Olympíublaðið - 01.08.1987, Qupperneq 14
14
Q99
ÓLYMPÍUNEFND ÍSLANDS
- Fyrstu árin bjuggum við á Selfossi og ég tók fljótlega að
mér þjálfun sundfólksins á staðnum. Blessuð börnin komu
svo hvert af öðru eða alls fjögur, Magnús Már, sem verður
tvítugur í haust, Bryndís, Hugrún og Arnar, sem fermdist
fyrir nokkrum vikum. Öll æfa sund af miklum kappi, þrjú þau
fyrstnefndu eru komin í fremstu röð og sá yngsti er einnig
efnilegur. Þessi áhugi þeirra og dugnaður hefur gefið mér
ómælda ánægju.
- En síðan fluttist fjölskyldan í Þorlákshöfn?
- Já, það gerðist 1973. Par var þá engin sundlaug og segja
má, að þegar hafi hafist barátta fyrir því að byggð yrði vegleg
laug. Það tók nokkur ár og inn í þá baráttu tvinnaðist einnig
stærð laugarinnar. Sem betur fer varð það ofan á að byggð
var laug, sem er 25 metrar á lengd. Sundlaugin var vígð
1981 og hún er mjög góð í alla staði.
- Hvað viltu segja um íþróttaáhugann í Þorlákshöfn?
- Sundið er aðalgreinin á staðnum, en knattspyrnuáhuginn
er einnig mikill. Ég hefi orðið þess vör í þjálfun minni, að
býsna erfitt er að koma því að hjá fólki í þrælkunarsamfélagi
eins og Þorlákshöfn, að leggja þarf mjög mikið að sér til að
ná góðum árangri í íþróttum. Einnig varð ég þess vör, að
ýmsir héldu að ég væri aðeins í þessu fyrir mín börn, en svo
er ekki. Nú æfa um 20 krakkar sund hjá mér og áhuginn er
mjög mikill. Annars vil ég geta þess, að börnin min hófu ekki
reglulegar æfingar fyrr en laugin var tilbúin í Þorlákshöfn.
Þau fóru eins og önnur börn staðarins á námskeið í Hvera-
gerði, og lærðu þar sund.
- Nú eiga þrjú af þínum börnum möguleika á að ná
þeim lágmörkum, sem Olympíunefnd íslands hefur
sett vegna OL í Seoul?
- Já, rétt er það, þau eru öll nálægt lágmörkunum og raunar
á svipuðu róli. Eins og ég sagði áður er áhuginn mikill og þau
leggja mikið á sig, sundið verður þeirra sumarvinna, ef svo
má segja. Æft er alla daga nema sunnudag, ca. 4 klukkutíma
á dag og syntir eru 10 til 14 km. daglega. Ég vona svo sann-
Hrafnhildur með fangið fullt af verðlaunagrípum að loknu sund-
móti fyrir 25 árum.
arlega að þeim takist markmiðið, sem er að komast til Seoul.
Hápunktur keppnistímabilsins í sumar er þátttaka í Evróp-
umeistaramótinu í Strassbourg. Magnús Már og Bryndís
hafa bæði náð lágmörkunum, til að komast þangað, og
Hugrún er mjög nálægt markinu. Þar ræðst það e.t.v. hvort
þau ná Olympíu-lágmörkunum.
Olympíublaðið þakkar Hrafnhildi fýrir spjallið og vonar
svo sannarlega að börn hennar nái takmarkinu, sem er að
verða keppendur á Olympíuleikunum á næsta ári.
Ná börn Hrafnhildar OL-iágmörkum?
Hér á eftir birtum við besta árangur systkinanna Magn- 400 m skriðsund 4:23,02 mín
úsar Más, Hughrúnar og BiYndísar Ólafsbarna í sundi til lOOmflugsund l:04,79mín
þessa dags. í sundi eru met skráð bæði í 25 og 50 metra 200mflugsund 2:26,25 mín
laugum. í Olympíuleikum er keppt í 50 metra laug og lág-
mörk eru miðuð við það.
Magnús Már Ólafsson:
25mlaug 50 m laug
100 m skriðsund 51,21 sek 52,80 sek
200 m skriðsund 1:50,6mín 1:55,09 mín
lOOmflugsund 58,28 sek 59,90 sek
200mflugsund 2:07,41 mín 2:14,05 mín
Hugrún Ólafsdóttir: lOOmflugsund 1:05,0 mín 1:05,37 mín
200mflugsund 2:21,99mín
400 m skriðsund 4:23,0 mín 4:36,85 mín
800 m skriðsund 400mfjórsund 9:07,43 mín 5:14,5 mín
BryndísÓlafsdóttir: 100 m skriðsund 57,06 sek 59,30 sek
200 m skriðsund 2:04,70 mín
Olympíulágmörkin
Við birtum hér OL-lágmörk i þeim greinum þar, sem syst-
kinin þrjú hafa besta möguleika á að ná tilskyldum árangri
KARLAR:
lOOmskriðsund: 51,80 sek
200 m skriðsund: 1:53,00 mín
100 m flugsund: 55,90 sek
200mflugsund: 2:05,00 mín
KONUR:
lOOmskriðsund: 58,20 sek
200 m skriðsund: 2:04,90 mín
400 m skriðsund: 4:23,00 mín
800 m skriðsund: 9:01,00mín
lOOmflugsund: 1:03,50 mín
200mflugsund: 2:18,50 mín
400 m Qorsund: 4:56,0 mín