Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 31
MATUR 31DV 28. ÁGÚST 2020
Þ egar ritstjórn DV lagð-ist í sóttkví var allt tínt til úr ísskápnum og
„comfort food“, eða lægðar-
fæði, var mun oftar á borðum
en ásættanlegt þykir fyrir
fólk með útivistarleyfi. En
það góða sem kom út úr því
– fyrir utan nokkur aukakíló
– er þessi stórkostlegi réttur
sem er án efa einn besti pasta-
réttur síðari ára.
Ábending
Ferskt íslenskt grænkál er að
finna í flestum matvöruversl
unum sem stendur eða í góðum
görðum. Það er tilvalið að nýta
það í morgunþeytinginn eða
þennan rétt.
Ljúffengt lægðarfæði með
hvítvíns-primadonnasósu
Nei, nú skaltu klára að lesa þetta blað og skransa svo út í næstu verslun og kaupa í
þennan rétt. Fyrsti munnbitinn og lífið mun leika við þig um stund.
Besta pastað sem þú munt smakka
Fyrir 3-4 fullorðna
1 pakki ferskt spaghetti eða tagli-
atelle
150 g grænkál
4 hvítlauksrif
2 msk. smjör
1 dl matreiðslurjómi
½ dl hvítvín
200–300 g risarækja (hrá eða elduð
– bæði selt frosið)
Primadonnaostur – væn sneið
ferskt kóríander
salt
chilipipar í kvörn
pipar
sítróna
olía
Setjið 1 dl af olíu, msk. af sítrónu
safa, 1 dl af af söxuðu kóríander, ½
tsk. chili úr kvörn og 2 hvítlauksrif,
pressuð, í krukku og hristið.
Sigtið rækjurnar og pillið ef þær eru
hráar og hellið leginum yfir. Marin
erið í að lágmarki klst.
Skolið grænkálið. Saxið gróft. Setjið
í olíulög og saltið. Nuddið kálið með
leginum og látið liggja í klst. Olían
brýtur niður kálið og gerir það mun
meyrara og betra.
Steikið rækjurnar upp úr smjöri og
merjið eitt hvítlauksrif út á pönnuna.
Gætið þess að ofsteikja þær ekki,
þá verða þær þurrar og seigar. Séu
rækjurnar hráar duga 34 mínútur
við nokkuð háan hita (þar til þær
verða bleikar) því þær halda áfram
að eldast í sósunni.
Bætið grænkálinu á pönnuna.
Hellið rjóma, hvítvíni og 2 dl af rifn
um primadonna út á pönnuna. Saltið
og piprið eftir smekk. Látið malla svo
sósa þykkni.
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbein
ingum. Sigtið og setjið í skál.
Hellið rækjunum í sósunni út á.
Setjið dl af osti yfir, ferskan pipar og
saxað kóríander.
Berið fram með góðu salati og köldu
rósavíni – eða sódavatni.
Ískalt rósavín tekur þennan rétt upp á annað og hærra stig. MYND/ÞORBJÖRG MARINÓSDÓTTIR