Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Blaðsíða 29
HEFUR PÚ LÍKA ÁTT í LEIGJENDASTRÍÐI?
Fyrir skömmu urðum við tveir félagar, sem tekið höfðum xbúð á leigu,
fyrir því að húseigandinn reyndi að segja okkur upp húsnæðinu á þeim
forsendum að við værum hommar. Við leituðum réttar okkar þegar þetta
gerðist og ráðguðumst m.a. við lögfræðing en máliö er enn óútkljáð.
Eg spurðist fyrir um það meðal þeirra homma, sem ég þekki, hvort þeir
v-issu af fólki sem orðið hefur fyrir svipaðri reynslu en enginn hafði
frá neinu að segja. Samt virðist sú skoðun ríkjandi aö við hommar og
lesbíur eigum 1 vök að verjast í þessum efnum sem öðrum. Sem dæmi get
ég nefnt viðtal við tvo íslenska homma í Kaupmannahöfn sem birtist í
Helgarpóstinum í sumar. Þar fullyrða þeir að "heima á Islandi væri
okkur ónögulegt að halda vinnu eða leigja íbúð saman. Við gætum
kannski keypt Ibúð..."
Eg hef velt því fyrir mér upp á síðkastið hvað af þessum vlðhorfum
byggist á nöturlegri reynslu okkar og hvað af þeim sé þjóðsaga sem
hver étur upp eftir öðrum, þjóðsaga sem verður til vegna þess að við
lifum í sífelldum ótta við árásir og aðkast og flýjum yfirleitt áður
en á hólminn er komið en hættum ekki á nein átök og þorum sjaldnast
að leita réttar okkar. Þess vegna langar mig til að ná sambandi við
fólk sem neitað hefur verið um húsnæði eða verið sagt upp íbúð fyrir
það eitt að vera lesbíur eöa hommar. Mér finnst mál til komiö að við
gerum okkur grein fyrir ástandinu með því aö miðla hvert öðru af
reynslu okkar í von um að geta staðið sterkari að vígi í framtíðlnni.
Ef þú hefur frá svipaðri reynslu og ég aö segja þá hafðu samband við
Samtökin '78 sem vísa þér síðan á mig. Að sjálfsögðu mun ég sýna þér
fyllsta trúnað. - Símatíma og númer Samtakanna finnurðu í símaskránni,
Þorvaldur Kristinsson
^CANDREÍtt MÁNAÐARÍNSj^
■ Leiftursóknartillaga sitfprúda meirihlutans”
Sú vá fyrir dyrum vor stendur
að villugjarnt hommaliö
heimtar £ sínar hendur
hvers konar réttindi og griö.
Borgara reiöi þeir reita
og reykja v£st sumir hass.
Viö ráöningu skulum þeim veita
og r£öa þeim öllum £ rass.
Vínóuf.
29