Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 18

Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 18
18 OLYMPÍUNEFND ÍSLANDS QPP Fimm sérsambönd og átta einstaklingar hafa fengið styrk fyrir Olympíuleikana 1984 Að undanförnu hefur stjórn Olympíunefndar íslands rætt við fulltrúa allra þeirra sérsambanda, sem eiga á að skipa þeim afreksmönnum, sem líklegir eru til að ná þeim árangri, sem Olympíunefndin hefur sett til þess að íþrótta- menn yrðu hlutgengir á Olympíuleikunum á næsta ári. Þau sérsambönd, sem líkleg eru til að hafa slíkum afreks- mönnum á að skipa eru: Skíðasamband Islands^ Frjálsíþróttasamband Islands Júdósamband Islands Lyftingasamband Islands Sundsamband Islands Eftir þessar viðræður hefur orðið samkomulag í fram- kvæmdastjórn OI að úthluta eftirfarandi styrkjum til sér- sambanda og einstaklinga: F rjálsíþróttasambandið 90.000 Einar Vilhjálmsson 70.000 Oskar Jakobsson 70.000 Oddur Sigurðsson 50.000 Vésteinn Hafsteinsson 50.000 Þórdís Gísladóttir 50.000 Þráinn Hafsteinsson 50.000 Kr. 430.000 Skíðasambandið ” 300.000 J údósambandið 100.000 Bjarni Friðriksson 70.000 ” 170.000 Sundsambandið 120.000 Tryggvi Helgason 50.000 ” 170.000 Lyftingasambandið _____ 170.000 Alls kr. 1.240,000 Eins og sjá má er úthlutunin tvíþætt. Annarsvegar er út- hlutað til einstakra íþróttamanna. Sú úthlutun er til þeirra sem hafa náð árangri á alþjóðamælikvarða í íþrótt sinni og eru því mjög líklegir til þess að verða valdir til þátttöku í Olympíuleikunum á þessu ári. Hinsvegar er veittur styrkur beint til sérsambandanna, Aðalleikvangurinn í Los Angeles, þar sem olympvuleikarnir fara fram í sumar. Það kostar mikla peninga og vinnu að senda lið pangað og œfa ípróttafólkið sem par mun keppa. til þess að viðkomandi samband geti staðið fyrir og kostað æfingar fyrir þá sem eru líklegir til þess að geta náð árangri á heimsmælikvarða á næstunni og kæmu þá til greina að verða valdir til þátttöku í leikunum. Þegar þessari úthlutun er lokið er hér um að ræða lang- hæsta æfingastyrk, sem OI hefur veitt til íþróttamanna. Þó er það mun minna en íþróttamenn annarra þjóða fá, sem gera nú orðið lítið annað en að æfa og búa sig undir þátttöku í Olympíuleikunum. Það er ánægjulegt að vita að við eigum nú marga afreksíþróttamenn, sem getið hafa sér góðan orðstír á erlendum stórmótum. Það er því ánægjulegt að geta stutt nokkuð við bakið á þeim í þeim erfiðu æfingum sem framundan eru, til að hljóta þann heiður að fá að taka þátt í stærstu æskulýðshátíð heims, Olympíuleikunum, fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. En við skulum muna að engir peningar gera íþrótta- mann að afreksmanni, það verður hann að gera sjálfur með þrotlausum æfingum og sjálfsafneitun. í sambandi við þessa úthlutun iná benda á, að OI greiðir allan kostnað við þátttöku okkar í Olympíuleikunum. I þeim kostnaði, sem verður óvenju liár að þessu sinni, er allur ferðakostnaður l'ram og til baka, uppihald og löt á íþróttamennina, sem þeir eiga að koma l'ram í fyrir hönd Islands.

x

Olympíublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Olympíublaðið
https://timarit.is/publication/1457

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.