Austri


Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 6

Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 6
6 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1986. Þessi saga ætti að heita: Ævintýri úr eyjum. En raunar myndi það valda misskilningi, því þá hélduð þið að átt væri við Vestmanna- eyjar. En hér segir ekki frá Vest- mannaeyjum. Hér segir frá við- burðaríkum degi hjá frændum okkar Færeyingum. En látum oss byrja á byrjuninni. Við vorum á heimleið, tvær ís- lenskar fjölskyldur eftir þriggja ára dvöl í Svíþjóð. Eftirvænting okkar var mikil, að minnsta kosti leið mér eins og ég væri að losna úr útlegð. Ég hafði aldrei notið mín fyllilega þar úti. Pó hafði ég ekki yfir neinu að kvarta. Við höfðum sæmilega vinnu. Við höfðum eignast son, lít- inn kút, skírðan af sænskum presti með annarlegan hreim á nafninu sem hann hlaut. Við lentum reyndar í alls konar vandræðum með þessi nöfn okkar þegar átti að skrá hann í bækur. Hvernig gat drengurinn heitið Hauksson úr því faðir hans hét Sveinsson og svo hét móðirin Sigurðardóttir sögðu þeir. Svíarnir vildu ekki viðurkenna að til væri annað kerfi en gilti í hinni stórkostlegu Svíþjóð. Ef til vill hefur það einmitt verið þetta mikil- læti þeirra sem gerði mér lífið leitt, en nú vorum við sem sagt á heim- leið, við með soninn, sem nú fengi að vera Hauksson í friði, og Sirrý og Þröstur með tvö börn, fimm ára soninn Örn og tveggja ára dóttur sem auðvitað var fædd í „útlegð- inni“. Við höfðum ekið yfir þvera Svíþjóð, gegnum Osló og hina hrikalegu leið yfir fjöllin til Bergen. Af þeirri ferð mætti auð- vitað segja sögu, en það verður ekki gert hér. Ég læt þess aðeins getið að hún var yndisleg. Báðar fjölskyldurnar voru á sænskum bílum sem við höfðum eignast á þessum árum. Það jók auðvitað á tilhlökkunina að koma heim á glæsilegum Volvo. í Bergen var ekið um borð í Norröna og siglt út úr norska skerjagarðinum. Þettavar seintum kvöld og þegar við risum úr koju næsta morgun sást ekkert nema endalaust hafið hvert sem litið var. Sjór var sléttur að því er vanir sæ- farendur sögðu og þessi sigling var enn eitt ævintýrið, perla á band minninganna ef ég má vera skáldleg. Síðari hluta dags var lagst að bryggju í Þórshöfn. Okkur fannst staðurinn vinalegur og við vorum sammála um að hér væri eitthvað sem minnti á ísland. „Ég veit“, sagði ég eftir nokkra umhugsun. „Það er enginn skógur til að byrgja fyrir útsýnið.“ Svo undarlegt sem það kann að virðast þá höfðu skógarnir sænsku aldrei náð að heilla mig. Nú var áætlun skipsins þannig háttað að það átti að sigla til Leir- víkur á Hjaltlandi og aftur til Þórs- hafnar. Var væntanlegt til baka síð- degis næsta dag. Fannst okkur því tilvalið að nota þennan tíma til að skoða Færeyjar. Við ókum sænsku lúxuskerrunum í land og fengum okkur kvöldverð. En þar sem börnin voru orðin þreytt leituðum við uppi tjaldstæði og var það auð- fundið í útjaðri bæjarins. Sirrý og Þröstur settu upp tjaldvagninn en við Haukur höfðum „aðeins“ tjald. Og róleg og góð var þessi fyrsta og eina nótt okkar í Færeyjum. SIGRÚN BJÖRGVINSDÓTTIR: Það var ekki fyrr en um borð að við gátum farið að hlæja Endurnærð vöknuðum við að morgni og tókum saman pjönkur okkar. Veður var gott og afsannaði þá kenningu að hér væri alltaf rigning. Því lofaði dagurinn góðu um skemmtilega skoðunarferð. Fyrst var haldið inn í bæinn að snæða morgunverð. Síðan þurfti Sirrý í banka sem ekki er í frásögur færandi, en loks var erindum lokið og stefnan tekin upp úr bænum. Við ætluðum að byrja á því að skoða Norðurlandahúsið sem þá var í byggingu. Ekki vorum við þó komin alla leið þangað þegar rauði volvóinn snarstansaði fyrir framan okkur og Sirrý kom út, reif upp hurðina á okkar bíl og spurði. „Er Örn ekki með ykkur?“ „Nei, en við héldum að hann hefði lagt sig þar sem við sáum hann ekki í ykkar bíl.