Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 24
TÍMAVÉLIN B irgir Gunnlaugsson stofnaði Rokklingana árið 1988. „Ég var þá að reka BG útgáfu og hafði nokkrum árum áður fengið skólafélaga barna minna úr Seljaskóla til að syngja alls kyns lög, svona barnaleikja­ lög, inn á nokkrar kassettur. Hluti af þessum hóp myndaði síðan þennan kjarna sem síð­ ar varð Rokklingarnir.“ 190 krakkar mættu í prufur Fyrirmyndin að Rokklingun­ um voru Mini Pops: breskir sjónvarpsþættir þar sem börn sungu þekkt dægurlög. „Þessi hugmynd sló alveg í gegn í Bretlandi á sínum tíma. Mini Pops nafnið gekk auðvitað ekki upp hérna heima en Leopold Pálsson gekk til liðs við okkur og bjó til Rokklinganafnið og lógóið. Við auglýstum áheyrnar­ prufur í blöðum og á fjórum dögum mættu 190 krakkar.“ Á endanum voru 14 eða 15 krakkar valdir og segir Birg­ ir að ekki hafi verið leitað eft­ ir fullkomnum söngröddum. „Við vorum að leita að þessum náttúrutalent hjá krökkunum, við vildum að þau myndu syngja eðlilega og væru ekki of þjálfuð. Við vildum að þau myndu syngja lögin með sínu nefi, út frá sínu hjarta og með sinni eig­ in túlkun. Eftir að plöturnar komu út fengum við gagnrýni á það að söngurinn væri ekki nógu agaður og þess háttar, en stóðum föst á þessu og það virkaði greinilega vel. Börnin fengu algjörlega að gera þetta á sínum forsendum. Það höfð­ aði til mömmu og pabba og afa og ömmu. Og það höfðaði til annarra krakka líka.“ Fyrsta Rokklingaplatan kom út árið 1989 og þá var einnig stofnaður Rokklinga­ klúbburinn, aðdáendaklúbb­ ur sveitarinnar. „Þetta var fyrsta alvöru „commercial“ barnaplatan sem gefin var út hér á landi. Þetta var í fyrsta skipti sem sem barnaplata var markaðssett eins og full­ orðinsplata.“ Ótrúlegar vinsældir Ári síðar kom önnur platan út auk þess sem Rokklingaskól­ inn vinsæli var stofnaður. Þar gafst krökkum kostur á að syngja og dansa við Rokk­ lingalögin og nokkrir nem­ endur voru síðan teknir inn í sveitina. Þá voru fjölmörg tónlistarmyndbönd gefin út í tengslum við lögin og síðar meir kom út sérstök video­ spóla. „Þetta voru allt meira og minna mín uppáhaldslög. Nína og Geiri er sennilega skemmtilegasta og krútt­ legasta myndbandið og það náði líka mestri spilun,“ segir Birgir, en hann kveðst hugsa til þessa tíma með mikilli hlýju; upptökurnar í stúdíó­ inu og á myndböndunum og stemningin þar í kring. „Síðan kaupir Skífan þetta og þeir gáfu út fjórðu plöt­ una. Sú plata reis aldrei neitt, þeir duttu í þessa faglegu gryfju, fengu kórsöngvara til að syngja eins og börn. Þeir bara náðu ekki konseptinu: Að leyfa börnunum að gera þetta eftir sínu höfði.“ Vinsældir Rokklinganna voru með hreinum ólíkindum. Krakkar um allt land sendu bréf í Rokklingaklúbbinn. „Krakkarnir komu einu sinni í viku niður í BG útgáfu þar sem þau árituðu bréfin frá aðdáendum sem voru svo send til baka. Um jólin árit­ uðu þau svo plötur, svo voru gerðir Rokklingabolir og plaköt. Við tókum þetta alla leið. Ég held að eigi einhver þrjú þúsund aðdáendabréf frá þessum árum. Þetta er allt í kössum niðri í geymslu hjá mér, ásamt búningunum og hinu og þessu. Þetta endar á Þjóðminjasafninu einhvern daginn!“ Þurfti að skipta um símanúmer Birgir segist alls ekki hafa átt von á þessum gríðarlegu vinsældum. „En Leopold sagði við mig, þegar við vor­ um að klára upptökurnar á fyrstu plötunni: „Þú skalt búa þig undir það að þetta mun breyta lífi þínu næstu árin. Þetta verður alveg svaka­ legur hittari.