Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Side 24
Þ JÓÐHÁTlÐ ARBLAÐIÐ 1936
Mesta og besta
úrval
af snyrti- og hreinlætisvörum
í Apotekinu
Munið eftir að hafa
FIX
við hendina, þegar þið þvoið
þvottinn.
Hafið með yður
Ö1 og sælgæti
í Dalinn.
Allt af bezt í
Siggabúð
Gagnlrœðaskólinn í Vestm.eyjum
byrjar 1. október n. k.
Námsgreinar hinar sömu og að undanförnu.
Iðkaðar verða útiíþróttir undir handleiðslu Þorsteins Einarssonar, kennara
skólans. —
3. bekkur verður starfræktur til jóla, ef nægileg þátttaka fæst.
Námskeið fyrir ungmenni 17 ára og eldri verður starfrækt við skólann frá
1. okt. til jóla. Þar verður lögð áherzla á verklegt nám, með hliðsjón af at-
vinnulífi Eyjabúa; piltum kennt að smíða, bæta net, hnýta hnúta, stanga kaðla,
þekkja á áttavita, skilja notkun sjókorts í aðaldráttum o. fl., sem að sjómennsku
lýtur. Stúlkur læra hannyrðir. Bóklegar námsgreinar verða: stærðfræði, íslenzka
eðlisfræði og enska eða danska, eftir óskum nemendanna. Kennsla fer fram
seinni hluta dagsins oc á kveldin að mestu leyti, svo einnig þeir, sem at-
vinnu hafa, geti tekið þátt í námskeiðinu.
Ungmenni! Sækið gagnfræðaskólann og námskeið hans. íþróttafélögin m. fl.
starfa að aukinni líkamsrækt ykkar, en gagnfræðaskólinn veitir vkkur þekkingu
í hagnýtum fræðum. Hvort tveggja verður að haldast í hendur, ef vel á að fara.
Hlynnum að hvorutveggja. Notum haustið til náms.
Umsóknir séu komnar til undirritaðs fyrir 20. sept. n. k.
Vestmannaeyjum 4. ágúst 1936.
Virðingarfvllst
Þorsteinn Þ. Víglundsson.
24