Austri


Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 22

Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 22
22 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1986. — AUÐUNN BRAGI SVEINSSON: Hleypt heimdraganum Til Siglufjarðar og suður á land Bogi á Gljúfraborg segir frá Priðja sumarið mitt á Siglufirði var sumarið 1939. Ég hafði verið vetrarmaður hjá Krístni Guð- mundssyni á Mosfelli veturinn 1938 til 1939, en alls var ég hjá þeim ágæta manni í fjóra vetur. Þaðan fór ég niður að Blikastöðum og tal- aði við Magnús bónda Þorláks- son,sem vildi fá mig sem sumar- mann. Bauðst hann til að kenna mér á allar vélar og að greiða mér gott kaup. Þannig fór samt, að ekki tókust samningar milli okkar. Hélt ég þá með ferjunni, sem gekk upp í Borgarnes. Beið þar þá bifreið sem átti áætlun norður til Akureyr- ar. Þarna í Borgarnesi var maður nokkur, sem ég þekkti og var hann að fara norður. Hét hann Lárus Ólafsson. Dálítið sérkennilegur maður og ragur. Við héldum nú sem leiðin lá með áætlunarbifreið- inni. Þegar til Akureyrar kom, tókum við herbergi þar á leigu á hóteli. Ekki man ég nú hvað það hét, enda skiptir það ekki máli. Þar gistum við sem sagt. Síðan fórum við fljúgandi til Siglufjarðar, en þangað var förinni heitið. Ég var ekki neitt áfram með það að fljúga, en öðru máli gegndi með samferða- manninn. Hann var mjög áfjáður í það. Vélin hoppaði talsvert með köflum til Siglufjarðar.Lagðist hún á hliðina er hún var að snúa við í. Siglufjarðardalnum. Varð þá félagi minn alveg dauðhræddur og svitn- aði mjög. Ég var ekki vitund hræddur. Félagi minn setti húfuna sína fyrir andlit sér, er hann var sem hræddastur. Lárus Ólafsson, félagi minn þarna, var hálfbróðir Kjartans Ólafssonar, hins kunna kvæðamanns í Reykjavík. Nú vorum við komnir til Siglu- fjarðar. Fór ég þá fyrst heim til hjóna, sem ég hafði verið í fæði hjá níu árum áður. Hét maðurinn Jón Jónsson og konan Guðrún Jónsdóttir, Spurði ég þau, hvort þau gætu útvegað mér herbergi ein- hvers staðar. Sögðu þau mér þá, að þau lægju ekki á lausu á Siglufirði um þetta leyti, allt væri fullt. En ég gæti fengið að liggja á stofugólfinu, uns eitthvað rættist úr húsnæðis- vanda mínum. Varð ég að þiggja þetta, þó að mér þætti það allt annað en hagstætt. Fæði fékk ég hjá hjónum þessum. Það var með ágætum. En nú var eftir það, sem ég hafði raunar lagt leið mína til Siglufjarðar til að hreppa. Ég fór að svipast um eftir vinnu. Það var lítið um atvinnu á Siglufirði um þetta leyti. Sama og engin síld- veiði. Ég fékk vinnu við að bora holur inn í bergið í Hestsskarði, en það er milli Héðinsfj arðar og Siglu- fjarðar. Var þetta gert í sambandi við vegagerð. Margir menn voru þarna f vinnu. Þarna vann með mér maður, sem ég þekkti heiman að, úr Breiðdal, Kristinn Hóseasson frá Höskuldsstaðaseli. Hann hefur verið prestur í Eydölum í um fjóra áratugi. Við höfðum tjald, en sváfum aldrei í því. Fengum við að sofa í hlöðu að bóndabænum Skútu, hjá Ragnari Jóhannessyni bónda þar. Bjó hann áður á Refs- stöðum á Laxárdal í Austur-Húna- vatnssýslu. Skúta er hinum megin við Siglu- fjörð. Er nú heitt vatn það, sem hitar upp hús í Siglufjarðarbæ, tekið þar, því að jarðhiti er nokkur í landi jarðarinnar. Þetta var svo sem klukkustundar gang frá vinnu- staðnum. Allir þeir, sem héldu til í >>í“* jJ; Gleðileg jól farsælt komandi ár. Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Sölusamband íslenskra fískframleiðenda tjöldum, voru þrælkvefaðir, en við Kristinn vorum alveg lausir við þann kvilla. Eftir að vinnu lauk þarna við að bora í fjallið fékk ég vinnu við að laga til í kringum Sjómanna- og gestaheimili Siglu- fjarðar. Vann ég við það ásamt Birni Jónssyni frá Seyðisfirði, ágætum íþróttamanni. Hann hopp- aði léttilega yfir garðinn eða girð- inguna umhverfis lóð gestaheimil- isins. Þökur vantaði á lóðina. Varð ég að sækja þær inn að Steinaflöt- um, víst tveggja til þriggja kíló- metra leið. Og það í hjólbörum! Ekki man ég eftir neinum bílum þá á Siglufirði, og þó hljóta bifreið- ar að hafa verið komnar þangað, í jafn stóran bæ og Siglufjörður var þá, og stórum fjölmennari en aðrir bæir norðanlands, að Akureyri einni undanskilinni. Ég var einn í þessum þökuflutningum. Áður höfðu þökurnar verið skornar og lagðar í bunka, eins og lengi hafði tíðkast. Er þessari vinnu var lokið var ekki um annað að gera en að fara að svipast um Ttir annarri vinnu. Þá réði ég mig á síldarplan Eyfirðinga. En síldin lét á sér standa. En það lítið af síld sem ekki var saltað, var flakað, og það auð- vitað í höndunum. Vélarflökun þekktist þá ekki. í hvert sinn sem einhver síld kom fékk ég þessa vinnu, það er að flaka síldina. Þess á milli var ég algjörlega verklaus. Skemmtanalífið á Siglufirði var þeim mun fjörugra sem minna var að gera, eins og nærri má geta. Ég fór oft á böll þetta sumar. Þegar síldin sást ekki lengur, sem raunar var aldrei mikil þetta sumar, spurði ég manninn, sem ég hitti fyrst, hvort hann gæti útvegað mér bát eða ein- hvers konar fleytu til að róa á á kvöldin og koma síðan að á morgn- ana. Hann var ekki seinn að nálgast bát handa mér. Síðan tók ég að stunda þetta: að róa til fiskjar einn á báti í bókstaflegum skilningi. Þegar ég kom að á morgnana, voru það mikil læti í fólkinu að nálgast nýjan fisk í soðið, að ég hafði ekki tíma til að þvo hann allan, og því síður að vigta hann. Samt hafði ég góðar tekjur upp úr þessum veiði- skap. Þá var enn mikill fiskur í sjó, alveg uppi í landsteinum að kalla. Ég réri aðeins út undir Siglunes, þurfti sem sagt ekki lengra að fara til að fá nægan fisk. Þess er áður getið, að ég hafði ekki tíma til að vigta þann fisk, er ég seldi. Ég átti raunar enga vigt í eigu minni! Einu sinni fóru með mér tveir strákar á sjóinn. Voru það sonur manns þess, er ég kom fyrst til þarna, og sonur mannsins, er lán- aði mér bátinn. Þá langaði ákaflega til að fara eina sjóferð með mér, strákagreyin. Þeir voru tólf ára gamlir. Er við vorum komnir nokkuð út fyrir kaupstaðinn vissum við ekki fyrr en á okkur skall niðaþoka. Bátarnir sem voru þarna allt í kringum okkur, öskruðu og vöruðu við að sigla á þá eða að þeir sigldu á okkur. Strákarnir sögðu, að ég réri út allan fjörð, en ég þóttist viss um að ég væri á réttri leið, enda kom það á daginn. Ég réri meðfram landinu, inn fyrir Siglufjarðarbæ, og síðan út að bryggjunum. Sonur mannsins, er ég kom fyrst til, hét Þórður. Er ég hætti þessum róðrum og skilaði bátnum og spurði um leið hvað báts- lánið kostaði, sagði hann að bátur- inn hefði ekki beðið