Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 37
Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., varð bráð spákonunnar að þessu sinni. Steindi er ekki bara skemmti-
kraftur og sjónvarpsmaður heldur er hann líka
Bogmaður!
Bogmaðurinn er oftast mjög vinamargur, honum leiðist
ekki að tala og er því hrókur alls fagnaðar! Hann er
hvatvís, sem kemur honum oft í fyndnar aðstæður og
líka þekktur fyrir að vera sérlega fyndinn. Þeir eiga
það til að vera óþolinmóðir og með takmarkaða athygli
í einu, enda leiðist manni sjaldan með Bogmanninum.
Elskendur
Lykilorð: kærleikur, sátt, sambönd, gildi, val
Úff, það er svo mikil ást í loftinu að ég fer hjá mér.
Maðurinn á spilinu er í afar góðu líkamlegu ástandi og
þegar manni líður vel með sjálfan sig þá speglast það í
sambandi manns líka. Ástin blómstar og mikil frjó-
semisorka fylgir þessu spili. Ef ekki stefnir í mannlegt
afkvæmi, þá eruð þið skötuhjú að fara að vinna saman
og skapa einhvers konar ‘’vinnuafkvæmi’’.
Galdramaðurinn
Lykilorð: birtingarmynd, útsjónarsemi, kraftur, inn-
blástur, framkvæmd
Það er létt og leikandi orka sem fylgir þessu spili. Eins
og börn ertu með óteljandi, óraunhæfar hugmyndir, en
það er svo mikil fegurð í þeim. Stundum verður maður
bara að láta vaða á eitthvað sem hljómar fáránlega en
manni líður eins og það sé rétt og að það muni ganga
upp. Treystu innsæinu.
Tvistur í sverðum
Lykilorð: erfiðar ákvarðanir, velja og hafna, bældar
tilfinningar
Þetta spil kemur oft upp hjá manni þegar maður stendur
frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. Að þessu sinni finnst
mér eins og gamalt mál verði gert upp, sem tengist sær-
indum fortíðar. Það verður góð tilfinning að gera þessi
mál upp, því mögulega gerðir þú þér ekki grein fyrir því
hvað það hafði mikil áhrif á þig, í raun og veru.
Skilaboð frá
spákonunni
Leyfðu þér að fara inn í gamlar, erfiðar tilfinningar.
Þér mun létta og þú getur í kjölfarið vaxið meira en
þig óraði fyrir.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Steinþór Hróar Steinþórsson
Svona eiga þau saman
Hrútur
21.03. – 19.04.
Það er góður tími til að hlaða
batteríin þar sem verkefnin verða
ófá þegar líða fer á næsta mánuð.
Njóttu þesara síðustu daga sum-
arsins án samviskubits. Vinasam-
band styrkist í vikunni með góðu
trúnókvöldi.
Naut
20.04. – 20.05.
Eftir ágætis ró er allt að fara af
stað á ný. Tækifæri og verkefni
laðast að þér. Þú finnur að þú
þarft að velja rétt fyrir sálina
og mögulega byrja að færa út
kvíarnar. Ef þig langar að breyta
um starfsgrein þá er tíminn núna,
eitt námskeið gæti verið fyrsta
skref í rétta átt.
Tvíburar
21.05. – 21.06.
Það eru flutningar í þínum
kortum! Pakka í kassa, henda,
raða, velja og hafna … hvort sem
það er í orðsins fyllstu merkingu
eða myndlíking, þá á tiltekt vel
við þessa vikuna. Kaflaskipti eiga
hér við og þú býður nýjan, spenn-
andi tíma velkominn.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Nýtt starf mun krefjast allrar
þinnar athygli þessa dagana. Þú
finnur skiljanlega fyrir smá óróa
í nýju hlutverki. Hugaðu vel að
sjálfri/um þér, anda inn og anda
út. Þetta mun allt ganga feykivel
hjá þér, bara að taka eitt skref í
einu.
Ljón
23.07. – 22.08.
Ljónið er smá kvíðið yfir að sum-
arið sé að líða undir lok og að það
hafi ekki gert allt á óskalistanum.
Ekki eru allir jafn spenntir fyrir
komandi stundatöflum og fastari
skorðum. Ekki örvænta, finndu
þinn tíma í hversdagsleikanum og
haltu lengur í sumarið.
Meyja
23.08. – 22.09.
