Fréttablaðið - 04.09.2020, Síða 14
Þessa dagana finnst
mér bara svo
æðislegt að vera farin að æfa
fótbolta aftur og geta mætt á
æfingar.
MYND/SIGT
RYGGUR AR
I
4. september 2020
| 35. tbl. | 111. ár
g. | Verð 995 kr.
Við erum
á réttri leið
Lilja Alfreðsdóttir
ráðherra hefur áð
ur
barist fyrir framtíð
landsins en hún s
tóð
í stafni þegar höf
tum var aflétt eft
ir
hrun. Hún tekur e
inn slag í einu og
ef
þörf er á hræðist
hún ekki að gefa
eftir
til að klára mikilvæ
g mál. – sjá síðu 10
Einmanaleiki meðal u
nglinga
20
26
Sóttkviss
fyrir fjölskylduna
Náðu þér í eintak á næsta sölustað eða komdu í áskrift
á dv.is og fáðu blaðið sent heim í hverri viku.
DV ER KOMIÐ ÚT
4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Stefnir á að vera farin að spila
með aðalliðinu eftir mánuð
Knattspyrnukonan Guðbjörg Gunnarsdóttir spilaði langþráðan leik eftir 16 mánaða fjarveru frá vell-
inum fyrr í þessari viku. Guðbjörgu fannst sjálfri ekkert merkilegt að hafa spilað þennan leik fyrr en
hún fór að pæla betur í því. Hún stefnir á vera kominn í form til þess að spila með aðalliðinu eftir mánuð.
SPORT
FÓTBOLTI Brasilíska knattspyrnu-
sambandið tilkynnti fyrr í þessari
viku að kvennalið landsins myndi
fá sömu greiðslur og karlaliðið fyrir
landsliðsverkefni þeirra.
Með því eru kvennalandsliðinu
tryggðir sömu dagpeningar en þær
fá einnig sömu bónusgreiðslur og
karlaliðið, takist þeim að vinna
HM eða Ólympíuleikana. Marta,
ein besta knattspyrnukona allra
tíma, hefur barist fyrir réttindum
kvennalandsliðsins undanfarin ár
og tók brasilíska knattspyrnusam-
bandið stórt skref í rétta átt með
þessari ákvörðun.
Enska knattspyrnusambandið
brást við þessum fregnum með því
að benda á að slíkt hefði verið uppi
á teningnum þar frá því í janúar fyrr
á þessu ári.
Rúm tvö ár eru liðin síðan KSÍ
tilkynnti að íslenska kvennalands-
liðið myndi fá sömu bónusgreiðslur
greiddar og karlalandsliðið í lands-
liðsverkefnum. Þá hafa dagpening-
arnir verið þeir sömu í karla- og
kvennalandsliðinu í nokkur ár.
Aðrar þjóðir hafa verið að færast
í þessa átt undanfarin ár en banda-
ríska kvennalandsliðið fór með
baráttu sína fyrir bættum kjörum
fyrir dómstóla þar í landi.
– kpt
Brassar boða
jafnar greiðslur
FÓTBOTI Guðbjörg Gunnarsdóttir,
landsliðsmark vörður í k natt-
spyrnu, snéri aftur inn á völlinn fyrr
í þessari viku en hún hefur verið
fjarri góðu gamni í sjö mánuði eftir
að hafa fætt tvíbura í heiminn. Guð-
björg spilaði þá með U-19 ára liði
Djurgården en leikurinn var aðeins
á undan áætlun hjá henni.
Raunar eru 16 mánuðir síðan
Guðbjörg lék með aðalliði Djurgår-
den en hún fór í aðgerð vegna þrá-
látra meiðsla í hásin í maí á síðasta
ári. Það var svo í febrúar fyrr á
þessu ári sem tvíburarnir komu í
heiminn.
„Mér fannst þetta ekki eins
merkilegt og fólkinu í kringum mig
fyrir leikinn og strax eftir hann.
Þegar ég pæli í því núna er þetta
samt auðvitað viss áfangi í átt til
þess að komast aftur í boltann af
fullum krafti. Það eru tvær vikur
síðan ég byrjaði að æfa með liðinu
en ég hef haldið mér í góðu líkam-
legu formi eftir að ég jafnaði mig
eftir aðgerðina á hásininni,“ segir
Guðbjörg í samtali við Fréttablaðið.
„Ég er mjög góð í skrokknum
og er betri í dag en áður en ég fór í
aðgerðina. Líkamlega formið er allt
að koma til og þetta er allt í rétta átt.
