Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Síða 11

Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Síða 11
Þ JÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐIÐ 1936 aldurs, er hann fór til Reykjavíkur að læra ljósmyndasmíði og bókband hjá Sigfúsi Ey- mundssyni. Að því námi loknu fluttist hann til Eyja og dvaldi hér nokkur ár, unz hann fluttist aftur til Reykjavíkur og bjó þar. Stundaði hann þar ljósmyndasmíði á sumrum, en bókband að vetrinum til. Hafði hann afráðið að flytja aftur hingað til Eyja vorið 1906, en í janúar það ár lagðist hann í lungnabólgu, sem leiddi hann til bana 15. janúar 1906. Friðrik var ágætur sundmaður og æfði sig kappsamlega í þeirri íþrótt, í Reykjavík, í laugunum þar, sem þá þóttu góðar, en mundu nú þykja óhæfilegar sökum ills aðbúnaðar. Þær voru þá líkari forarvilpu en sundlaug, en sjór- inn var einnig við hendina, hlýrri en hér, og notaði Friðrik hann, þegar færi gafst, og þeg- ar hann kom aftur hingað 1891 kenndi hann hér sund í þrjú ár og er Friðrik því fyrsti sundkennari, sem sögur fara af hér í Vest- mannaeyjum. Það bar snemma á því, að Friðrik skaraði fram úr að líkamlegu atgerfi. Hann var meðal sterkustu unglinga hér samfara óvenju liðug- um líkama, enda varð hann fljótt afbragðs fjallamaður. Þá var það venja hér, að unglingar iðkuðu mjög glímur og bar Friðrik þar af flestum. Þessa íþrótt stundaði hann kappsamlega eftir að hann kom til Reykjavíkur. Þar var hann í glímufélagi, sem þeir þrír stóðu að: Séra Helgi Hjálmarss., fyrrum prestur að Grenjaðarstað, Fnðsteinn Jónsson, faðir frú Ágústu, konu Har- aldar Jónassonar hér í bæ, og svo Friðrik. Var þar haldin kappglima vetur einn í Goodtempl- arahúsinu og hlutu þessir þrír þá verðlaun fyrir fagra og góða glímu. Með Friðrik Gíslasyni féll í valinn einhver hinn ágætasti íþróttamaður og brautryðjandi á því sviði, sem hélt uppi heiðri Eyjanna bæði í orði og á borði. Har. Eiríksson. Íþróttalíf í verbúðum um síðustu aldamót. Það var fremur dauft yfir íþróttalífi í ver- stöðvum hér sunnan lands fyrir 30—40 árum, en þó voru þá helzt iðkaðar glímur, enda hefir íslenzka þjóðin lengst af haft þær í hávegum. En glímur komu varla til greina framan af vetrarvertíð og var það einkum veðráttan, sem hamlaði því að útiskemmtanir væru háðar. Þess í stað voru ýmsar íþróttir og leikir iðk- aðir inni og voru þessar þær helztu: „Að brynna álftum“, „Jáma hana Pertu“, „Sækja smjör í strokk“, „Flá kött“ og fara í krók eða krumlu. Nú vil ég reyna að lýsa tveim þeim leikjum, sem ég taldi upp fyrst, og gæti ég trúað, að mörgum þætti gaman að sjá unga menn spreyta sig á þeim. „Að brynna álftum“ var gert á þann hátt, að kaðall var bundinn um skammbita í verbúð- inni, voru lykkjur á báðum endum og löfðu endarnir niður í hnéhséð frá gólfi. Síðan steig maður sínum fætinum í hvora lykkju, beygði sig niður að gólfi og tók í munninn einhvern hlut, sem látinn var á gólfið, svo var þyngsta þrautin að rétta sig upp, en þá varð mörgum á að steypast yfir sjálfan sig. „Að jáma hana Pertu“ var í því fólgið, að kaðall var strengdur milli tveggja stólpa með nálægt 4 álna millibili. Sá, sem ætlaði að „járna“ settist á kaðalinn með útrétta fætur, krosslagða á kaðlinum, hafði hann prik í hendi og með því átti hann að slá 16 högg á tærnar á sér og við hvert högg átti hann að segja: „rek ég einn“, „rek ég tvo“ o. s. frv., þangað til allir 16 naglarnir voru reknir. Margir vildu velta af baki áður en þessi þraut var leyst, en sá, sem gat það varð að taka skeifnasprettinn á hryssugreyinu á eftir, en til þess varð hann að leggja á hana reiðtýgi 11

x

Þjóðhátíðarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðhátíðarblaðið
https://timarit.is/publication/1476

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.