“ Það kom í ljós að drengurinn hafði orðið eftir niðri í bæ. Nú var snúið við í snarhasti og ekið niður að bankanum aftur. Þar var enginn lítill drengur. Við Haukur hlupum yfir að veitinga- húsinu í næstu götu þar sem við höfðum borðað. En Örn var ekki sjáanlegur þar, og afgreiðslufólkið hristi bara höfuðið þegar við spurðum um hann. Niðri við banka voru Sirrý og Þröstur búin að leita kringum næstu hús. Þröstur var náfölur og Sirrý másaði eins og hún væri með andarteppu. „Við skulum fara niður að höfn þar sem skipið lagðist að“, sagði Haukur og skelfileg hugsun greip okkur öll. Þar niður frá skiptum við liði og fórum sitt í hvora áttina með hafnarbakkanum. Það voru nokkrir á ferli og við spurðum alla. Enginn hafði séð lítinn grátandi dreng sem talaði lítt skiljanlegt mál. Við hittumst aftur og réðum ráðum okkar. Lögreglan. Við yrðum að finna lögreglustöðina og fá hjálp. Það var þegar liðið hátt í tvo tíma síðan við lögðum upp í skoðunarferðina. Það var óskiljan- legt að drengurinn skyldi hvergi sjást og enginn hafað orðið var við hann. Sirrý var gráti nær. „Kannski hann hafi farið út á tjaldstæðið," sagði Haukur. „Hvernig heldurðu að fimm ára barn gæti ratað þangað og hafa farið það aðeins í bíl,“ sagði Þröstur bróðir hans. „Hann getur ekki einu sinni vitað í hvaða átt það er.“ Það var auðvitað satt. Þetta var heimskuleg uppástunga. Þó sagði ég- „Við skulum samt fara þangað Haukur. Þið getið farið í stærri hringi hér í kring og síðan áleiðis upp að Norðurlandahúsinu. Ef það ber ekki árangur tölum við við lög- regluna.“ Hversu fáránleg sem þessi tillaga annars var þá var hún samþykkt. Því þegar skynsamleg ráð duga ekki þá grípum við gjarnan til ör- þrifaráða. Við Haukur héldum upp frá höfninni og áleiðis að tjaldstæð- inu. Rauði volvóinn hvarf upp í miðbæinn. Við máttum fara með gát til að aka nákvæmlega sömu götur og fyrr um morguninn og við gættum vel til beggja átta inn í allar hliðargötur, en drengur í bláum stakk var hvergi sjáanlegur. „Þetta þýðir ekki neitt,“ sagði ég með grátstafinn í kverkunum, „hann gæti aldrei hafa farið svona langt.“ „Ég ætla að aka upp á hæðina þarna,“ sagði Haukur. „Þá held ég að sjáist alla leið.“ Ég heyrði þó á rödd hans að honum fannst tilgangslaust að fara lengra. Það var rétt. Uppi á hæðinni sást yfir á tjaldsvæðið. Við sáum það þó raunar ekki. Miðja vegu á leið- inni þangað gekk lítill maður í blárri úlpu og hélt annarri hendi upp að andlitinu. Við þorðum varla að draga and- ann þegar við ókum fram á hann. Það gat ekki verið eða hvað. Jú, þarna gekk Örn. Hann grét ekki en var eins og utan við sig. Hann vildi tæpast þýðast mig þegar ég tók hann upp og bar hann inn í bílinn. Hann spurði í sífellu. „Hvar er mamma? Hvar er mamma?“ Hvað skyldi hafa verið að brjót- ast um í þessum litla kolli þessar löngu klukkustundir. Og hvernig í ósköpunum hafði þessi litli pjakkur getað ratað þessa leið. En við fundum til ósegjanlegs léttis. Við vorum búin að snúast all mikið áður en við rákumst á Sirrý og Þröst. Þau voru að leita að lög- reglustöðinni og voru orðin frá sér af skelfingu. Feginleiki þeirra var meiri en svo að þau gætu tjáð hann í orðum. Þannig fer oft á stórum stundum að okkur verður orða vant. En það var ekki fyrr en í fangi mömmu sinnar að Örn fór að gráta. Þannig byrjaði þessi dagur okkar í Færeyjum með kvíða og skelfingu sem breyttist í orðlausan fögnuð. Við vorum satt að segja dálitla stund að jafna okkur eftir óttann. En að stundu liðinni lögðum við aftur á brattann upp úr bænum. Eins og sannir íslendingar fýsti okkur að sjá hvað væri hinum megin við fjallið að baki bænum. Reyndar hefði það tæpast verið kallað fjall á íslandi. í mesta lagi háls. Skyldi annars ekki forvitnin verða meiri, útþráin sterkari hjá þeim sem býr í návígi við fjöll. Þau leyna svo miklu, fela, laða, jafnvel ögra. Hvað er hinum megin. Komdu bara ef þú þorir. í þetta skipti komumst við upp að Norðurlandahúsinu, sem þá var að verða fullbyggt. Enginn maður var þar sjáanlegur svo við komumst Bœrinn í Saksun. Höfnin í Pórshöfn.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.