meiri skaða af því að vera úti á söltum sjó þennan tíma sem ég hafði hann að láni en þó að hann hefði verið bundinn við bryggju sama tíma eða barist við hana. Þetta var drengilega gert og mælt. Þann fisk sem ég veiddi, dró ég á handfæri. Ég húkkaði hann allan. Þegar „útgerð" minni var lokið, fór ég að hugsa til heimferðar—austur í Breiðdalinn. Var ég loks ferðbú- inn og kominn niður á bryggju á Siglufirði með dótið mitt. Ætlaði ég að fara með báti sem þarna lá bundinn við bryggju,og fara skyldi til Sauðárkróks í fyrstu. Þá vildi svo til, að ég hitti þarna mann nokkurn frá Fáskrúðsfirði, Eidemann að nafni. Tókum við tal saman. Sagði ég honum . allt af ferðaáætlun minni. Sagði hann þá, að ég skyldi bara koma með sér, því að eftir viku yrði ferð með Esju frá Breið- dalsvík til Reykjavíkur. En ég fór ekki að því sinni suður. Ég festi kaup á hluta Þorsteins Stefánssonar í Þve'-hamri í Breið- dal. Að því sinni var ég þó ekki nema veturinn heima. Ég fór suður um vorið, vorið 1940. Vann égfyrst ýmsa daglaunavinnu sem til féll í borginni. Að því loknu réði ég mig til starfa hjá Stefáni Þorlákssyni í Reykjahlíð í Mosfellssveit. Réði ég mig hjá honum til sjö mánaða, en þar varð ég ekki nema tvo mánuði. Ég þekkti ekki sögu hans. Hjá honum voru kýrnar handmjólkað- ar. Mér var sagt, áður en ég réði mig þarna, að kýrnar væru tuttugu, tíu kindur og sjö hestar. En þegar til kastanna kom voru skepnurnar svolítið fleiri. Kýrnar reyndust að vera þrjátíu, kindurnar níutíu og sjö hestar, eins og mér var sagt áður. En svo voru tvö svín til við- bótar því sem til tiltekið var af bú- fénaði. Ég var það vanur skepnu- hirðingu, að ég gat þetta vel. En þar sem mér hafði verið sagt rangt til um starfsvettvang minn, þóttist ég ekki skyldur til að halda út þennan ráðningartíma, og fór ég þá frá bóndanum í Reykjahlíð, sem fyrr er getið. Hann gerði til- raun til að klekkja á mér, fékk sér lögfræðing til halds og trausts. En aldrei fékk ég neina formlega kæru á mig. Ég hitti Stefán bónda síðar á Mosfelli, og sagðist hann þá fara í mál við mig. Ég sagði honum, að það yrði hann að gera upp við sjálfan sig. Nú tók ég að stunda Bretavinnu, en ekki samfellt. Ég hóf vinnuna á svonefndum Ásum, milli Mos- fellsdals og Álafoss. Þar var þá verið að byggja sjúkrahús. Mikill kuldi var þennan vetur, veturinn 1940-1941. Það var oft þetta 10 til 17 stiga frost. Til að halda á okkur hita stóðum við í kringum tunnur, sem koksi var brennt í. Þær voru með götum, svo að ylinn legði frá þeim. Við héldum okkurviðþessar tunnur, þegar kalt var, en snertum ekki á verki. Einn af okkur var hverju sinni á vakt, eða í útkíkki, eins og það var kallað, til að fylgj- ast með því hvort verkstjórinn kynni að birtast. Þegar hann svo sást, gaf maðurinnokkurmerki,og við tókum til við að gera eitthvað, sem var meira að sýnast en að vera. Höfðum verkfæri í höndum. Strax og verkstjórinn var farinn höm- Cfo W\mL Vt^sícípiwl ci (fymn d#i. ^ ' ~ ' " — ' m • ' T ~ " 1 1 , 'rti'.' ' " ~~ ?»!'-*.* — jV' ‘/y-- ■ 1 ^liiHfiml J ]j . ^ - ~-LÁ1 - - | 1 ■yvuffp*■■ Wr “ Í.: ■ 3MOAOELO Samba SKIPADEILD ~ ' SAMBANDSINS tAkn traustra flutninga ^ LINDARGOTU 9A • PÓSTHÓLF 1480 • SIMI 28200 • TELEX 2101

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.