Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 10
10
OLYMPÍUNEFND ÍSLANDS
__________099
Þau hafa tekið þátt í
Sumar - olympíuleikunum
fyrir Islands hönd
ísland tók fyrst þátt í fjórðu Sumar-olympíuleikunum
1908 í London. Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram 1932, en
við tókum fyrst þátt í þeim í St. Moritz 1948.
Árið 1908 fóru fimmtu leikarnir fram í London.
Þátttakendur:
Jóhannes Jósefsson, fararstjóri, tók þátt í grísk-rómverskri
glímu. Auk þess sýndu 6 Islendingar glímu:
Hallgrímur Benediktsson, Guðmundur Sigurjónsson, Sig-
urjón Pétursson, Páll Guttormsson, Jón Pálsson og Pétur
Sigfússon.
I raun var Jóhannes einn þátttakandi í sjálfum Olympíu-
leikunum, en flokkurinn sýndi íslenska glímu.
Árið 1912 fóru leikamir fram í Stokkhólmi.
Þátttakendur:
Hallgrímur Benediktsson, fararstjóri,
Halldór Hansen, ritari,
Axel Kristjánsson, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Jón
Halldórsson, Magnús T. Kjaran, Kári Arngrímsson og
Sigurjón Pétursson.
Jón Halldórsson kepptií 100 og200 mhlaupi, en hinir þátt-
takendumir í glímu, sem þá var keppt í sem sýningaríþrótt.
Sigurjón Pétursson keppti einnig í grísk-rómverskriglímu.
Eftir þessa leika voru ekki þátttakendur sendir frá Islandi
fyrr en á leikana í Berlín 1936 en 1920 tók einn Islendingur
þátt í Olympíuleikunum, var það Jón Kaldal sem keppti á
vegum Dana.
Árið 1936 fóru elleftu Olympíuleikarnir fram í
Berlín.
Fararstjóm:
Benedikt G. Wáge, Björn Björnsson, fararstjóri, Olafur
Sveinsson, Benedikt Jakobsson, Erlingur Pálsson, Jón
Pálsson.
Keppendur íslands á leikunum í fíerlín 1936. Þá tók ferðin lengn
tíma en nú til dags, enda þá engar farþegaflugvélar íferðum til og
frá Islandi.
Frjálsíþróttir:
Karl Vilmundarson, tugþraut, Sigurður Sigurðsson, há-
stökk og þrístökk, Kristján Vattnes, spjótkast, Sveinn
Ingvarsson, 100 m hlaup.
Sundknattleikur:
Jón Ingi Guðmundsson, Jón D. Jónsson, Jónas Halldórs-
son, Logi Einarsson, Magnús Pálsson, Pétur Snæland,
Rögnvaldur Sigurjónsson, Stefán Jónsson, Ulfar Þórðar-
son, Þórður Guðmundsson, Þorsteinn Hjálmarsson.
Árið 1948 fóm fjórtándu Olympíuleikarnir fram í
London.
Fararstjórn:
Benedikt G. Wáge, Hallgrímur F. Hallgrímsson, Erlingur
Pálsson, fararstjóri, Jens Guðbjörnsson, Einar B. Pálsson,
Olafur Sveinsson, Olle Ekberg, Guðmundur S. Hofdal, Jón
Pálsson, Jónas Halldórsson, Rósa Gestsdóttir.
Frjálsíþróttir:
Ásmundur Bjarnason, 4x100 m boðhlaup, Finnbjörn
Þorvaldsson, 100 m, 4x100 m boðhlaup og langstökk,
Haukur Clausen, 100 og 200 m hlaup og 4x100 m
boðhlaup, Jóel Sigurðsson, spjótkast, Magnús Jónsson var
skráður í 4x400 m boðhlaup, Oskarjónsson, 800 og 1500 m
hlaup, Páll Halldórsson var skráður í 4x400 m boðhlaup,
Reynir Sigurðsson, 400 m hlaup, Sigfús Sigurðsson
kúluvarp, Stefán Sörensson, þrístökk, Torfi Bryngeirsson,
stangarstökk, Trausti Eyjólfsson, 4x100 m boðhlaup,
Vilhjálmur Vilmundarson, kúluvarp, Orn Clausen, 100 m
og tugþraut.
Sund:
Anna Olafsdóttir, 200 m bringusund, Kolbrún Olafsdóttir
100 m baksund, Þórdís Arnadóttir, 200 m bringusund, Ari
Guðmundsson 100 og 400 m skriðsund, Atli Steinarsson,
200 m bringusund, Guðmundur Ingólfsson, 100 m bak-
Adolf Hitler lél mikið á sér bera á leikunum í Berlín 1936. Hér má
sjá hann við setningu leikana ásaml sínum nánustu samstarfs-
mönnum.