Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 25
Egilsstöðum, jólin 1986.
AUSTRI
25
frammi, svo ég var farinn að verða
smeikur um að eitthvað hefði kom-
ið fyrir þau, því ég hafði heyrt, að
allir árar væru á ferli á jólanóttina.
En þá heyrði ég að komið var inn
göngin.
„Eru ekki allir frískir"? spurði
einhver frammi í göngunum, að
mér fannst með málrómi pabba.
„Jú“, svaraði mamma með eitt-
hvað svo undarlegum hreim í rödd-
inni.
Þá opnaðist baðstofuhurðin og
mamma og Grímur komu inn og
með þeim — pabbi og Jón.
Þeim fögnuði, sem ríkti í Selvík-
urbaðstofu þetta kvöld, verður
ekki með orðum lýst. Pabbi færði
okkur börnunum jólagjafir og
sælgæti eftir vild. En hvers virði
voru þær jólagjafir í samanburði
við það, að heimta föður sinn og
bróður úr helju?
☆ ☆
☆
f>á er aðeins eftir að skýra frá,
hvernig stóð á þessari óvæntu en
dýrmætu gjöf.
Þeir félagar voru langt úti á
miðum, þegar bylurinn skall á.
Höfðu þeir aflað fremur vel og áttu
sér einskis ills von þar til rokan kom.
Vindurinn stóð af landi og hrakti
þá heldur undan til hafs. Var ekki
annað sýnna en að bátnum hvoidi
þá og þegar.
En þegar neyðin er stærst, er
hjálpin næst.
Þegar þeir voru orðnir úrkula
vonar um hjálp, bar að enskt fisk-
veiðaeimskip og fékk borgið þeim.
Var það á heimleið og flutti þá með
sér til Englands.
í Englandi höfðu þeir fengið at-
vinnu og unnið fyrir allgóðu kaupi
til þess er þeir fengu ferð heim.
Höfðu þeir komið á kaupskipi í
höfn eina alllangt frá Selvík rétt
fyrir jólin og farið þaðan dagfari og
náttfari til þess að komast heim á
aðfangadagskvöld. En jólanóttina
áleit pabbi vel fallna til þess að skila
aftur „týndu sauðunum".
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
ÞRAUT
Hvaða skugga á fuglinn
fljúgandi.?
VÖRÐURINN
Aim, þonm er opúm gCuggi,
ct, jmrrm er símggi,
þoð er síuggi varðarins
sern gtEtir hússins.
Mecfan hjónin skruppu jra
fmnn kattar: Ertu. að gem
eitthvað sem ekki má,
maður nrn Rvergi vera.
MAPPAN
Æ, pessi mappa,
fiún íumn bókstafíega eíáert
óki einu. sinni að klappa
og fmn dettur í sunttur ef fiún er snert.
HILLAN
Æ, pessi fdtta,
fiún er eéki sterri en kfettasyQa
fíún fiúhr úti í horrn,
og bíður þess að fiún þomi.
Kristinn Haukar Sigurðsson
11 ára
AO 45 29 Z 9H
ZJ 52 76 58 'f?
69 6 'ÍÖ 49 4Z
98 'f£ 55 85 Aö
16 54 51 n 43
þessara talna, þannig aö útkoman
verði 100? En þú mátt eKki vera
lengur en 30 sekúndur að
tinna tölurnar.
Prjónastofan Dyngja hf.
700 Egilsstöðum, S 97-1331-1332
óskar starfsfólki
og viðskiptamönnum sínum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum ánægjuleg viðskipti
á liðnu ári.
Sendum viðskiptavinum okkar
og öðrum Austfirðingum
bestu jóla og nýársóskir.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Fjölritun hf.
Fellabæ, sími 1800.
Sendum viðskiptavinum okkar
og öðrum Austfirðingum
okkar bestu
jóla- og nýárskveðjur.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Kaupfélag Langnesinga
Þórshöfn