Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 36
Í vikunni var greint frá því að lögræði yfir tón-listarkonunni og popp-
goðsögninni Britney Spears
myndi haldast óbreytt fram
að febrúar á næsta ári. For-
ræðisdeila hennar hefur
verið fyrirferðarmikil í fjöl-
miðlum vestanhafs, fyrst og
fremst vegna #FreeBritney-
herferðarinnar (ísl: #Frelsið-
Britney) sem hefur verið mjög
áberandi.
Árið 2007 varð almenningi
ljóst að Britney glímdi við
andlega erfiðleika. Mikla at-
hygli vakti þegar hún rakaði
hárið af sér og kastaði regn-
hlíf í papparassa. Þá missti
hún einnig forræði yfir börn-
um sínum til fyrrverandi
eiginmanns síns, Kevin Fed-
erline. Einnig var hún vistuð
á stofnunum vegna geðrænna
vandamála.
Aðrir stjórna fjármálum
Ári seinna missti hún svo eig-
ið lögræði til föður síns, Jamie
Parnell Spears, og lögmanns-
ins Andrew Wallet, sem þýðir
í raun að þeir hafa stjórn á
persónulegum ákvörðunum
og fjármálum hennar. Þess
má geta að auðævi Britney
Spears eru metin á um það
bil 50 milljónir dollara, eða
andvirði tæpra 7 milljarða ís-
lenskra króna, sem þeir hafa
haft umsjón með.
Þrátt fyrir þetta var Britn -
ey iðin. Ólögráða hefur hún
gefið út þrjár plötur, mætt
reglulega í sjónvarpssal og
haldið tónleikasýningu í Las
Vegas.
Stigu til hliðar
Ástandið var nánast óbreytt
þangað til í mars árið 2019,
þegar Andrew Wallet ákvað
að hætta sem lögráðamaður
hennar. Og í september sama
ár steig pabbi hennar einn-
ig til hliðar sem lögráða-
maður, en þó tímabundið
vegna „heilsuvandamála“.
Jodi Montgomery var skip-
aður sem nýr umsjónarmaður
Britney.
Árið 2009 fór #FreeBritney-
herferðin fyrst af stað. Um er
að ræða hreyfingu, eða hóp,
sem er fyrst og fremst skip-
uð aðdáendum hennar, sem
áhyggjur hafa af lögræðis-
málinu. Markmið #FreeBrit-
ney-herferðarinnar gengur út
á að Britney verði aftur lög-
ráða. Forsvarsmenn hreyfing-
arinnar hafa reynt að koma
málinu á borð Hvíta hússins
og að þar verði hún aftur gerð
lögráða. Nýlega höfðu safnast
125 þúsund undirskriftir fólks
sem vill að hún öðlist aftur
frelsi. Forsvarsfólk hreyfing-
arinnar hefur haldið mótmæli
og þá „trendar“ „hashtaggið“
#FreeBritney reglulega.
Dulin skilaboð í
myndböndum
Í fyrra fór herferðin aftur á
fullt. Í kjölfarið bað Britney
aðdáendur sína, í gegnum
FRELSISBARÁTTA BRITNEY
BYGGIST Á DULDUM SKILABOÐUM
Britney Spears er 38 ára gömul en undanfarin ár hefur faðir hennar haft lögræði yfir
henni. Markmið herferðarinnar #FreeBritney er að hún verði aftur lögráða.
Britney Spears er goðsögn í
lifanda lífi og á að baki smelli á
borð við Oops!... I Did It Again
og Baby one more time.
Andleg
vandamál
Britney voru
á allra vörum.
MYND/GETTY
Britney Spears hefur verið dugleg að koma fram þrátt fyrir að vera ólögráða. MYND/GETTY
Ég finn fyrir
ást ykkar og
ég veit að þið
finnið fyrir
minni!
Insta gram, um að virða einka-
líf sitt. Margir töldu þó að
hún hefði ekki ákveðið sjálf
að koma þeim skilaboðum á
framfæri.
Þá hafa myndbönd Britney
á Instagram vakið gríðarlega
athygli og ýmsir talið að þar
væri að finna dulin skilaboð.
Þekktasta dæmið var þegar
Britney ákvað að klæðast gul-
um bol í myndbandi á Insta-
gram. Í myndbandinu lagði
hún sérstaka áherslu á bolinn.
„Ég var svo spennt að fara í
uppáhalds gula bolinn minn
að ég varð bara að deila því.“
Seinna kom í ljós að aðdáandi
hafði sent henni skilaboð um
að klæðast gulum bol í næsta
myndbandi væri hún í ein-
hverri hættu. Þetta og fleiri
álíka atvik blésu samsæris-
kenningum og #FreeBritney-
herferðinni byr undir báða
vængi.
Vill ekki að faðirinn sé
lögráðamaðurinn
Seint í sumar óskaði Britney
eftir því að faðir hennar yrði
ekki gerður aftur að lögráða-
manni hennar. Hún óskaði þó
ekki eftir því að verða lög-
ráða, heldur að Jodi Montgo-
mery myndi halda áfram
sem umsjónarmaður hennar.
Dæma átti í málinu í þess-
ari viku, þann 22. ágúst, en
þá var ákveðið að núverandi
ástand yrði óbreytt þangað til
í febrúar.
Lesa á milli línanna
Britney hefur sjálf lítið getað
tjáð sig um málið, en líkt og
áður segir hafa áhorfendur
lesið á milli línanna. Til að
mynda hafa margir í #Free-
Britney-herferðinni litið á
færslu sem birtist á Insta-
grammi hennar í síðustu viku
sem þökk til hreyfingarinnar,
en færslan er svohljóðandi:
„Mér líður eins og að við
munum líta aftur til baka á
þennan tíma í sóttkví sem
risastórt breytingaskeið í lífi
okkar. Við vitum ekki hve-
nær hlutirnir verða eðlilegir
aftur, en við höldum áfram að
vera jákvæð og lærum fullt af
hlutum um okkur sjálf! Ég vil
taka fram að ég er mjög þakk-
lát öllum dásamlegu og raun-
verulegu aðdáendum mínum
fyrir að vera svona yndis-
legir! Ég finn fyrir ást ykkar
og ég veit að þið finnið fyrir
minni!“ n
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
36 STJÖRNUFRÉTTIR 28. ÁGÚST 2020 DV