Meyjan fær smá krefjandi viku,
þar sem hún þarf að hugsa í
lausnum. Eitthvað sem þú varst
búin/n að sjá fyrir þér mun ekki
ganga alveg að óskum en þá er
það undir þér komið að vinna vel
úr þeim aðstæðum. Mögulegt lán
í óláni ef þú sérð það í réttu ljósi.
Vog
23.09. – 22.10.
Vertu ljúf við sjálfa þig, elsku
Vog, jafnljúf og þú ert við aðra.
Óþarfa kröfur til sjálfs/sjálfrar
þín leysa engan vanda. Ekki láta
skipulags-vetrar- orkuna taka yfir
og skemma fyrir.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Fyndið hvernig eitt samtal leiðir
af öðru, saklaus hugmynd mun
allt í einu vinda upp á sig og
skemmtilegt samstarf fylgja í
kjölfarið. Það er gaman að sjá
hvað þú ert opin/n fyrir nýjum
tækifærum, því það er einmitt
þannig að hið óvænta fær að
koma í ljós.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Stundum finnst þér eins og
enginn skilji það sem þú leggur
af mörkum. Í þessari viku munt
þú þurfa að eiga erfitt samtal við
fjölskyldumeðlim, sem mun þó
fara betur en þú þorðir að vona.
Smá strembin vika en með því að
vera samkvæm/ur sjálfri/um þér,
þá færðu að uppskera.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Þú þarft að leggja mikið á þig
þessa vikuna til að setja þig í
spor einhvers annars. Við sem
mannfólk sjáum allt frá mismun-
andi sjónarhornum og stundum
erum við jafnvel með sömu
hugmyndir og staðla og aðrir, ef
við gefum okkur bara smá tíma til
þess að hlusta hvert á annað og
mætast á miðri leið.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Fólk virðist sækjast í þig þessa
vikuna til að biðja um ráð og
aðstoð. Gefðu það sem þú átt og
settu mörkin þar sem þú finnur
að þú átt að gera það. Það er gott
að gefa af sér, en líka mikilvægt
að vernda sinn tíma og orku.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Ef það er einhver sem er tilbúinn
í rútínu á ný þá ert það þú, elsku-
legi fiskur. Hlutirnir hafa verið að-
eins of yfirþyrmandi og þú nýtur
þess svo að sjá allt fara að detta
í réttan og farsælan farveg á ný.
Skál fyrir rútínunni!
Vikan 28.08. – 04.09.
Innsæið er þinn styrkleiki
Ofurpar á sviðinu
stjörnurnarSPÁÐ Í
L eikaraparið Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixson birtu í vikunni skemmtilegt myndband á Facebook. Þau
sungu um COVID og var þetta tilraun þeirra
til að fá að semja lokalagið í Áramótaskaupinu.
Þuríður Blær og Guðmundur eignuðust einnig
sitt fyrsta barn í júní síðastliðnum. DV lék for-
vitni á að vita hvernig þau eiga saman ef litið
er til stjörnumerkjanna.
Þuríður Blær er Steingeit og Guðmundur
er Hrútur. Merkin eru afar ólík en það getur
verið góður kostur. Stærsti munurinn á þeim
er að Hrúturinn vill æða úr einu í annað en
steingeitin vill fara rólega í hlutina. Þau læra
hvort af öðru. Hrúturinn elskar að byrja á
verkefnum og Steingeitin verður alltaf að klára
öll verkefni áður en hún byrjar á næsta. Full-
komin blanda!
Það getur verið spenna á milli þeirra og kem-
ur fyrir að þau læsa hornum eins og gerist oft
hjá Hrútnum og Steingeitinni, en þau leysa það
með því að sýna sitt sanna eðli. Þau eru bæði
metnaðarfull, sjálfsörugg og ástríðufull. Ef allt
gengur upp þá erum við að tala um svakalegt
ofurpar sem aðrir dá og dýrka. n
Þuríður Blær
16. janúar 1991
Steingeit
n ábyrg
n öguð
n skipulögð
n með mikla sjálfsstjórn
n besservisser
n býst við hinu versta
Guðmundur Felixson
6. apríl 1990
Hrútur
n hugrakkur
n ákveðinn
n öruggur
n áhugasamur
n óþolinmóður
n skapstór
MYND/SKJÁSKOT INSTAGRAM
STJÖRNUFRÉTTIR 37DV 28. ÁGÚST 2020