Það er hins vegar tvennt ólíkt að æfa
ein með markmannsþjálfara eða í
líkamsræktarsalnum en að æfa með
liðinu og spila leiki. Það var smá
stress í mér í upphafi leikins þegar
ég átti að taka langar spyrnur og
annað en svo kom þetta bara fljótt
og ég komst vel frá leiknum,“ segir
markvörðurinn þaulreyndi.
„Planið var að vera orðin klár í að
spila með aðalliðinu eftir mánuð
um það bil. Við erum enn þá með
þann tímapunkt í huga. Við erum
með tvo góða markmenn fyrir utan
mig þannig að það er ekkert verið að
drífa sig um of að láta mig spila með
aðalliðinu. Aðstæður eru líka þann-
ig með tvíburana svona unga að ég
treysti mér ekki til þess að spila alla
leiki eins og staðan er núna og það
væri til dæmis erfitt að fara í úti-
leiki núna þar sem ég þyfti að vera í
burtu frá þeim í nokkra daga,“ segir
þessi 35 ára gamli leikmaður.
„Þessa dagana finnst mér bara
svo æðislega gaman að vera farin
að æfa fótbolta aftur og geta mætt
á æfingar þannig að aðaláherslan
hjá mér er bara að bæta líkamlega
formið jafnt og þétt næstu mánuð-
ina. Ég mun svo berjast fyrir stöðu
minni þegar ég verð komin í mitt
besta form á nýjan leik. Ég renn út
á samningi hjá Djurgården eftir að
yfirstandandi leiktíð lýkur og ég
mun skoða mína stöðu í janúar og
hvað ég ætla að gera í framhaldinu,“
segir hún en Djurgården er eins og
sakir standa í sjöunda sæti af tólf
liðum í sænsku úrvalsdeildinni.
Næsti leikur liðsins er gegn toppliði
deildarinnar, Rosengård, á sunnu-
daginn kemur.
Fram undan eru svo tveir leikir
hjá íslenska landsliðinu í undan-
keppni EM á móti Lettlandi og Sví-
þjóð en þeir leikir fara fram dagana
17. og 22. september á Laugardals-
vellinum.
„Ég hef ekkert rætt við Jón Þór
[Hauksson] um þessa leiki og
raunar ekkert talað við hann síðan
hann óskaði mér til hamingju þegar
tvíburarnir komu í heiminn. Þetta
kemur bara í ljós þegar hópurinn
verður valinn fyrir þessa leiki. Það
væri mjög gaman að geta spilað
við Svía þar sem ég er orðin hálf-
gerður Svíi eftir að hafa búið þar
svona lengi og komið mér vel fyrir í
sænsku samfélagi,“ segir Guðbjörg
sem er í sambúð og á tvíburana með
sænsku knattspyrnukonunni Miu
Mjalkerud.
Miðað við það sem Guðbjörg
segir um að stefnan sé að vera farin
að spila með aðalliði Djurgården
eftir mánuð mætti leiða að því
líkum að Jón Þór gefi henni frí í
komandi leikjum og endurkoma
hennar með landsliðinu verði svo
í útileik Íslands á móti Svíum sem
leikinn verður á Gamla Ullevi 27.
október næstkomandi. Ísland og
Svíþjóð tróna á toppi riðilsins en
liðin eru bæði með fullt hús stiga
eftir að hafa leikið þrjá leiki.
hjorvaro@frettabladid.is
Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, slær hér boltann frá marki sínu. MYND/DJURGÅRDENHANDBOLTI Stjórn HSÍ fundaði í
gær með formönnum liðanna til
að útlista regluverk fyrir tímabilið
ef kórónaveirufaraldurinn stöðvar
mótshald í íslenskum handbolta á
ný. Fyrstu keppnisleikir vetrarins
eru um helgina þegar Meistara-
keppni HSÍ fer fram í Origo-höllinni
með viðureignum Fram og Þór/KA
í kvennaf lokki og viðureign Vals
og ÍBV í karlaflokki. Von er á reglu-
gerð frá HSÍ á næstu dögum þar sem
málið er útlistað nánar.
Tillögurnar sem lagðar voru fyrir
félögin eru líkar þeim sem tíðkast
hjá öðrum sérsamböndum. Sam-
kvæmt því sem HSÍ leggur fram
verður hægt að krýna deildar-
meistara eftir 2/3 leikja tímabilsins
svo lengi sem öll lið eru búin með
álíka marga leiki.
Þá er lagt til að leikjum sé frestað
ef fjórir af fjórtán leikjahæstu leik-
mönnum liðsins eru í sóttkví. – kpt
Leggja línurnar
fyrir veturinn