Hvöt - 01.03.1953, Page 13
H V Ö T
11
anum er hætt að berast að vitum
mér. Hlátur lífsglaðra barna greini
ég aðeins í fjarska, en skuggann á
þilinu mun ég alltaf eygja.
Skuggann þinn.
Hann mun fylgja mér eftir, þar til
ferð minni lýkur. Aldrei munum við
sleppa hvor af öðrum, ég og skugginn.
Skugginn, sem minnir á þig, litlu
stúlkuna með ljósu lokkana og bláu
seiðandi augun. Litlu stúlkuna, er
gefið hefur lífi mínu gildi, og þrátt
fyrir alla úlfúð og tortryggni er dá-
samlegt að fá að lifa þessu lífi aðeins
vegna þín.
Ég tilbið nafn þitt og hrópa það
út í þögult húmið. Skuggi þinn á þil-
inu er minn guð. Allt í einu lýkur
ferð minni. Okkur skilja fjarlægðir.
,,Þið sjáizt aldrei framar“, hvíslar
nóttin. Nú fæ ég eigi lengur sofið
fyrir niði elfarinnar. Á hvítu líni
jarðarinnar vil ég leita.
Leita þín.
HVER VEIT?
1. Hvenær og hvar fæddist Ingrid Bergman ?
2. Eftir hvern eru þessar ljóðlínur:
„Já, gott áttu veröld,
að vera svo ung og fögur
og von er að sólinni
þyki nú gaman að skína“.
3. Hver lagði grundvöll að nýnorsku rit-
máli?
4. Hvenær var tónskáldið Franz Liszt uppi ?
5. Hvað þýðir orðið Samojedi?
6. Hver er höfundur Esperanto?
7. Hver var forsætisráðherra íslands Al-
þingishátíðarárið 1930 ?
8. Hvað hét ástmey Jónasar Hallgríms-
sonar ?
9. Hvað slær hjartað í nýfæddu barni oft
á mínútu ?
10. Hvert var fyrsta landið, er veitti konum
stjórnmálajafnrétti á við karla, og hvaða
ár?
Svör á bls. 13.
Sögur af Bernhard Shaw
Bernhard Shaw ræddi eitt sinn við Frið-
þjóf Nansen, landkönnuðinn fræga, og kvört-
uðu báðir yfir þrálátum höfuðverk.
Loks spyr Shaw: „Hafið þér reynt að
finna ráð við höfuðverk?“ Nansen varð að
svara þessu neitandi. „Það er undarlegt",
svarar Shaw. „Þér eyðið tíma og kröftum
til að finna Norðurheimskautið, enda þótt
það komi engum að gagni, en þér reynið
ekki að finna ráð við höfuðverk, enda þótt
þér munduð þá verða velgerðarmaður alls
mannkynsins!"
Shaw var flest betur gefið en fríðleikur.
Eigi að síður sóttist fjöldi kvenna eftir því
að giftast honum.
Ein slíkra sagði við Shaw: „Hugsið yður,
að barnið fengi mína fegurð og gáfur yðar!“
„Það væri ekki sem verst", svaraði Shaw
íbygginn, ,,en hugsum okkur að það yrði
öfugt!"
Spíritistar í Englandi reyndu að telja Shaw
á sitt mál eftir fyrri heimsstyrjöldina, en
hann tók því fálega.
Einn þeirra sagði: „Eg get svo svarið það,
að borðið hreyfðist“.
„Vitaskuld", svaraði Shaw, ,,sá vægir, sem
vitið hefur meira".
Shaw státaði af því, að hann kynni manna
bezt að búa til kaffi. Prestur einn skrifaði
honum til og bað um uppskriftina að þessu
ágæta kaffi.
Shaw sendi honum uppskriftina, en bætti
við þessari athugasemd: „Eg vona, að beiðni
yðar sé einlæg, en ekki enn ein brellan
til að ná í eiginhandarundirskrift mína“.
Hinn æruverði klerkur klippti undirskrift-
ina neðan af bréfinu og sendi Shaw og
sagði: „Ég vona, að þér sjáið nú, að bón
mín var einlæg".
\