Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Page 2
Otgefandi:
Samtökin '78,
Pðsthólf 4166
124 Reykjavlk
"Or felum" kemur út f j órum si nr. um á ári
Verð í lau: sasölu : 35 kr. e i n t a k i ð
Verð í ásk: rif t: loo kr. f y rir 4 t öl ublö
Að blaðinu unnu: Guð ni , He lgi , He rb ert ,
Jón , Lára, Lil ja , Magnús, Rúnar, St een
og Þorvaldur.
Abyrgðarmaður: Helgi Magnússon.
Næsta blað kemur út í janúar 1983-
SAMTÖKIIM '78
FÉLAG LESBÍA OG HOMMA Á ÍSLANDl halda félagsfundi u.þ.b.einu sinni í xán-
uði á veturna og starfrækja símaþjónustu þar sem allir geta hringt
og rætt um það sem þeim liggur á hjarta. og fengið nánari upplýsing-
ar um starfsemi Samtakanna. Símatíminn er á þriðjudögum, kl.l8-2o
og á laugardögum l4-l6 og simanúmerið er 2 85 39-
I stefnuskrá Samtakanna segir m.a.
"Heilbrigt mannlif hlýst af hamingjusömu lífi sérhvers einstaklings.
Komist einstaklingurinn til þess tilfinningalega og félagslega
þroska sem honum er búinn, á hann sér þá kosti er leiða til farsæls
lífs.
Við lesbiur og hommar á Islandi viljum miðla þekkingu til bómó-
sexúal einstaklinga og efla með því skilning þeirra á sjálfum sér og
treysta afstöðu þeirra til sjálfra sín.
Þekkingin er eign samfélagsins alls. Hún þokar vanþekkingunni brott
svo að hún á ekki afturkvæmt, því að af þekkingu leiðir skilning. á
öllum sviðum þjóðlífsins ríkja bábiljur og hleypidómar, skapa það og
móta, uns þekkingin berst. Aldrei hefur hún borist viðstöðulaust,hún
krefst athafna og atorku þeirra er yfir henni búa og geta miðlað
henni.
Við lesbíur og- hommar á Islandi viljum miðla þekkingu á málefnum
okkar til alls samfélagsins svo að það öðlist skilning á þeim og á
því, að við erum eölilegur hluti af samfélaginu.
Sérhver þjóð telur sér til gildis að hún virðir mannréttindi. loland
á sér ákvæði um þau x stjórnarskrá og fullg.iltum samþykktum Sameinuðu
þjóðanna og Evrópuráðsins. Þau skulu tryggð án nokkurs manngreinar-
álits.
Við lesbíur og hommar á Islandi viljum njóta fyllstu réttinda,
siðferðilegra og lagaleg'ra, án nokkurs manngreinarálits, en förum'
ekki fram á nein forréttindi. "
MEÐAL EFIVIIS
má nefna grein um atvinnuöryggi hómósexúal fólks og sagt er frá nýrri
mynd frá Hollywood - Making love. "Ekki dey ég 1 dag" nefnist grein
um "hommaveikina", Kaposi Sarcom. "Lesbía - kona fyrst og fremst",
skírskotar til veruleika kvennanna, sagt er frá auglýsingabanni á
Dagblaðinu, rætt um leigjendastríð lesbía og homma svo eitthvað sé
nefnt. Þurfi menn afþreylngu meðan beðið er eftlr prinsinum (prins-
éssunni) á hvíta hestinum skal þeim bent á krossgátuna. Einmana
sálir ættu auk þess að líta í einkamáladálkinn.
2