Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 29
Egilsstöðum, jólin 1986.
AUSTRI
29
endur víða af austurlandi. Nem-
endur 7. eða 8. bekkjar grunnskól-
anna koma hér og eru viku í senn
20 - 24 í hóp og þá halda þau í raun-
inni heimili fyrir sig í þennan tíma.
Tíminn fram að áramótum fer í
þessi námskeið fyrir grunnskóla-
nemendurna og getum við þó ekki
alveg sinnt óskum skólanna um
fjölda námskeiða.
— Hvað starfa margir við
skólann?
um. Þetta er mikil framför því áður
var þetta nám hvergi metið, hvorki
í skólum eða á vinnumarkaði.
— Verðið þið varar við aukna
aðsókn eftir að farið var að meta
námið meira?
Aðsókn að skólanum hefur auk-
ist mikiðs.l. tvö árognúþegar hafa
borist umsóknir um skólavist í
vetur sem fylla skólann. í Einingu,
blaði framhaldsskóla á Austur-
landi, sem var gefið út fyrir tveimur
Margrét Sigbjörnsdóttir og Kolbrún Sigurbjörnsdóttir.
Við erum 2 sem kennum á haust-
önninni og þá kennum við 40 tíma
á viku hvor. Kennsluprógrammið
er í gangi hjá okkur báðum frá 9 á
morgnana til 2 á daginn og í eftir-
miðdaginn eru bóklegir tímar sem
við tökum til skiptis. Síðan skipt-
umst við á að sjá um gæslu þannig
að við erum 1 og Vz sólarhring hér
í úthaldi í einu til skiptis. Auk
þessa er Heiðrún Valdimarsdóttir
í Vi starfi hér sem aðstoðarstúlka.
Eftir áramótin bætist hér við starfs-
liðið. Kolbrún sem nú er ræsti-
kennari tekur við fatasaums-
kennslu og við bætist matreiðslu-
kennari og vefnaðarkennari og ég
(Margrét) tek við ræstikennslunni
með skólastjórninni. Á haustönn-
inni verð ég að nota kvöldin og næt-
urnar til þess að sinna skólastjórn-
árum var pistill um Húsmæðraskól-
ann á Hallormsstað. Þcssi pistill
var settur upp í léttum og líflegum
dúr og fljótlega eftir að blaðið kom
út rigndi hér inn umsóknum. Þetta
sannaði mér að auglýsing og kynn-
ing er afar mikilvæg til að auka að-
sóknina að skólanum.
— Hvað eru nú margir svona
skólar á landinu?
Það eru bara 3, hér á Hallorms-
stað, í Reykjavík og á ísafirði. Ég
held því fram að búið sé að ganga
dálítið mikið af þessum skólum
dauðum með því hvað þeir hafa
lítið verið kynntir og auglýstir. Al-
menningur veit ekki hvað nú fer
fram í þessum skólum. Þær hug-
myndir sem fólk hefur eru frá því
mamman eða amman voru í hús-
mæðraskóla og margir halda að
Grunnskólanemendur í eldhúsi húsmæðraskólans.
inni því með 40 tíma kennslu auk
gæslu gefst lítill tími á daginn til að
sitja á skrifstofunni.
— Hvenær byrjar Hússtjórnar-
skólinn og hvað er þá kennt?
Hann byrjar nú strax eftir ára-
mótin 7. eða 9. janúar og stendur í
4 mánuði. Þá er kenndur hér fata-
saumur, vefnaður, matreiðsla og
ræsting. Síðan eru kenndar bók-
legar greinar sem þá tengjast beint
verklegu fögunum svo sem mat-
vælafræði, næringarfræði, snið-
teikning, efnisfræði og vefnaðar-
fræði. Almennar greinar eins og ís-
lenska, stærðfræði og slíkt eru ekki
kenndar lengur hér.
— Hvernig er þetta nám metið
núna?
Þetta nám er núorðið metið til
eininga innan framhaldsskólanna
og reyndar tel ég að mér sé óhætt
að segja að þetta sé metið til launa-
hækkunar í ákveðnum starfsgrein-
þannig sé það enn. Ég hef rekið
mig á það þegar grunnskólakrakk-
arnir eru hér í skólanum að þau
spyrja svo einkennilegra spurn-
inga. Þau virðast halda að hér sé
allt óskaplega strangt og það sem
hér sé verið að gera sé aftan úr
grárri forneskju. Þau verða jafnvel
undrandi að sjá hér sjónvarpstæki.
