Hvöt - 01.03.1953, Síða 25
H V Ö T
23
Hugleiðing um S. B. S.
Eins og að undanförnu gekkst S. B. S.
fyrir bindindisfræðslu í nokkrum fram-
haldsskólum í Reykjavík þann 1. febr.
s.l. Voru ræðumenn frá S. B. S. og
Stórstúku íslands og var þeim hvar-
vetna vel tekið. S. B. S. sendi aðeins
ræðumann í einn skóla utan bæjarins,
í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Gagn-
fræðaskóli Akraness óskaði eftir ræðu-
manni, en af einhverjum ástæðum
taldi stjórn S. B. S. eigi möguleika á
að verð^ við þeirri ósk og sýnir það
áhugaleysi hennar á útbreiðslustarf-
semi bindindishreyfingarinnar í skól-
um landsins, því að nóga ágæta ræðu-
menn hefði verið hægt að fá innan
sambandsins.
Að kvöldi 1. febrúar fékk S. B. S.
rúman 'hálftíma í kvölddagskrá Ríkis-
útvarpsins og var það styttri tími en
áður hefur tíðkazt.
S. B. S. hélt enga skemmtisamkomu
að kvöldi 1. febrúar, en það hefur tíðk-
azt hjá sambandinu að efna þá til
dekkra og dekkra, unz myrkt
verður. Aragrúi flöktandi ljósa sjást
framundan. Fjarlægðin minnkar smátt
og smátt. Við erum komin til Reykja-
víkur.
Eftir viku mun skólinn byrja. Ég
vil ekki líta fram í tímann, hvers-
dagsleiki þeirra daga ógnar mér. Því
tek ég það ráð að horfa um öxl. Svip-
myndir hins liðna sumars fylgja mér
inn í lönd svefns og drauma.
r a
HVÖT: ársrit S. B. S.
21. árg. 1953.
Ritstjórn:
Helga Erla Hjartardóttir, Kvennask.
Hjörtur Guðmundsson, Kennarask.
Þórarinn Árnason, Menntaskólanum.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar 1953.
v______________________________________V
skemmtisamkomu á undanförnum ár-
um, skemmtunar, sem haldin er fyrir
skólaæskuna, því að nú er okkur brýn
nauðsyn á heilbrigðum skemmtunum,
þegar við stöndum í hættu af alls kon-
ar böli og erlendum menningaráhrif-
um, sem munu móta menningu okkar
og tilveru, ef ekki verður staðið á verði.
Þess vegna hefði verið æskilegt, að S. B.
S., sem menningarsamtök, hefði haldið
þessari venju áfram, en það var öðru
nær. Af þessu og ýmsu öðru má sjá,
að bindindisstarfsemi æskulýðsins er
að falla í dvala, og gæti farið svo, að
það yrði nafnið tómt, en þannig má
ekki verða. Samband bindindisfélaga
í skólum verður að breyta um svip.
Það verður að vakna af þeim höfga-
fulla dvala, er nú hvílir yfir því. Það
verður að vera lifandi samtök, er heldur
upp óstöðvandi baráttu fyrir málstað
sínum. Það verður að vekja sér álit
meðal almennings, og það mun takast
fyrr en síðar, ef rétt er á málum haldið.
Verum samtaka um að efla S. B. S.
— samtök okkar. Verum sístarfandi
í þágu þess. Stöndum saman í bræðra-
lagi og réttum öllum hjálparhönd, er
þess þurfa, þá mun markinu náð.