Olympíublaðið - 01.04.1984, Qupperneq 16
16
OLYMPÍUNEFND ÍSLANDS
05^9
Fulltrúar undirbúningsnefndar Olympíuleikanna í Los
Angeles skýrðu frá undirbúningi leikanna 1984. 50
milljónir dollara verða greiddar til þjóða Olympíunefnda
vegna dvalar og ferðakostnaðar af peningum sem inn koma
vegna sjónvarps og af þessum peningum verða m.a. greidd
þátttökugjöld sex íþróttamanna og fararstjóra hverrar
þjóðar vegna Olympíuleikanna 1984.
Miklar umræður urðu um fjármálin og fyrst og fremst
um á hvern hátt forseti ANOK hefði aflað $407.318,00 svo
og það mikla fjármagn sem ANOK hefur fengið og þarf að
nota til rekstrar starfsemi sinnar.
Forseti ANOK sagði, að á þessum tíma væri ekki hægt að
starfa nema hafa fjármagn og nota það til að greiða fyrir
það sem það kostar að reka starfsemi ANOK.
A fundinum í Los Angeles var upplýst að greiða þarf fyrir
dvöl miðað við 20 í Olympíuþorpi og $45,00 á dag,
sem þýðir að dvöl hvers íþróttamanns sem dvelur í
Olympíuþorpi í USA kostar $900,00, það er að segja, ef
íþróttamaður dvelur í Olympíuþorpi, þarf að greiða fyrir
20 daga minnst. Þetta þýðir að kostnaður við hvern íþrótta-
mann, sem kemur á Olympíuleikana í Los Angeles 1984 er
áætlaður $2500,00 fyrir flug og dvöl.
Mjög miklar umræður urðu um kostnað við dvöl íþrótta-
manna í Olympíuþorpinu, og mátti heyra á fulltrúum að
þeir voru furðu lostnir yfir því að ekki væri búið að ganga
frá því fyrir löngu hvað dvölin mundi kosta, ennfremur
urðu menn undrandi á því, að það þyrfti að greiða minnst
fyrir 20 daga dvöl í Olympíuþorpinu.
Niðurstaða ANOK fundarins
Niðurstaða ANOK fundarins í Los Angeles var þessi:
Yfirlýsing ANOK vegna umræðna um 23. Olympíuleik-
ana. Stjórn ANOK kom saman í Los Angeles í janúar, þar
sem 23. Olympíuleikarnir verða haldnir, og þegar haft er í
huga að Olympíuleikarnir eru einstakt fyrirbæri í nútíma
þjóðfélagi sem sameinar þjóðir jarðar okkar án tillits til
tungumáls, kynþáttar, stjórnmála og trúarlegrar skoðunar,
styður ráðið þá skoðun að það sé nauðsynlegt að gera það
sem mögulegt er fyrir 23. Olympíuleikana til að halda í
heiðri Olympíuhugsjónina, vinskap og heiðarlega íþrótta-
keppni æsku alls heimsins.
Stjórn ANOK metur mjög starfsemi IOC og forseta þess,
Juan Antonio Samaranch, sem hefur helgað sig þróun og
styrkingu Olympíuhreyfmgarinnar og framtíðar velgengni
hennar.
NOC þátttakendurnir létu í ljós ánægju sína viðvíkjandi
ályktun IOC um fjárhagslega aðstoð til dómara, dóm-
nefnda, tæknilegra þátttakenda alþjóðasambanda, sem
taka þátt í leikunum.
Mikilvæg hjálp er líka ákvörðun IOC að greiða fyrir sex
fulltrúa frá sérhverju landi.
Það gleður stjórn ANOK, að verða vör við hið jákvæða
viðhorf IOC viðvíkjandi tillögum ANOK vinnuhópsins
sem stjórnað var af Sir Dennis Follows. Stjórn ANOK
álftur að aðalverk IOC og ANOK fram að komandi
leikjum sé að skapa öllum NOC aðstæður sem eru nauðsyn-
legar fyrir árangursríkan undirbúning um leið og tryggð sé
full virðing fyrir öllum Olympíureglum af hálfu LAOOC.
USC olympíuþorpid er mjög nálœgt aðalleikvanginum og vistarverur
þar eru mjög glcesilegar.
- allir íþróttaviðburðir 23. Olympíuleikanna verði skipu-
lagðir í samráði við Olympíureglur í umhverfi friðar og
vinsemdar, þannig að þeir verði merkisviðburður heims-
íþrótta.
- framfylgt verði öllum ákvörðunum öryggisreglna hvað
viðkemur Olympíureglum, þar með talin leyfi til Banda-
ríkjanna gegn Olympíukortum og öryggisráðstöfunum
vegna Olympíufjölskyldunnar o.s.frv.
- gistingu Olympíuhópanna í Olympíuþorpinu verði hag-
að samkvæmt óskum NOC og eftir þörfum hvers lands.
- LAOOC muni ábyrgjast kostnað gistingar Olympíuhópa
á því verði sem samþykkt er af NOC og mun að talsverðu
leyti auka þjónustu sem boðin er frítt Olympíuþátttak-
endum eins og var í fyrri leikjum.
- LAOOC muni koma til móts við NOC með auknum
fjölda af aðstoðarmönnum og leiðtogum samkvæmt hinum
nýja viðbótartexta við 37. grein Olympíureglnanna.
- stundaskrá Los Angeles Olympíuleikanna muni vera
íþróttafólkinu í hag.
- LAOOC muni tryggja íþróttafólkinu, dómurum og
fararstjórum fullnægjandi flutninga, sem geri þeim kleift að
komast á hina ýmsu keppnisstaði, hafandi í huga stærð Los
Angeles borgar og þar af leiðandi fjarlægð til hinna ýmsu
keppnisstaða.
- í anda sanngjarns leiks muni „doping“ eftirlitið á leik-
unum samanstanda af þrautreyndum hámenntuðum
mönnum.
- ákvörðun IOC um að greiða kostnað dómara og með-
dómara muni gera alþjóðasamböndum kleift að senda
færustu dómarana til að tryggja óhlutdrægni og réttláta
dóma.
Allt verður komið í lag
Umræðurnar í stjórn ANOK gáfu til kynna, að það er
margt ógert af hendi LAOOC fyrir 23. Olympíuleikana til
að gera þá að reglulegri hátíð æsku jarðarinnar. I þessu
tilliti lætur stjórn ANOK í ljós sérstaka von sína, staðfest-
ingu og sannfæringu að:
- á tímabilinu fram að leikunum muni LAOOC auka
talsvert umsvif upplýsinga sem sendar verða til NOC og
muni ganga frá öllum nauðsynlegum upplýsingum varð-
andi óleyst mál.
- stjórn ANOK lýsi yfir vilja sínum til að aðstoða IOC og
LAOOC til að ganga frá öllum áðurnefndum atriðum.