Olympíublaðið - 01.04.1984, Side 17
OLYMPÍUNEFND ÍSLANDS
17
QQP
Islensku keppendurnir á leikunum í Los Angeles koma til með að búa í UCLA olympíuþorpinu. Það er lengrafrá aðalleikvanginum en hitt
þorpið, en loftslagið þar er sagt mun betra.
Olympíufundur IOC
Fulltrúar 144 þjóða voru mættir á olympíufundinum
með IOC.
Samkomulag var gert á milli IOC og LAOOC um að
ekki yrði greitt meira en S35,00 á dag og aðeins greitt fyrir
þá daga sem keppendur munu dvelja í Olympíuþorpi.
Samningur sá sem gerður var á milli IOC og LAOOC fer
hér á eftir:
Samningur á milli IOC og LAOOC varðandi kostnað
í Olympíuþorpinu:
IOC og LAOOC hafa gert með sér eftirfarandi samning
vegna kostnaðar í Olympíuþorpinu á meðan á Olympíu-
leikunum í Los Angeles stendur:
Se'ðyfir setustofu í húsi í UCLA-þorpinu.
1. Þorpsgjaldið á viðurkenndum þátttakendum með ,,F“
viðurkenningu verður S35,00 á dag. Einungis þarf að
greiða íyrir þá daga sem þessir þátttakendur eru við-
staddir.
2. Þar sem IOC mun borga dvöl sex þátttakenda í þorp-
inu á hvert þátttökuland sem þess óskar, er samþykkt að:
a) frá þátttakendum frá 1 -50 mun IOC borga LAOOC
fyrirfram S4.200 fyrir 1. mars 1984.
b) fyrir þátttakendur sem eru 51 og þar yfir mun NOC
greiða fyrirfram sem svarar eins dags dvöl, þ.e.a.s.
$35,00 á þátttakanda fyrir 1. mars 1984.
c) fyrir þátttakendur 51 og þar yfir eins og farið var
fram á, mun IOC einnig greiða $4.200 fyrirfram.
3. Fyrirfram borganir eru byggðar á 20 daga dvöl en
ónotaðir þátttökudagar verða endurgreiddir.
4. 1. mars 1983 munu löndin tilkynna bæði IOC og
LAOOC hámarks þátttakendafjölda sinn og er þá ekki
innifalin tala þátttakenda hópíþrótta, sem eftir er að
ákveða.
5. Heildarfjöldi ,,F“ þátttakenda í 23. Olympíuleikunum
fer ekki fram úr 12.000.
6. IOC samþykkir að endurgreiða LAOOC kostnað við
skemmdir sem ef til vill verða í herbergjum þeirra:
Olympíuþorpin verða opnuð tveim vikum fyrir leikana
og lokað þrem dögum el'tir þá.
Hægt verður að borða í hvoru þorpinu sem er, burtséð
frá því í hvoru þorpinu þátttakendur búa. Engir matar-
miðar verða notaðir, aðeins sýnt þátttökukortið.
Eftir því sem næst verður komist, mun yíirleitt öll þjón-
usta og matur vera ókeypis í Olympíuþorpunum, eða eins
og verið hefur á síðustu Olympíuleikum.
Sjö milljónir aðgöngumiða munu verða seldar á S18,00
hver miði og þrjár milljónir aðgöngumiða undir $10,00.
Stórmót smáþjóða
Fundur smáþjóða var haldinn og rætt um keppni þeirra
á milli. Upplýst var að rætt heíði verið við forseta IOC og
formann ENOK um væntanlegan fjárhagslegan stuðning.
Ennfremur kom fram að Evrópuráðið og UNESCO
myndu ef til vill styrkja slíka keppni. San Marini vill standa
fyrir fyrstu slíkri keppni. Ákveða þarf stað og stund og í
hvaða íþróttagreinum ætti að keppa, t.d. í 4-5, og ákveða
fjölda þátttakenda, miða mest við 20 þátttakendur.
Rætt var um hugsanlega þátttöku, frá Islandi mætti
hugsa sér þátttöku í lyftingum, júdó, skotfimi, og er þá átt
við skotfimi, þar sem skotið er á hluti á lofti, frjálsar íþróttir
og sund. Mótið mun verða haldið á vegum Olympíu-
nefnda, og er það ekki síst vegna styrks sem ef til vill kæmi
frá IOC og ENOK og hefur verið rætt um að halda mótið á
tímabilinu apríl - maí 1985. Keppt yrði eftir reglum
alþjóðasérsambandanna.
Margt fleira mætti upp telja frá fundinum í Los Angeles,
en þetta verður látið nægja.
Næsti fundur ANOK og IOC mun verða haldinn í
Lissabon, Portúgal árið 1985.