir og geta
ekki gert meira, sem er bara eðlilegt.
Við í þjálfarateyminu erum búnir að
vera duglegir að taka reglulega púls-
inn á mönnum og það eru allir mjög
spenntir að fara aftur af stað.
Við erum farnir að sjá ljósið í
myrkrinu og menn hafa aðeins áttað
sig á því, almennt bara, hversu stór
hluti fótboltinn er af lífi okkar og
hvað hann gefur manni mikið. Það er
gríðarleg tilhlökkun hjá öllu félag-
inu, leikmönnum, þjálfurum og öllum
sem standa í kringum það að gera vel
í sumar.“
Fullmannaður hópur
Mörg félög eiga í miklum
rekstrarvanda vegna efnahagsáhrif-
anna sem kórónuveiran hefur valdið
og tóku allir leikmenn KR á sig
launalækkun fyrr í mánuðinum.
Rúnar er ánægður með leikmanna-
hóp sinn og ætlar sér ekki að styrkja
hann frekar fyrir átökin í sumar.
„Við erum ekki að fara að bæta við
leikmönnum. Hópurinn er fullmann-
aður og staðan á honum er góð að
undanskildum Emil Ásmundssyni,
sem sleit krossband í hné í upphafi
undirbúningstímabilsins og missir
þar af leiðandi af tímabilinu. Við tók-
um þá ákvörðun fyrir áramótin, áður
en kórónuveiran hóf að herja á okk-
ur, að við værum með fullmótaðan
hóp og það hefur ekki breyst.
Það styttist í að við getum farið að
spila líka og það hafa átt sér stað
umræður varðandi æfingaleiki og
annað um leið og lög og reglur gera
ráð fyrir. Við vitum ekki ennþá hve-
nær við megum byrja að æfa allir
saman en ég á von á því að við byrj-
um að spila fljótlega eftir það,“ bætti
Rúnar við í samtali við Morgun-
blaðið.
Erum farnir
að sjá ljósið
í myrkrinu
Rúnar kveðst finna fyrir mikilli
tilhlökkun hjá leikmönnum KR
Morgunblaðið/Hari
Meistarar Rúnar Kristinsson og lærisveinar hans í KR fögnuðu Íslands-
meistaratitlinum í haust og gætu hafið titilvörnina um miðjan júní.
Bjarni Magnússon hefur verið ráð-
inn þjálfari kvennaliðs Hauka í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik.
Ingvar Guðjónsson, annar fyrrver-
andi þjálfari liðsins, verður Bjarna
til aðstoðar, en þeir voru ráðnir til
tveggja ára. Bjarni var til aðstoðar
í þjálfarateymi hjá báðum Hauka-
liðunum á síðasta tímabili og stýrði
kvennaliðinu í lokaleikjum tíma-
bilsins eftir að þjálfaranum Ólöfu
Helgu Pálsdóttur var sagt upp
störfum í lok febrúar. Undir stjórn
Bjarna varð kvennalið Hauka
bikarmeistari árið 2014.
Bjarni þjálfar
Hauka næstu ár
Ljósmynd/Haukar
Þjálfari Bjarni Magnússon stjórnar
Haukum næstu tvö tímabil.
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, staðfesti í gær að Evrópu-
keppni kvenna í knattspyrnu sem
fram átti að fara á Englandi sum-
arið 2021 yrði frestað um eitt ár og
færi fram þar í landi 6. til 31. júlí
2022. Reiknað var með að þetta
yrði niðurstaðan eftir að Ólympíu-
leikunum var seinkað um eitt ár, til
sumarsins 2021, því A-landslið
kvenna eru þar á meðal keppnis-
liða. Ísland hefur lokið þremur
leikjum af átta í undankeppninni og
unnið þá alla en hinir fimm áttu að
fara fram á þessu ári.
EM frestað til
sumarsins 2022
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EM Ísland á eftir að leika fimm leiki
í undanriðlinum fyrir keppnina.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti
að loknum fundi framkvæmdastjórnar sinnar í
gær að áfram væri lögð þung áhersla á að öllum
deildakeppnum tímabilsins 2019-20 yrði lokið með
því að spila þær til enda.
Aðildarþjóðunum var þó gefið ákveðið svigrúm
í þeim tilfellum þar sem ómögulegt kynni að reyn-
ast að ljúka keppni af völdum útbreiðslu kórónu-
veirunnar.
Í þeim tilvikum yrði viðkomandi deild að taka
ákvörðun um hvernig það væri framkvæmt og fá
síðan staðfestingu á því frá knattspyrnusambandi
sinnar þjóðar.
Lykilatriði, að sögn UEFA, er að staðið sé að
slíku á algjörlega óvéfengjanlegan hátt og æski-
legast væri að niðurstaða fengist með keppni inn-
an vallar.
UEFA áskilur sér síðan rétt til þess að sam-
þykkja eða hafna því að lið frá umræddum löndum
fái keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu og Evr-
ópudeild UEFA á næsta keppnistímabili.
Þá var tilkynnt að UEFA myndi strax senda
greiðslur til félagsliða vegna þátttöku leikmanna
með landsliðum sínum í undankeppni EM karla
sem stóð yfir allt árið 2019. Samtals fá félög leik-
manna þeirra 55 landsliða sem léku í undan-
keppninni 10,7 milljarða íslenskra króna. Meðal
þeirra félaga eru Valur og Víkingur, þar sem
Hannes Þór Halldórsson og Birkir Már Sævars-
son úr Val og Kári Árnason úr Víkingi léku með
íslenska landsliðinu í undankeppninni.
Sérstaklega verður síðan greitt fyrir EM-
umspilið að því loknu, samtals 426 milljónir króna.
Áherslan á að ljúka tímabilinu
UEFA gefur ákveðið svigrúm ef ekki reynist mögulegt að ljúka deildakeppni