Þessir skólar hafa mikið breyst, en
það hefur gerst í þegjanda hljóði og
án þess að fólk viti nokkuð um það
hvernig skólarnir eru eftir þessar
breytingar.
— Hvernig er nýtingin á skól-
anum hér?
Fyrir áramótin eru grunnskóla-
nemendurnir hér og strax eftir ára-
mótin byrjar hússtjórnarskólinn og
stendur fram í maí. Svo höfum við
verið hér með svokölluð orlofs og
endurmenntunarnámskeið s.l. 2
vor. Það gekk mjög vel í fyrra og
fólk var ánægt með þessar orlofs-
vikur, en s.l. vor var aðsóknin ekki
nógu góð, þá vorum við á öðrum
tíma, sem hefur verið óheppilegri.
Ef við höldum áfram með þessi
námskeið þá er spurning hvort við
auglýsum þau ekki meira og
reynum að ná til fólks víðar af land-
inu. Þessi námskeið geta verið
mjög skemmtileg. Þeir sem vilja
geta verið hér alveg í fríi og fólk
getur einnig valið sér ýmis nám-
skeið sem boðið er upp á. Á sumrin
hefur verið rekið hér hótel.
— Hvernig hefur reksturinn á
skólanum gengið?
Það hefur nánast gengið hörmu-
lega eins og á flestum ríkisstofnun-
um. í fyrsta lagi álít ég að hér sé
alltof fátt starfsfólk til þess að
maður geti hugsað sér að vera í
þessu ár eftir ár. Á haustönninni er
þetta sérstaklega mikil vinna, hún
er að vísu borguð, en maður hefur
ekkert val hvort maður vilji fá þessi
laun og vinna svona mikið, það
bara verður að gera þetta því það
fæst ekki leyfi til að ráða hingað
fleira starfsfólk. Það getur hrein-
lega ekki gengið svona ár eftir ár.
Við höfum talað um það að annað
hvort skaffi grunnskólarnir gæslu-
mann með sínum hópum eða að
það fáist leyfi til að ráða hingað
manneskju sem væri hér við gæslu
eftir að kennslu lýkur á daginn og
gæti þá líka gert eitthvað með
krökkunum á kvöldin. Við höfum
hreinlega ekki úthald til þess eftir
fullt starf yfir daginn.
— Á skólinn framtíð fyrir sér?
Ég hef ekki heyrt að neinar hug-
myndir séu um að leggja þennan
skóla niður, enda varla ástæða til
þess þar sem nýting hans verður að
teljast góð. Það er gaman að geta
þess að von er til þess að á næstunni
verði lagt nokkuð fjármagn í að
laga húsið sem er orðið afar brýnt.
Þetta er sérstakt og skemmtilegt
hús sem á sér merka sögu og það er
óhætt að segja að það gegnir enn
mikilvægu hlutverki því hér er allt-
af eitthvað um að vera.
VS
Við litum inn í kennslustund í
Húsmæðraskólanum á Hall-
ormsstað og tókum nemendur tali
þar sem þau voru þar að störfum,
en þessa viku voru nemendur úr
Grunnskólanum á Egilsstöðum á
hússtj órnarnámskeiði.
„Petta er alveg frábærlega gaman
sagði Kristín Pórhallsdóttir. „Ég
vildi gjarnan vera héma aðra viku,
ég gæti alveg hugsað mér að fara í
skólann hérna“.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla,
árs og friðar.
Þökkum viðskipti liðinna ára.
Munið okkar árlegu fíugeldasölu.
Verslun
Gunnars ^vGcfr Gunnarssonar
Selási 1, Egilsstöðum
Sendum Austfirðingum
bestu jóla- og nýársóskir.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Gleraugnasalan
Laugavegi 65, sími 91-18780.
Gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs
óskum við starfsmöm am
og viðskiptavinum okkar
með þakklæti fyrir samvinnuna
á árinu sem er að líða.
►ARBANKÍ
LANDS
Reyðarfirði