“ Og það gekk eftir. Þetta var auðvitað alveg nýtt: Að barnaplötur væru gefnar út eins og fullorðins­ plötur. Það voru notaðar sömu markaðsherferðir og hjá tón­ listarmönnum eins og Bubba. Einn úr hópnum, hann Júlli sem bjó í Grindavík, hann hætti eftir að plata númer tvö kom út. Hann var einn sá vinsælasti í hópnum, mik­ ill sjarmör og með hása og skemmtilega rödd. Hann fékk engan frið fyrir aðdáendum, það var stöðugt ónæði og for­ eldrar hans þurftu að skipta um símanúmer. Stelpurnar gátu verið ansi agressívar og ófeimnar.“ Birgir hefur lítil afskipti haft af Rokklingakrökkunum í gegnum tíðina og segir það aldrei hafa staðið til að vera með einhvers konar „come­ back“. „Krakkarnir voru yndisleg upp til hópa, þau héldu rosa­ lega vel hópinn og stóðu þétt saman. Hluti af þessum hóp hefur lagt tónlistina fyrir sig. En ég veit að mörg þeirra áttu í vandræðum á unglings­ árum, þeim var strítt mikið á þessu. En ég hef aldrei lent í því að einhver segist sjá eftir þessum tíma. Þeim fannst þetta allt al­ veg ofboðslega gaman. Við flugum um allt land til að skemmta, leigðum flugvél undir hópinn og þeim fannst rosalega flott að vera flogið um í einkaflugvél.“ Það eru liðin rúmlega fimm ár síðan Birgir rifjaði Rokk­ lingatímabilið síðast upp. „Þá var það sem sagt blaðamaður frá Japan sem hafði samband við mig. Gömlu Rokklinga­ myndböndin eru til á netinu og þau eiga aðdáendur um allan heim. Lagið um Nínu og Geira er sérstaklega vin­ sælt.“ Fékk athygli hvert sem hún kom „Þetta var óraunverulegur tími fyrir 11 ára hnátu,“ segir Diljá Ámundadóttir, en hún var hluti af Rokklingunum á sínum tíma. „Ég tók þátt í Rokklinga­ söngkeppni í Húsafelli og lenti í þriðja sæti og var í framhaldi beðin um að koma í prufu fyrir Rokklingana – og komst inn. Ég man eftir löngum dögum í hljóðveri í Hafnarfirði þar sem við sungum hvern slagarann á eftir öðrum og mynduðum svona lagasyrpur. Svo var rosalega gaman að leika í tónlistarmyndböndunum. Eitt var tekið inni á Bíóbarn­ um sáluga. Þar vorum við börnin í svaka 50´s dressum að panta appelsín á barnum og velja lög í glymskratta. Ég var stúlkan með bláu augun sem einn söngvarinn söng til í laginu „Bláu augun þín“. Þetta lag hefur fylgt mér allar götur síðan. Ég man eftir að hafa fengið mikla athygli hvert sem ég kom. Var beðin um eigin­ handaráritanir og fannst mér mjög smart að láta fólk halla sér fram og fá að nota bakið sem borð til að skrifa á. Svo fengum við aðdáenda­ bréf líka. En við fengum samt bara að skoða þau í möppu hjá stjórnandanum þegar við fengum platínuplötur afhent­ ar. Mér hefur alltaf þótt það svolítið leiðinlegt – að hafa ekki fengið afrit af þessum bréfum til að eiga í minn­ ingakassanum. Svo fengum við heldur engin laun. En það er nú önnur umræða.“n Allir Íslendingar muna eftir Rokklingunum sem slógu rækilega í gegn á árunum 1989-1991. Grúpp- una skipuðu krakkar sem sungu vinsælar, íslenskar dægurflugur. Meðlimir Rokklinganna voru eltir á röndum, aðdáendabréf streymdu inn og vegg- spjöld af sveitinni prýddu ófá ísl ensk barnaherbergi. Voru heimsfræg á Íslandi Allir Íslendingar muna eftir Rokklingunum sem slógu rækilega í gegn á árunum 1989- 1991. Meðlimir Rokklinganna voru eltir á röndum og aðdáendabréfin hrúguðust inn. Rokklingarnir voru að breskri fyrirmynd og slógu rækilega í gegn. MYND/SKJÁSKOT Rokkling- arnir voru alls staðar: á plötuum- slögum, í sjónvarpi, á veggspjöldum og stutterma- bolum. MYND/ SKJÁSKOT Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is 24 FÓKUS 28. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.