Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Qupperneq 6
Að sögn heimildarmanna DV hefur ástandið snar-versnað á undanförnum
tveimur árum. Þeir vilja ekki
koma fram undir nafni af
ótta við verða vikið úr starfi.
„Áður var meiri röð og regla
á hlutunum, við vorum með
trúnaðarmann sem við gátum
leitað til, það var haldið utan
um starfsfólkið, passað að fólk
væri að vinna sína vinnu, yfir-
menn fylgdust með að hlutirnir
gengu upp.“ Enn fremur segir
heimildarmaðurinn að veikindi
hafi verið afar fátíð áður fyrr.
„Í dag heyrir til undantekninga
ef einhver er ekki veikur á
hverri vakt.“
Á Skjóli er svokallaður Vest-
urgangur eyrnamerktur heila-
biluðum. Á þeim gangi eru níu
einstaklingar og tveir starfs-
menn. Af þeim eru fjölmargir
sem ítrekað leggja hendur á
starfsfólk, segir heimildarmað-
ur DV. „Það eru óteljandi atvik
um að starfsfólk fari heim mar-
ið og klórað eftir vakt.“ Starfs-
fólki er ekki veitt nein þjálfun
um hvernig eigi að bregðast
við slíku ofbeldi. Áður fyrr
voru slík ofbeldisverk skráð í
atvikaskrá Skjóls, en nú þykja
árásir heimilismanna á starfs-
fólk orðið slíkt daglegt brauð að
ekki þykir taka því að skrá þær.
Starfsfólk fer því marið, klórað
og meitt heim til sín eftir vakt.
Dæmi um viðbrögð yfirmanna
er hlátur og fliss, „æjj, hann er
bara svona.“
„Við höfum þurft að læsa
einstakling inni svo hann
hlaupi ekki út og lemji starfs-
menn eða annað heimilisfólk,“
sagði heimildarmaðurinn.
„Stundum hefur þurft fjórar
stelpur til að halda niðri ein-
staklingi á meðan hann er
þrifinn að neðan og sett ný
bleyja. Þegar einstaklingur
er í mjög vondu skapi er bara
sett ný bleyja og hlaupið út,
án þess að einstaklingur sé
þrifinn.“
Mannekla orðin hættuleg
heimilisfólki
Mjög fáir karlmenn starfa
á Skjóli og lítið er eftir af
„reynsluboltum“ á erfiðustu
deildunum. „Staðan er sér-
staklega slæm á sumrin
þegar allt reyndasta starfs-
fólkið fer í sumarfrí á sama
tíma,“ segja viðmælendur
DV. „Á Vesturgangi er ekki
sérþjálfað fólk og gerist það
ítrekað að tveir ómenntaðir
umönnunaraðilar séu settir á
vakt þar saman.“
Mönnun vakta á Skjóli hef-
ur hrakað til muna á undan-
förnum árum. „Það þarf enga
menntun til að byrja vinna
hér,“ segir heimildarmaður
DV og bendir á að líklega sé
nóg að sækja um í dag til þess
að fá vinnu. „Það er til dæmis
algengt að fólk sé ráðið inn án
þess að hafa líkamlega burði
til þess að sinna starfinu. Við
þurfum að geta hreyft sjúkl-
inga og erum mikið á fót-
unum. Þó maður sé hér með
líf einstaklings í höndunum
virðist hver sem er fá vinnu.“
Ófaglært fólk látið búa um
lík og áreitt kynferðislega
Starfsmannahaldi Skjóls lýsa
heimildarmenn DV allir þrír
sem „komplett kaos.“ Reyndir
starfsmenn eru að hætta í
hrönnum og nýtt og óhæft
starfsfólk ráðið á móti. Enn
fremur hefur verið slegið af
starfskröfum. Áður fyrr var
íslenskukunnátta skilyrði, nú
er það ekki og margt starfs-
fólkið talar enga íslensku.
Nýja starfsfólkið fær litla sem
enga þjálfun. „Því er gefin
mappa þar sem kemur fram
hvar hlutir eru, bleyjur og lín,
auk helstu starfsaðferða, en
það er enginn undirbúinn und-
ir það mannlega sem gerist á
deildinni, til dæmis að eiga
við ofbeldisfullt heilabilað
fólk. Það krefst þjálfunar og
hæfni að eiga við heilabilað
fólk sem beitir ofbeldi. Þetta
er fólk sem veit ekki hvað það
gerði fyrir þrem sekúndum,“
segir viðmælandi.
Að sögn heimildarmannsins
kemur það fyrir að ófaglært
umönnunarfólk þurfi að búa
um lík. Þá sé yfirleitt um að
ræða heimilismenn sem um-
önnunarfólk hafi þekkt vel og
sinnt í langan tíma. Undir þetta
sé starfsfólk algjörlega óundir-
búið og því standi engin aðstoð
til boða. „Það er ekki boðið upp
á sálfræðiaðstoð eða trúnaðar-
mann sem maður getur rætt
við í tengslum við slíkt áfall.“
Enn fremur segir viðmæland-
inn að það eigi alls ekki að vera
sett í þá aðstöðu til að byrja
með. Verkefnið er mjög krefj-
andi andlega og líkamlega.
Skjól er
fyrsta hjúkr-
unarheimilið í
Reykjavík sem
byggt er frá
grunni með
hjúkrunarrými
eingöngu. Þar
eru 106 legu-
pláss í 99,7%
nýtingu.
ÁSTAND
Á SKJÓLI
Hættulegt ástand hefur
skapast á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli vegna
manneklu og reynslu-
leysis starfsfólks. Heim-
ildarmenn DV lýsa of-
beldi, kynferðislegri
áreitni og óboðlegum
vinnuaðstæðum sem
versnuðu til muna í CO-
VID faraldrinum.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
6 FRÉTTIR 28. ÁGÚST 2020 DV