Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 16
Orðrómur hefur gengið innan embættisins síðan í maí á þessu ári
um að Ólafur Helgi væri á
„leiðinni út“ og Alda Hrönn
yrði næsti lögreglustjóri. Fyrr
í sumar var tilkynnt að Ólafur
Helgi myndi ljúka störfum í
lok ágúst og hefja störf í dóms-
málaráðuneytinu og kom það
því mörgum að óvörum þegar
hann hætti skyndilega síðasta
föstudag. DV ræddi við tug
heimildarmanna sem starfa
hjá lögreglunni og skyldum
embættum. Lýstu þó nokkrir
starfsmenn lögregluembættis-
ins á Suðurnesjum yfir gífur-
legri vanlíðan og töluðu um
„eitrað andrúmsloft“ og báru
við hræðslu og ógnarstjórn.
Dularfulli skjalaskápurinn
DV hefur fjölda heimilda fyrir
því að á skrifstofu mannauðs-
stjóra lögreglunnar á Suður-
nesjum sé skjalaskápur sem
hafi að geyma viðkvæm
mannauðsgögn sem ekki eru
skráð í hið hefðbundna GoPro-
kerfi. Þeim gögnum hafi frá-
farandi lögreglustjóra ekki
tekist að fá aðgang að. Um-
ræða hefur átt sér stað síð-
ustu vikur um ráðningarmál
í embættinu og meinta spill-
ingu í þeim málum en gögnin
þykja geta varpað ljósi á stöðu
þeirra mála. DV greindi frá
því fyrir viku að Ólafi Helga
hafi verið gert að láta þegar
af störfum síðasta föstudag.
Heimildarmenn DV sögðu að
það væri vegna þess að Ólafur
Helgi ætlaði sér að komast
inn í skjalaskápinn í gögnin
sem hann hefur að geyma, en
LÖGREGLU-
STJÓRAKAPALL
Á SUÐURNESJUM
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum
logar í deilum. Starfsmenn skiptast í
tvær fylkingar og tala um ógnarstjórn.
mannauðsstjóri hafi meinað
honum aðgang. Hafði hann
fengið þau svör frá lögfróðum
að hann, sem lögreglustjóri,
ætti að eiga möguleika á að
komast í gögnin, ef ástæður
mæltu með því. Mun Ólafur
þá einnig hafa viljað kanna
starfskjör aðstoðarsaksókn-
ara, sem hann taldi rökstudd-
an grun um að væru óeðlileg.
Eins er skýrt kveðið á um
í lögreglulögum að undir-
mönnum lögreglustjóra beri
að hlýða yfirboðara sínum.
Barst þá símhringing frá
dómsmálaráðuneytinu og var
Ólafi tilkynnt að ráðuneytis-
stjóri væri á leiðinni og hann
væri að ljúka störfum þá
þegar. Ólafur Helgi staðfesti í
samtali við DV að ráðuneytis-
stjóri, Haukur Guðmundsson,
hafi mætt á starfsstöðina, en
það þykir furðulegt í ljósi þess
að Ólafur sjálfur og ráðuneyt-
ið halda því fram að starfslok
hans hafi átt sér stað í mesta
bróðerni. Hins vegar ber
heimildum DV saman um að
Ólafur sé í viðkvæmri stöðu
og geti því ekki leyft sér að
tjá sig í óþökk ráðuneytisins.
DV hafði samband við Grím
Hergeirsson, settan lög-
reglustjóra á Suðurnesjum,
og spurði út í skjalaskápinn
og hvort lögreglustjóri ætti
ekki að hafa aðgang að þeim
gögnum sem þar eru geymd.
Grímur benti á að forstöðu-
menn ættu að komast í gögnin
ef gætt sé að málefnalegum
ástæðum og gert með lögmæt-
um hætti. „Hér hjá embætt-
inu eru upplýsingar er varða
starfsmannamál geymdar í
málaskrárkerfi þess og í sér-
stakri hirslu þar sem aðgangs-
stýring er viðhöfð. Ekkert
mælir gegn slíku fyrirkomu-
lagi enda sé öryggi upplýsing-
anna tryggt í samræmi við
ákvæði persónuverndarlaga.“
Matarklúbburinn
Uppreisnin gegn Ólafi Helga
er rakin til svonefndra fjór-
menninga, eða „matarklúbbs-
ins“ líkt og heimildarmenn og
fjölmiðlar hafa vísað til hans.
Er síðara viðurnefnið rakið
til reglulegra hittinga Öldu
Hrannar og félaga hennar
sem eru saman í matarklúbbi.
Fjórmenningarnir saman-
standa af Öldu Hrönn, mann-
auðsstjóranum Helga Þ.
Kristjánssyni, yfirlögreglu-
þjóninum Bjarneyju Annels-
dóttur og fjármálastjóranum
Pétri Ó. Jónssyni.
Alda Hrönn
Alda Hrönn hóf störf á Suður-
nesjum árið 2017 eftir að hafa
tímabundið verið í verkefnum
hjá Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Þarna hafði
Alda nýlega verið sökuð um
brot í starfi og hafði um tíma
stöðu sakbornings í svonefndu
LÖKE-máli. Einnig kom Alda
við sögu í máli lögreglumanns
sem var ranglega sakaður um
spillingu, mál sem ríkið þurfti
í tveimur aðskildum tilvikum
að greiða bætur vegna.
Alda vann um árabil náið
með Sigríði Björk Guðjóns-
dóttur, sem í dag er ríkislög-
reglustjóri. Í júlí greindi Vísir
frá því að ótilgreindur fjöldi
starfsmanna hafi leitað til
dómsmálaráðuneytisins með
skriflegar kvartanir undan
fyrirhugaðri hallarbyltingu
„matarklúbbsins“. Var þar
greint frá því að fjórmenn-
ingarnir beittu sér fyrir því
að upplýsingum væri haldið
frá Ólafi Helga og að ætthygli
ætti sér stað í ráðningarmál-
um. Bréfritari tekur fram að
Alda Hrönn hafi talað illa um
starfsmenn við Ólaf Helga og
lýsir bréfritari því að honum
líði almennt illa í vinnunni og
finni fyrir óöryggi.
Ólga á
Suðurnesjum
– Óásættan-
legar
aðstæður
eru innan
lögreglunnar á
Suðurnesjum.
MYND/EYÞÓR
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
16 EYJAN 28. ÁGÚST 2020 DV