Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Blaðsíða 17

Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Blaðsíða 17
Þ JÓÐHÁTlÐ ARBLAÐIÐ 1936 StMcLkejppnL í VjestmoMœjeifjwn. Þegar sundlagin hér var íullger síðastliðið ár, sá 1 R. V. að nauðsynlegt var að gera eitthvað til efling- ar sundíþróttinni og vekja áhuga á margþættri sund- kunnáttu. Beitti ráðið sér því fyrir, að gefnir voru þrir verðlaunagripir, til þess að keppa um þá í sundi, og var um þá keppt síðastliðið haust. 1. farandgripur, stytta, skorin út í birki af Bjama Guðjónssyni. Gefendur eru Iþróttastarf- semin í Vestmannaeyjum og nokkrir íþrótta- vinir. Keppa skal um grip þenna árlega og hlýtur sá, er hann vinnur, sæmdarheitið: Sund- kappi Vestmannaeyja. Til þess að vinna grip þenna þarf sá að synda samanlagðan stystan tíma — þó innan 12 mínútna — á 100 metra bringusundi, 100 metra baksundi og 300 metra ARNI TH. JÓHANNESSON, 1. Sundkappi Vestmannaeyja. SUNDLAUGIN 1 VESTMANNAEYJUM sundi með frjálsri aðferð. Auk þessa verður sá að sýna, að hann kunni björgunarsund og geti bjargað manni á minnst 25 metmm. Sundafrek þetta vann Árni Th. Jóhannesson, Sundkappi Vestmannaeyja. 2. Saumakassi, skorinn út í birki af Bjarna Guðjónssyni, gefinn af Kvenfélaginu „Líkn“, til verðlauna fyrir 50 metra sund fyrir konur, með frjálsri aðferð. Sú, er vinnur gripinn, hlýt- ur sæmdarheitið: Sunddrottning Vestmanna- eyja. Sú, sem vinnur grip þenna þrisvar í röð eða fimm sinnum úr röð, hlýtur hann til eignar. Sund þetta vann Svafa Markús- dóttir, 1. Sunddrottning Vest- mannaeyjum. 3. er farandgripur, Skjöldur, út- skorinn í eik af Ríkarði Jónssyni; gefinn af Slysavarnadeildinm Ey- kyndill, til keppni í 50 m. stakka- sundi fyrir sjómenn. Auk þess verður sá að sýna björgunarsund á minnst 25 metrum og hlýtur sæmdarheitið: Stakkasundskappi Vestmannaeyja. Sund þetta vann Óskar Þor- steinsson, 1. Stakkasundskappi Vestmannaeyja. SVAFA MARKÚSDÓTTIR, 1. Sunddrottning Vestmannaeyja. 17

x

Þjóðhátíðarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðhátíðarblaðið
https://timarit.is/publication/1476

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.